Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 3
www.icelandexpress.is/afangastadir Kaupmannahöfn og Billund D a n m ö r k Kaupmannahöfn Endalaust úrval í verslunum á Strikinu. Veitingahús, barir og kaffihús á hverju götuhorni, svona næstum því. Tívolí, tívolí, tívolí-hí-hí. Nútímalistasafnið Louisiana, Glyptoteket og fleiri góð söfn fyrir listhneigða. Nýja óperan, djassbúllur, tónleikastaðurinn Vega o.fl. Besta bruggið í bransanum. Billund Fríríkið Lególand er í Billund. Vinalegt fólk, sk. legókallar og -konur. Taj Mahal og Frelsisstyttan o.fl., í smækkaðri mynd. Fjölskylduvænn bær, allt fyrir krakkana. Stutt í safarí- og dýragarðinn Løveparken. Ekta dýr, engir legókubbar. Tilvalinn staður til að leigja sumarhús. ÓSLÓ Karl Johan, er aðalgatan, skrepptu þangað, þá veistu líka að þú ert í miðbænum. Akershus höllina og virkið verða allir að skoða. Akersbryggja er með allar flottu búðirnar. Holmenkollen, 62 m upp í loftið, skjálfandi á beinunum. Norðmenn eru íþróttamenn. Skíðastökkpallur inni í miðri borg! Það er gott að borða í Ósló, bragðaðu á síld úr norsk-íslenska stofninum eða glænýrri rækju. Og söfnin: Munch-safnið, spurning hvað sé inni hjá þeim? Víkingatíminn, nútímalist, Ibsen-safnið, þetta er allt að finna í Ósló. Grieg eða leifar af Aha!, djass eða þjóðdansar, allur pakkinn. Nóbelinn ... norskur! Árleg athöfn í ráðhúsinu. N o r e g u r STOKKHÓLMUR OG GAUTABORG S v í þ j ó ð Stokkhólmur Borg áhyggjuleysis og lífsnautna – ekki of heit, ekki of köld. Passleg. Ef þér þykir full stutt að fara til Óslóar og nennir ekki alla leið til Helsinki, þá er Stokkhólmur rétti staðurinn fyrir þig. Ljósir lokkar, blá augu, kjötbollur og kóngafólk. Hvað gæti hugsanlega farið úrskeiðis? Grúsk í Gamla Stan, miðnætti í miðbænum eða kannski bara rólegheit í Rinkeby? Gautaborg Vinalegasta stórborg heims, eða svo segja þeir. Taktu sporvagninn, skoðaðu styttuna af Póseidoni og skelltu þér svo á safn. Verslaðu eins og þú lifandi getur. Nordstan, Arkaden, Kompassen hafa að geyma allt sem hugurinn girnist. BEINT F LUG FR Á AKURE YRI OG EGILSS TÖÐUM TIL KÖB EN: 1. JÚNÍ –31. ÁG ÚST NÝR ÁFA NGA STAÐ UR! NÝRÁFANGASTAÐUR! ÞEIR FYRSTU FÁ BESTA VERÐIÐ!BÓKAÐU NÚNA Áwww.icelandexpress.is Frændur okkar á Norðurlöndum hafa margt forvitnilegt fram að færa, svo mikið er víst. Og leiðin er greið fyrir þig, því Iceland Express flýgur á hverjum degi til Kaupmannahafnar og í sumar bætast svo við Billund, Stokkhólmur, Gautaborg og Ósló þegar áfangastaðirnir verða þrettán í Evrópu. Til að tryggja sér besta verðið er um að gera að bóka draumafríið núna á www.icelandexpress.is. Þú finnur allar nánari upplýsingar um sumaráætlun Iceland Express og áfangastaðina á www.icelandexpress.is/afangastadir 13ÁFANGASTAÐIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.