Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Blaðsíða 23
DV Lífsstíll fimmtudagur 29. mars 2007 23
LífsstíLL
Tveir fyrir einn í bíó
allir sem versla í Kringlunni á fimmtudögum fá tvo
miða á verði eins í Kringlubíó. Verslanir Kringlunnar
afhenda viðskiptavinum afsláttarmiða þegar við-
skipti eiga sér stað og hann er hægt að nota í bíó
um kvöldið eða eitthvert annað fimmtudagskvöld.
Ekki slæmt fimmtudagstilboð þetta.
Páskaeggin skreytt
Það lítur kannski ekki út fyrir að
vera svo flókið að mála á hænuegg en
það er þó ekki eins auðvelt og margir
halda. Fyrir það fyrsta þarf að blása
innan úr eggjunum. Það er gert með
því að stinga gat á eggið í sitthvorum
enda, til dæmis með stoppunál. Síð-
an er innihaldinu einfaldlega blás-
ið út úr eggjunum með því að blása
létt inn um annað gatið. Þegar egg-
ið er orðið tómt er það afar brothætt
og því þarf að handleika það af mik-
illi varúð. Ef föndrað er með litlum
börnum er betra að hafa eggin harð-
soðin því slík egg handleika þau auð-
veldlega. Leikskólar hafa verið dug-
legir við að bjóða upp á slíkt föndur
en harðsoðin egg geymast auðvitað
ekki eins vel og þau sem blásið hefur
verið innan úr.
Margir foreldrar eru reyndar ekki
sérlega hrifnir af því að láta börn sín
mála á harðsoðin egg þar sem þau
fúlna eftir nokkur tíma. Að vera með
slík fúlegg í íbúðinn alla páskana get-
ur verið erfitt og enn erfiðara er oft að
láta þau hverfa sérstaklega ef börnin
eru sérlega ánægð með þau. Þá eru
frauðegg eða plastegg betri kostur til
að láta börnin mála á en þau fást til
dæmis í versluninni Litir og föndur.
Litur úr lauk og pappír
Sumir hafa tekið upp þann sið að
láta börnin sín mála eitt egg á hverju
ári og merkja það síðan með nafni
og ártali. Þetta er skemmtilegur sið-
ur og gaman er að halda upp á eggin
og taka þau fram á hverjum páskum
og skreyta húsið með þeim. Börnin
hafa líka afar gaman af því að skoða
eggin þegar þau verða eldri.
Hægt er að nota allar gerðir
föndurlita þegar málað er á egg.
Sumir nota tússpenna til að teikna
mynstur og útlínur og mála svo
inn í. Einnig má líma allskonar
skraut á eggin eins og glansmynd-
ir, límmiða, fjaðrir, unga og annað
skraut.
Á heimasíðunni www.ismennt.
is/vefir/ari/paskar er að finna frá-
bærar leiðbeiningar á því hvern-
ig best sé að bera sig að í páska-
eggjaföndrinu. Þar má til dæmis
finna lýsingar á því hvernig hægt
er að nota laukhýði til þess að lita
eggin og hvernig litur er búinn til
úr kreppappír.
Þar er einnig stungið upp á því
að nota sand til skreytingar og
gefnar eru uppskriftir af leireggj-
um, filteggjum og vaxbatíkeggj-
um.
Á síðunni, sem Svalvör Gissur-
ardóttir á heiðurinn af, er einnig
að finna uppskrift af heimatilbún-
um súkkulaðipáskaeggjum.
Kynning á Kabbalah var haldin
í síðustu viku í Sjálfstæðishúsinu í
Kópavogi. Engar fregnir hafa borist
um hversu vel fundurinn var sótt-
ur, en sögusagnir eru um það á Net-
inu að þar hafi verið selt vígt vatn
á 6.500 krónur lítrann. Þær tölur
hafa ekki fengist staðfestar en hitt
er þó vitað að Kabbalah miðstöðv-
ar selja margar vörur sem eiga að
auðvelda tengingu fólks við æðri
anda. Þannig er hægt að kaupa
rauða bandið, sem sagt var frá í
grein hér í DV á föstudaginn var og
er sagt vera vernd gegn hinu „illa
auga”. Með bandinu fylgir bók um
það, sem heitir því einfalda nafni:
„Rauða bandið – máttur verndar-
innar” (The Red String: The Power
of Protection). Kostar bókin með
bandinu fjórtán bandaríkjadali eða
um eitt þúsund íslenskar krónur.
Þá er einnig hægt að kaupa á DVD
námskeið um hvernig auðveldast er
að meðtaka fræði Kabbalah. Slíkur
diskur kostar 199 dollara, eða rétt
rúmar 13.000 krónur. Sennilega ger-
ir því ekki sama gagn að kaupa rautt
garn í næstu prjónabúð og binda
um úlnliðinn eða hvað?
Kabbalah-gripir vinsælir:
rauða bandið á þúsund kall
Tími páskaföndursins er runninn upp í allri sinni litadýrð. Tilvalið er að eyða helginni
í fjölskylduföndur og skreyta húsið hátt og lágt enda einungis vika í páska.
Gaman saman Það getur verið mjög gaman að hóa
fjölskyldumeðlimum saman í páskaeggjaföndur. Ef
menn vilja ekki mála á hænuegg fást frauðegg og egg úr
plasti í föndurvöruverslunum sem auðvelt er að mála á.
Rauða bandið veRndaR
sennilega er ekki nóg að kaupa
venjulegt prjónagarn til að fá
vernd gegn hinu illa auga...
ekki henda
farsímanum
gamlir farsímar geta öðlast nýtt líf í
höndum Vodafone sem yfirfer þá og
lagfærir og sendir til þróunarríkja. Þó
síminn sé illa farinn og talinn ónýtur
er alltaf hægt að endurvinna hluti úr
honum og nota á nýjan leik. Í
þróunarríkjunum koma farsímarnir
að sérlega góðum notum þar sem
þeir eru ekki álitnir munaðarvara
heldur nauðsynlegt öryggis og
samskiptatæki. Þeir sem skila inn
gamla farsímanum sínum þegar þeir
kaupa sér nýjan fá þar að auki afslátt.
LífsförunauTur-
inn fundinn
Nýr stefnumótavefur sem hefur það
að markmiði að fólk finni sinn
lífsförunaut opnaði nýverið á slóðinni
www.forunautur-
inn.is. Það er
rannveig
guðlaugsdóttir
sem stendur á bak
við þennan nýja vef
sem flokkar fólk
niður í hópa eftir
ákveðnum
spurningarlista.
allir þáttakendur
fara síðan á fræðandi fyrirlestur um
samskipti kynjanna og táknmál
líkamans. fyrirlesturinn er á virkum
degi og síðan er farið saman í
dagsferð á laugardegi. fulltrúi frá
Lífsförunautinum er alltaf með í för
sem kemur í veg fyrir vandræðleg
augnablik. Næsti fyrirlestur er
áætlaður þann 17. apríl svo það er
um að gera að skrá sig.
að vera veL girTur
margar konur sem ganga mikið í
skyrtum kannast við það vandamál
að þurfa endalaust að vera að girða
sig þar sem
skyrtan virðist
alltaf vera á
fleygiferð. Versluin
sautján selur góða
lausn á þessu
vandamáli en þar
fást nú kvenn-
mannsskyrtur frá
bæði imperial og
Please sem er
óvenjugott að girða ofan í buxur.
skyrturnar eru í samfelluformi og eru
smelltar í klofinu. Þetta gerir það að
verkum að skyrtan hoppar aldrei upp
úr buxnastrengnum og maður er vel
girtur allan daginn.
ókeypis
bridgekennsLa
garðsapótek við sogaveg gefur þeim
sem heimsækja apótekið ókeypis
bækling um brigde. Bæklingurinn er
settur saman af apótekaranum Hauki
inga og kennir reglurnar í þessarri
skemmtilegu íþrótt. Þar að auki
inniheldur hann einfalt en árangurs-
ríkt bridgekerfi til að nota í heima-
húsum og í keppnum. Þess má líka
geta að apótekið býður upp á
heimsendingarþjónustu fyrir þá sem
búa í hverfum 103,104,105 og 108.