Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Blaðsíða 13
DV Sport fimmtudagur 29. mars 2007 13 Sport Fimmtudagur 29. mars 2007 sport@dv.is Norður-Írar á topp F-riðils. Íslenska landsliðið beið lægri hlut fyrir spánverjum Í gær. bls. 14-15 „Þetta leit alveg nokkuð vel út en við gleymdum okkur í smástund og var refsað. Þannig er þetta bara þeg- ar leikið er gegn svona sterku liði,” sagði Ólafur Örn Bjarnason sem stóð sig vel í leiknum en hann fékk tækifæri í hjarta varnarinnar í fjar- veru Hermanns Hreiðarssonar. „Við getum verið sáttir við okkar frammistöðu. Það var náttúrulega við ofurefli að etja allan leikinn. Þeir komu sérstaklega grimmir í seinni hálfleikinn og náðu að ýta okkur aftar og aftar. Þegar maður leit á klukkuna og sá að það voru fimmtán mínútur eftir þá áttaði maður sig al- mennilega á því að þetta væri hægt.” Ólafur segir að leikmenn Íslands hafi verið ákveðnir í því fyrir leikinn að hafa gaman að þessu verkefni og gefa sig alla í það. „Menn voru ákveðnir að njóta þess að spila þennan leik. Það var alveg vitað mál að Spánn fengi fleiri færi í leiknum en við ætluðum að vera skipulagðir og aðstoða hvorn annan því ef það tekst þá er margt hægt,” sagði Ólafur Örn. Hann var heppinn að skora ekki sjálfsmark í fyrri hálfleiknum en átti þó einnig skot á hitt markið. „Ég hitti boltann ágætlega en ætlaði að reyna að fá snúning á boltann. Snúningur- inn kom hinsvegar ekkert og það er kannski ástæðan fyrir því að maður er í vörninni,” sagði Ólafur á léttu nótunum. Allt um leiki næturinnar í NBA NBA Töpuðu með sTolTi Við ofurefli að etja Elvar GEir MaGnússon skrifar frá Spáni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.