Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Blaðsíða 20
Þjóðverjinn og aðalstjarna Dall-
as Dirk Nowitzki meiddist í fyrsta
leikhlutanum og kom ekkert meira
við sögu í 105-103 sigri á Milwaukee
Bucks í nótt. Jason Terry steig þá upp
fyrir heimamenn í Dallas og skoraði
27 stig, mörg á mikilvægum augna-
blikum í leiknum. Þetta var 60. sigur-
leikur Dallas á tímabilinu og er það í
þriðja sinn sem það gerist. Mo Willi-
ams leikmaður Milwaukee reyndi
æfintýralegt skot frá miðju til að
reyna tryggja sigurinn en niður vildi
boltinn ekki.
Brent Barry reyndist hetja San
Antonio Spurs þegar liðið lagði New
Orleans Hornets 92-88. Barry skor-
aði fjórar þriggja stiga körfur í fjórða
leikhlutanum en þetta var fimmti sig-
urleikur Spurs í röð. Hornets leiddu
með 12 stigum í fjórða leihlutan-
um áður en Barry tók til sinna ráða.
Hann skoraði þriggja stiga körfu
þegar 17 sekúndur voru eftir og kom
Spurs yfir 90-88 og þeir héldu þeirri
forustu til enda.Tim Duncan skoraði
31 stig fyrir Spurs og Barry var með
15 stig.
Rashard Lewis skoraði 33 stig
þar á meðal 13 í fjórða leikhlutan-
um þegar Seatle lagði Denver 100-
97 á útivelli. Denver hefur ekki unn-
ið heimaleik skori þeir minna en
100 stig í leik. Þetta er annar leikur
þeirra í röð þar sem úrslitin ráðast
á lokasekúndum leiksins. Á mánu-
dag lentu þeir í klóm Detroit þar sem
Rasheed Wallace skoraði frá miðju,
og nú gegn Seattle. Carmelo Anth-
ony skoraði mest fyrir heimamenn
eða 28 stig og Allen Iverson bætti 14
stigum við.
Utah Jazz vann Minnesota Timb-
erwolves 108-102 í enn einum æsi-
spennandi leiknum í NBA deildinni
í nótt. Carlos Boozser skoraði 25 stig
fyrir Utah og Tyrkinn Mehmet Okur
bætti 23 stigum við og tók auk þess
12 fráköst. Kevin Garnett skoraði 25
stig fyrir Timburúlfana og Ricky Dav-
is bætti 18 stigum við.
Eddie Curry skoraði 13 af 25 stig-
um sínum í fjórða leikhluta þegar
New York Knicks lagði Lebron Jam-
es og félaga hans Cleveland 97-93.
Stephon Marbury setti niður þrist
þegar 8,5 sekúndur voru til leiksloka
og New York hefur ekki enn gefið upp
vonina að komast í úrslitakeppnina.
Sem fyrr var Lebron James stiga-
hæstur í liði Cleveland með 24 stig.
Cleveland hafði möguleika á því að
jafna leikinn í 94-94 en Litáinn Zy-
drunas Ilgauskas skoraði aðeins úr
einu af þremur vítaskotum sínum
þegar 34 sekúndur voru til leiksloka.
Upp fór Marbury og setti niður þrist
sem gulltryggði langþráðan sigur
heimamanna.
New Jersey eygir enn von
Hitt New York liðið New Jersey
Nets eygir enn von um að komast í
úrslitakeppnina. Þeir unnu Indiana
Pacers 11-94 þar sem nýliðinn Josh
Boone var svo sannarlega betri en
enginn.
„Það er frábært að geta skilað
sínu inná vellinum,“ sagði Boone eft-
ir leikinn. Hann kom af bekknum og
hitti úr 11 af 13 skotum sínum utan
af velli og endaði með 22 stig sem er
það mesta sem hann hefur nokkurn
tíman gert. Hann tók einnig 10 frák-
öst.
„Ég hef æft vel og beðið þolin-
móður eftir tækifærinu, Nú hef ég
fengið að spila meira að undanförnu
og það er á mínu valdi að nýta það
sem best,“ sagði þessi geðþekki ný-
liði. Sex leikmenn Nets skoruðu
meira en 10 stig.
Það vantaði Jermaine O´Neal í lið
gestanna og munar um minna.
„Indiana spilaði í gær og voru
án þeirra besta manns sem við ein-
faldlega nýttum okkur til fulls,“ sagði
þjálfari Nets Lawrence Frank.
Þjálfari Indiana Rick Carlisle var
ekki kátur eftir leikinn og sagði að
byrjendamistök hefðu kostað þá
leikinn.
„Við vorum að skjóta afleitlega í
fyrri hálfleik. Hittum ílla og vorum
slakir sóknarlega. Það er ekki hægt á
móti svona góðu liði eins og Nets eru
og sérstaklega ekki á útivelli.“
Tvö lélegustu liðin í deildinni Atl-
anta og Charlotte Bobcats mættust
í Atlanta. Charlotte vann 101-87 á
heimavelli. Gerald Wallace var stiga-
hæstur heimamanna með 31 stig en
Josh Smith skoraði 25 stig fyrir gest-
ina og tók 15 fráköst en þetta var
fimmti tapleikur þeirra í röð. Tólfta
leikinn í röð vantaði Joe Johnson í lið
Atlanta sem er þeirra besti maður og
sagði þjálfarinn Mike Woodson að
hann gæti verið frá út tímabilið.
Magnaður leikur
Það þurfti tvær framlengingar
þegar Boston Celtic vann Orlando
105-96 í ótrúlegum körfuboltaleik.
Paul Pierce leikmaður Boston var
svo sannarlega stjarna leiksins og
skoraði þriggja stiga körfu og tryggði
framlengingu. Í henni skoraði hann
svo aftur lokakörfuna sem tryggði
Boston aðra framlengingu. Þar skor-
aði Boston 15 stig gegn aðeins 6 stig-
um gestanna og unnu eins og áður
segir 105-96.
Pierce var langstigahæstur
heimamanna með 32 stig en hjá Or-
lando var Hedo Turkoglu og Grant
Hill stigahæstir með 20 stig.
Í enn einum leik þar sem úrslit-
in réðust ekki fyrr en undir lokin var
viðureign Washington og Philadelp-
hia. Gestunum frá Philadelphia mis-
tókst að halda 17 stiga forustu í fjórða
leikhluta. DeShawn Stevenson skor-
aði 28 stig fyrir heimamenn og Caron
Butler 21. Hjá Philadelphia
Að lokum vann Toronto Miami
Heat 96-83 þar sem Chris Bosch
stjörnuleikmaður þeirra Toronto
manna náði tvöfaldri tvennu í 111.
skipti á ferlinum. Sigurinn kom Tor-
onto einnig í heimavallarrétt í fyrstu
umferð úrslitakeppninar. „Þegar
svona mikið af strákum í liðinu sem
er óvant úrslitakeppninni er gott að
byrja á heimavelli,“ sagði Chris Bosch
eftir leikinn en hann skoraði 13 stig og
tók 17 fráköst. Sex leikmenn heima-
manna skoruðu yfir tíu stig í leikn-
um.
Tröllið Shaquille O´Neill skoraði
mest fyrir meistara Miami eða 17 stig.
benni@dv.is
Fimmtudagur 29. mars 200718 Sport DV
Frákast Chris Wilcox númer 54 hjá
seattle er hér að taka frákast í sigurleik
liðsins á denver.
Farðu frá kallinn minn udonis Haslem
brýtur hér á Chris Bosch leikmanni
toronto raptors í nótt.
Mjótt á MunuM
í leikjuM
næturinnar
Ellefu leikir voru háðir í NBA í
nótt. Dallas vann sinn 60. leik á
tímabilinu en nánast allir leikir
næturinnar voru hnífjafnir og
spennandi, þar sem úrslitin réðust
á lokasekúndunum
NBA
nBa-úrslit
næturinnar
dallas - milwaukee 105-103
san antonio - New Orleans 92-88
denver - seattle 97-100
utah - minnesota 108-102
New York - Cleveland 97-93
New Jersey -indiana 118- 94
Charlotte - atlanta 101-87
Boston - Orlando 105-96
toronto - miami 96-83
atlanta - Charlotte 87-101
Houston - Clippers 92-87
sTAÐAN
U T
Austurdeildin
detroit 45 25
Cleveland 43 29
toronto 39 32
Washington 38 32
Chicago 42 30
miami 38 33
New Jersey 33 38
Orlando 33 39
indiana 31 40
New York 31 40
Philadelphia 28 43
Charlotte 27 45
atlanta 27 46
milwaukee 25 45
Boston 22 49
U T
Vesturdeildin
dallas 60 11
Phoeni 53 17
san antonio 51 20
utah 47 24
Houston 46 26
L.a. Lakers 38 33
denver 35 35
L.a. Clippers 34 37
golden state 33 39
New Orleans 32 40
sacramento 30 40
minnesota 30 41
seattle 29 42
Portland 29 42
memphis 18 54
NBA
Allt gert til að stoppa James
Leikmenn New York gera hér athyglis-
verða tilraun til að stoppa Lebron James.
Magnaður Okur tyrkinn mehmet Okur
er farinn að leggja það í vana að skora
sigurkörfur utah.
Steig upp Jason terry leikmaður dallas
steig upp í fjarveru dirk Nowitzki og
skoraði 27 stig.