Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Page 27
Meira rokk! Dóri DNA fór á Músíktilraunir Ég var búinn að fá mér Nóa Kropp og ískalt gos, sestur í sætið, grimm- ur og nú vildi ég bara fá að heyra rokk. Sigurvegarar Músíktilrauna frá því í fyrra Foreign Monkeys byrj- uðu kvöldið af hneggjandi krafti, allt saman mjög viðeigandi. Fyrsta hljómsveit kvöldsins var Soðin Skinka, satanískt, eighties- skotið glysrokk frá Hvanneyri. Söngvarinn var með staf og uppröð- un hljómsveitarinnar minnti helst á Spinal-Tap. Með Highlander-við- leitni hóf söngvarinn upp raust, og svo var gamanið búið. Tónninn vanþróaður og dauft yfirbragð yfir lögunum. Hló smá þegar hljóm- borðsleikarinn dró upp risavaxinn Zippo-kveikjara. Næstir á svið voru Hip Razi- cal frá Sauðarkróki. Bassaleikar- inn fékk strax eitt rokkprik fyrir að ganga í treyju merktri Paul Pierce úr Boston Celtics. Fínt ungmennarokk sem innihélt fínar söngmelódíur, sprækan söngvara og röff bassaleik en bandið var greinilega ekki vant svona stóru sviði og lögin hefðu flest mátt vera þéttari. The Portals voru þriðja band kvöldsins. Beint úr Foldaskóla með kraftmikið indírokk, smekklegar laglínur, en því miður gat söngvar- inn ekki samsvarað undirleiknum. Eins og sagt var í skemmtiþættin- um Gætt‘ að hvað þú gerir frá árinu 1982, þá vantaði bara herslumun- inn. Besta lagið var það síðasta, We Are the Portals. Hljómsveitin The Custom kom allaleið úr Borgarnesi og hafði með sér eitt stykki Hammond. Þeir spiluðu langdregna og half-úrelta blústónlist. Hammondinn náði að djassa upp tempóið af og til, en því miður fylgdu í kjölfarið sóló sem að- eins eru spiluð í Guantanamo Bay. Á hárréttum tíma stigu Gor- don Riots á svið. Tryllt og grjóthart rokk, eins og miltisbrandssmurður rýtungur í hljóðhimnurnar. Voru meira að segja nokkuð satanískir á köflum. Dúndur-sveit sem mun eiga sér dúndur framtíð, með flott- an söngvara og bassaleikara Til- raunanna í ár. Loopyloo voru krúttlegir með Dead-bindi. Tónlistin var of Maus- leg fyrir minn smekk og líklega voru piltarnir bara aðeins of ungir til að rokka fast. Vil þó sjá meira af bassaleikaranum í framtíðinni, ekki endilega í tónlist, heldur kannski sjá hann eftir tíu ár og athuga hvort hann sé ekki góður á því. Joy Di- vision-lega lokalagið Drulla var best. Svo kom hlé og allt datt í dúnalogn. Svo var komið að hljómsveit kvöldsins, að mínu mati. Það var stuðbandið <3 Svanhvít, sem var með eina 12 meðlimi innanborðs, þar á meðal einn sem spilaði á kúst- skapt. Hresst band, nokkurskon- ar parodí á Benna Hemm Hemm krúttíbollurnar. Dúndur skemmti- leg tónlist, hressir textar. Þessi hljómsveit á beint erindi í tónlistar líf landsins, með stórkostlega sviðs- framkomu þar að auki. Svanhvít ég elska þig. Á eftir þeim komu Magnyl úr Garðabæ. Vafalaust band sem á framtíðina fyrir sér, en lögin voru hreinlega ekki nógu spennandi. Þurfa halda áfram að spá og spek- úlera og finna sitt rétta sánd. Brak- andi stökkur trommuleikur og lag tvö mjög flott. Halda bara áfram að rokka. Spooky Jetson voru næstir. Virkilega vel spilandi strákar sem kunnu á hljóðfærin sín, en hins- vegar var frumleikinn á lágmarki. Eitthvað grúví hipparokk, útsubb- að af sólóum. Einfaldlega eins og með flestar af þeim hljómsveitum sem komast áfram úr sal, þá áttu Spooky Jetson einfaldlega ekkert erindi í úrslit keppninnar, þannig er nú bara það. Næst steig ekki aðeins hljómsveit á svið, heldur rigndi handsprengj- um. Metall-bandið Shogun keyrði allt upp í rassgat og voru kraftmeiri en .357 magnum. Grimmir og hrá- ir, fengu strax 17 þúsund rokkprik fyrir músíkina en ég bætti við þús- und, eftir að trommarinn hreinlega myrti settið. Ótrúlega sannfærandi gæjar, sigurvegarar kvöldsins, að mínu mati næstbestir. Á eftir þeim fylgdu Skyreports úr Keflavík. Háskóla-pönk-rokk, svona eins og beint út Kalíforníu. Það vantaði svo sem ekkert upp á, en það að sjá íslenskt band spila svona úþynnt, dæmigert og gervi- legt kana-drasl er eins og að sjá Lunda-pysju í hamborgarabrauði. Þið afsakið. Dúndurkvöld og allar þær hljómsveitir sem komust upp á pall, eiga eflaust eftir að láta mikið að sér kveða á komandi árum. Úrslit Músíktilrauna 2007 1. sæti – Shogun 2. sæti - Svanhvít 3. sæti – Gordons Riot <3 Svanhvít lennti í öðru sæti Einn tólf meðlima sveitarinnar spilaði bara á kústskaft. Shogun Sigurvegarar Músíktilrauna 2007. Eins og handsprengjuregn Nánast ríkti stríðsástand meðan að Shogun var á sviði. Gordon Riots Rokkuðu sig alla leið í þriðja sæti. PÁSKAMYNDIN Í ÁR TOPPMTNDIN Í USA! !óíbí.rk054 Gildir á allar sýningar í Borgarbíó merktar með rauðu !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á TMNT kl. 3, 6 og 8 B.I. 7 ÁRA SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 3, 5.45, 8 og 10.15 THE ILLUSIONIST kl. 3, 5.45, 8 og 10.15 THE HITCHER kl. 10 B.I. 16 ÁRA VENUS kl. 3, 6 og 8 B.I. 12 ÁRA THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 10 B.I. 16 ÁRA TMNT kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.I. 7 ÁRA SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 SCHOOL FOR SC. SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 THE HITCHER kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA EPIC MOVIE kl. 2, 4, 6 og 8 B.I. 7 ÁRA THE NUMBER 23 kl. 10 B.I. 16 ÁRA NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3.20 og 5.40 ANNA OG SKAPSVEIFLURNAR kl. 2 Stuttmynd TMNT kl. 2, 4, 6 og 8 B.I. 7 ÁRA HOT FUZZ kl. 5.45, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA THE HITCHER kl. 10 B.I. 16 ÁRA NORBIT kl. 2 og 4 FRÁ FRAMLEIÐENDUM TEXAS CHAINSAW MASSACRE OG THE AMITYVILLE HORROR MEÐ SOPHIA BUSH OG SEAN BEAN „FRÁBÆR LEIKUR OG EFTIRMINNILEG MYND!“ - B.S., FRÉTTABLAÐIÐ STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA Bardagafimu skjaldbökurnar eru mættar aftur í flottustu ævintýrastórmynd ársins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.