Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 17
DV Sport mánudagur 2. apríl 2007 17 ÍÞRÓTTAMOLAR Bordeaux deildaBikarmeistari Henrique var hetja franska liðsins Bordeaux sem bar sigur úr býtum um helgina í úrslitaleik franska deildabik- arsins. Hann skoraði sigurmarkið gegn lyon þegar aðeins mínúta var eftir af venjulegum leiktíma en það var eina mark leiksins. lyon var talið sigurstranglegra liðið enda með örugga forystu í deildinni og á sinn sjötta meistaratitil í röð vísan. Bordeaux er í þriðja sætinu, 21 stigi á eftir lyon. Íslandsmótið Í júdó um nítíu keppendur tóku þátt í íslands- meistaramótinu í júdó sem fram fór í Breiðholti um helgina. Þorvaldur Blöndal varð tvöfaldur íslandsmeistari í karlaflokki en hann sigraði bæði í -100 kg flokki og einnig í opnum flokki karla. í kvennaflokki skiptu gígja guðbrandsdóttir og anna Soffía Víkingsdóttir titlunum með sér, anna sigraði í -70 kg flokki en í opnum flokki kvenna sigraði gígja. ólafur með sjö mörk Ólafur Stefánsson skoraði sjö mörk fyrir Ciudad real um helgina þegar liðið vann Torrevieja með sjö marka mun á útivelli, 32-25, í spænsku úrvalsdeildinni. Ciudad real er í harðri baráttu við portland San antonio um spænska meistaratitilinn en aðeins munar einu stigi á liðunum. í Þýskalandi voru margir íslenskir leikmenn sem komust á blað um helgina. Þar á meðal Einar Örn Jónsson sem skoraði fimm mörk í 27-21 sigri minden á botnliði Eintracht Hildesheim. Snorri Steinn guðjónsson skoraði tvö mörk í leiknum. deila ekki vellinum Bandaríkjamaðurinn george gillett, annar eiganda liverpool, segir að það séu engar áætlanir uppi um að deila nýjum velli með erkifjendunum í Everton. Borgaryfirvöld í liverpool vilja að liðin leiki á sameiginlegum velli en gillett segir það ekki koma til greina. Byggja á nýjan leikvang fyrir liverpool sem mun heita Stanley park. „Ég hef orðið var við það að stuðningsmenn vilja alls ekki að við deilum velli. Ég vil því koma á framfæri að við munum alls ekki deila okkar velli,“ sagði gillett. vidic frá Í mánuð Serbneski varnarmaðurinn nemanja Vidic hjá manchester united mun ekkert spila næsta mánuðinn þar sem hann fór úr axlarlið í leiknum gegn Blackburn. Þetta er mikið áfall fyrir united þar sem Vidic hefur verið einn besti varnarmaður ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Fleiri varnarmenn eru á meiðslalista united en þar á meðal er fyrirliðinn gary neville. í fyrstu var óttast að Vidic yrði frá út tímabilið en svo kom í ljós að hann hefði ekki brotið neitt bein heldur farið úr axlarlið. Craig Catchart hefur verið kallaður upp úr unglingalið- inu og mun ferðast með united til ítalíu þar sem liðið mætir roma á miðviku- dag. rúnar skoraði rúnar Kristinsson skoraði eina mark lokeren þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Westerlo í belgísku deildinni á laugardag. Það var strax í byrjun leiks sem rúnar skoraði en lokeren er í fallbaráttu í deildinni og er sem stendur í þriðja neðsta sæti. allt útlit er fyrir að rúnar muni klæðast búningi Kr á komandi sumri en hann er á heimleið eftir tímabilið í Belgíu. michael Phelps setti nýtt met með sjö gullverðlaunum í Melbourne: Í hóp fremstu íþróttamanna heims Bandaríski sundkappinn Michael Phelps náði sögulegum árangri á heimsmeist- aramótinu í sundi sem lauk í Melbourne í Ástralíu í gær. Hann gerði sér lítið fyrir og vann til sjö gullverðlauna en engum öðrum hefur tekist að vinna fleiri en það. Fyrra metið átti hinn ástralski Ian Thorpe sem vann á sínum tíma sex gullpeninga á einu heimsmeistaramóti. Phelps, sem er 21. árs, er klárlega fremsti sundmaður heims í dag en einn- ig meðal fremstu afreksmanna íþrótta- heimsins. Sagt hefur verið að hann geti gert allt í vatni, nema að ganga á því. „Hann er í sama flokki íþróttamanna og Tiger Woods er í golfinu og Michael Jor- dan var í körfuboltanum. Ég tel ekki langt þangað til að talað verði um hann sem besta sundmann í sögunni,“ sagði Mi- chael Rosenber, sundsérfræðingur, frá Detroit. Phelps vann sín sjöundu gull- verðlaun þegar hann sló eigið heimsmet í 400 metra fjórsundi er hann synti á 4 mínútum og 6,22 sekúndum. Hann bætti fyrra metið um rúmar tvær sekúndur sem er ótrúlegt afrek. Hann var óheppinn að vinna ekki til átta gullverðlauna en í 4x100 metra fjórsundi var bandaríska sveitin dæmd úr leik vegna rangrar skiptingar. „Þetta hefur verið mjög erfitt og ég er algjörlega búinn á líkama og sál. Mér leið ekki vel í morgun í upphitun en ákvað að hugsa ekki út í það heldur það sem ég hef gert á æfingum fyrir mótiðm“ sagði Phelps sem setti fimm heimsmet á mótinu. elvargeir@dv.is ótrúlegur íþróttamaður phelps vann sjö gullverð- laun í melbourne og setti fimm heimsmet. „Þetta var hörkuleikur af okkar hálfu og við spiluðum virkilega vel varnarlega,“ sagði Ágúst Björgvinsson, þjálfari kvennaliðs Hauka, sem munu mæta Keflavík í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Haukar lentu í oddaleik gegn ÍS og unnu þar öruggan sigur 81-59 á laug- ardag. Reyndar kom það mörgum á óvart að einvígi þessara liða skyldi hafa farið í oddaleik og segir Ágúst að það hafi ekkert komið sér á óvart. „Flestir héldu að við myndum taka þetta einvígi svona 3-1 eða 3- 0. Ég gerði mér hinsvegar sjálfur al- veg grein fyrir því að þetta yrðu ekki léttir leikir. Þessi lið hafa undanfar- in ár spilað mikið af úrslitaleikjum. Við fórum í oddaleik gegn þessu liði í fyrra og duttum út úr bikarnum gegn þeim,“ sagði Ágúst en það voru heimavellirnir sem skiluðu sigrum í þessu undanúrslitaeinvígi. Allir sig- urleikir Hauka voru að Ásvöllum og báðir sigrar ÍS komu á heimavelli. „Ég vissi að þetta yrði aldrei auð- velt. Þær hafa rosalega góðan mann- skap og í fyrsta sinn í vetur má segja að þær hafi náð að stilla upp sínu sterk- asta liði gegn okkur í vetur. Við viss- um að þetta væri í raun ekki sama lið sem við værum að mæta og það mátti búast við hverju sem er. Það er samt alveg ljóst að við spiluðum ekki nægi- lega vel í þessum útileikjum,“ sagði Ágúst. Í oddaleiknum segir hann sitt lið þó hafa verið nálægt sínu besta. „Við spiluðum rosalega vel varn- arlega og með því koma mörg hraða- upphlaup. Við erum hinsvegar ekki að hitta nægilega vel og við eigum inni þar. Skotanýtingin okkar getur verið betri,“ sagði Ágúst. Haukastúlkur byrj- uðu mun betur í leiknum á laugardag og voru 45-29 yfir í hálfleik. Þær unnu þriðja leikhluta með tólf stiga mun en slökuðu síðan aðeins á í fjórða leik- hluta. Þar skoruðu leikmenn ÍS meira en það dugði þó ekki til. Ifeoma Okonkwo var stigahæst í liði Hauka í leiknum með 30 stig og Helena Sverrisdóttir kom næst með sautján auk þess sem hún tók tólf fráköst. Signý Hermannsdóttir var best í liði ÍS með sextán stig og þrett- án fráköst. Haukastúlkur munu mæta Kefla- vík í úrslitaeinvíginu. Keflavíkurstúlk- ur tryggðu sér sigur í undanúrslita- einvígi gegn Grindavík með því að vinna fimmtán stiga sigur á útivelli á föstudag, 76-91. María B. Erlingsdótt- ir skoraði 22 stig og tók átta fráköst þar að auki fyrir Keflavík á föstudag en Bryndís Guðmundsdóttir skoraði átján stig. Hildur Sigurðardóttir skor- aði 22 fyrir Grindavík og var stigahæst í liðinu. Ágúst reiknar með hörkuleikjum milli Hauka og Keflavíkur, tveggja bestu körfuboltaliða landsins í kvennaflokki. „Leikir milli Hauka og Keflavíkur í vetur hafa verið hörku- leikir og mikil skemmtun fyrir áhorf- endur. Við vitum það að við þurfum að eiga mjög góðan dag til að ná að leggja Keflavík,“ sagði Ágúst. Spurður út í styrkleika Keflavíkurliðsins sagði hann ekkert eitt standa þar upp úr. „Keflavíkurliðið hefur mikla breidd og mikla hefð á bakvið sig. Þær hafa margar stelpur sem geta gert ýmislegt og því ekkert eitt sérstakt sem þarf að stoppa. Ef við náum því þá vinnum við Keflavík.“ elvargeir@dv.is EiguM Enn EiTThvAð inni fyRiR KEfLAvÍKuRLEiKinA Það varð ljóst á laugardag að Haukar munu mæta Keflavík í úrslitaeinvíginu um Ís- landsmeistaratitil kvenna í körfubolta. Haukastúlkur unnu öruggan sigur í oddaleik gegn ÍS á heimavelli sínum. sigursæll þjálfari ágúst Björgvinsson hefur náð athyglisverð- um árangri hjá Haukum. lögðu Ís Haukastúlkur lögðu íS örugglega í oddaleiknum á laugardag. Undanúrslit úrslitakeppni kvenna ÚrSliT lEiKJa í ViðurEign HauKa og íS: 31. mars: Haukar - íS 81-59 29. mars: íS - Haukar 87-77 27. mars: Haukar - íS 78-61 25. mars: íS - Haukar 84-74 22. mars: Haukar - íS 76-61 ÚrSliT lEiKJa í ViðurEign KEFlaVíKur og grindaVíKur: 30. mars: umFg - Keflavík 76-91 27. mars: Keflavík - umFg 99-91 24. mars: umFg - Keflavík 100-94 22. mars: Keflavík - umFg 87-84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.