Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Síða 15
Oft hefur maður séð eldmóð og baráttu leikmanna meiri en í Safa- mýrinni þennan sunnudagseftir- miðdag. Framarar náðu snemma frumkvæði í leiknum og höfðu yfir 9-6 um miðjan fyrri hálfleik. Munur- inn á liðunum var þó ekki nema eitt til tvö mörk það sem eftir lifði hálf- leiksins og munaði þar mestu um góða spretti hægri hornamanns Ak- ureyrar, Nikolaj Jankovic, sem skor- aði fimm mörk í hálfleiknum og var þeirra bestur. Frískastir í liði Framara voru þeir Stefán Baldvin Stefánsson og Einar Ingi Hrafnsson, sem virðist vera að ná sér á strik eftir erfið meiðsl í upp- hafi tímabils. Staðan í hálfleik 15-14 fyrir heimamenn. Í upphafi síðari hálfleiks dró í sundur með liðunum og Framarar juku forystu sína í 21-16 eftir um tíu mínútna leik. Mestu munaði þar um góðan leik markvarðarins Magnús- ar Erlendssonar, sem varði á köflum meistaralega í marki Fram. Þegar um það bil tíu mínútur lifðu leiks virtist öll nótt úti fyrir Akureyr- inga. Framarar með sex marka for- ystu 25-19 og fátt annað í spilunum en stórsigur heimamanna. Þá virtust Akureyringar vakna upp við vondan draum og Hreiðar Levý landsliðs- markvörður hrökk í gírinn. Með stórbættum varnarleik og góðri markvörslu náðu Akureyring- ar að vinna sig inn í leikinn og þeg- ar um það bil tvær mínútur voru eftir var staðan skyndilega orðin 27-26 og spenna hlaupin í leikinn. Það var svo miðjumaðurinn snaggaralegi Sigfús Páll Sigfússon sem gerði út um von- ir Akureyringa með góðu skoti utan af velli fjörutíu sekúndum fyrir leiks- lok. Akureyringum tókst svo ekki að nýta næstu sókn sína og tíminn því orðinn of naumur fyrir gestina til að rétta sinn hlut. Niðurstaðan varð því tveggja marka sigur Framara 29-27 í leik sem hefði ekki þurft að bjóða upp á mikla spennu í lokin. Í liði Fram- ara voru Andri Berg Haraldsson og Magnús Erlendsson bestir heilt yfir og drógu vagninn ásamt Hirti Hin- rikssyni, sem átti góða innkomu. Það hlýtur þó að teljast áhyggju- efni fyrir Framara að Sigfús Páll og Jóhann Gunnar skoruðu aðeins sitt hvort markið í leiknum og létu lít- ið að sér kveða í sóknarleik liðsins. Hreiðar Levý stóð upp úr liði Ak- ureyrar en einnig áttu þeir Hörð- ur Fannar Sigþórsson og Jankovic ágætan leik. „Við kláruðum leikinn allavega,“ sagði Framarinn Stefán Baldvin, hress að vanda. „Við eigum það til að missa hausinn í leikjum, missum einbeitinguna og förum ekki eftir því sem Gummi leggur upp með. Það er samt jákvætt að Magnús var alveg frábær í seinni hálfleik og Andri Berg var góður. Vörnin hefur verið góð í undanförnum leikjum og hefur skilað okkur sigrum upp á síðkastið. Eina áhyggjuefnið er að sóknarleikurinn hefur verið slakur. Það jákvæða er þó að við vinnum þrátt fyrir að Jóhann og Sigfús skori aðeins eitt mark hvor. En þvílíkt Bal- ic mark hjá honum Siffa,” sagði Stef- án að lokum og minnti á að króatíski landsliðsmaðurinn Ivano Balic ætti afmæli. Kristinn Guðmundsson DV Sport mánudagur 2. apríl 2007 15 DHL-DeiLD karLa Stjarnan - ÍR 25-26 (13-16) Mörk Stjörnunnar: Björn Óli Guð- mundsson 7, Volodymir Kysil 6, Arnar Theodórsson 6, Ívar Már Markússon 2, David Kekelia 1, Elías Már Halldórsson 1, Guðmundur Guðmundsson 1, Björn Friðriksson 1. Varin skot: Roland Valur Eradze 10, Árni Þorvarðarson 6. Mörk ÍR: Ólafur Sigurjónsson 10, Erlendur Stefánsson 5, Jóhann Heiðar Gunnarsson 3, Björgvin Hólmgeirs- son 3, Davíð Georgsson 2, Ragnar Helgason 2, Ólafur Sigurgeirsson 1. Varin skot: Jacak Kowal 7, Lárus Ólafsson 6. HK - Valur 29-22 (11-9) Mörk HK: Valdimar Fannar Þórsson 8, Sergei Petraytis 7, Tomas Eitutis 7, Augustas Strazdas 4, Brynjar Freyr Valsteinsson 1, Sigurgeir Árni Ægisson 1, Ragnar Hjaltested 1. Varin skot: Egidijus Petkevicius 17. Mörk Vals: Markús Máni Michaelsson 9, Ægir Hrafn Jónsson 2, Elvar Friðriks- son 2, Gunnar Harðarson 2, Davíð Höskuldsson 2, Ernir Hrafn Arnarson 2, Fannar Friðgeirsson 1, Arnór Gunnars- son 1, Sigurður Eggertsson 1. Varin skot: Ólafur H. Gíslason 9, Pálmar Pétursson 5. Fylkir - Haukar 26-24 (13-12) Mörk Fylkis: Arnar Jón Agnarsson 12, Heimir Örn Árnason 5, Vladimir Ðuric 3, Ingólfur Ragnar Axelsson 2, Guðlaugur Arnarsson 2, Kristján Geir Þorsteinsson 1, Ingvar Grétarsson 1. Varin skot: Hlynur Morthens 19. Mörk Hauka: Guðmundur Þórir Pedersen 5, Gísli Jón Þórisson 5, Kári Kristján Kristjánsson 4, Árni Þór Sigtryggson 3, Freyr Brynjarsson 2, Sigurbergur Sveinsson 2, Andri Stefan Guðrúnarsson 1, Samúel Ívar Árnason 1. Varin Skot: Magnús Sigurðsson 10, Björn Ingi Friðsþjófsson 1. Fram – Akureyri 29-27 (15-14) Mörk Fram: Andri Berg Haraldsson 9, Einar Ingi Hrafnsson 7, Hjörtur Hinriks- son 5, Stefán Baldvin Stefánsson 5, Þorri B. Gunnarson 1, Sigfús Páll Sigfús- son 1 og Jóhann Gunnar Einarsson 1. Varin skot: Magnús Erlendsson 15/1 og Björgvin Páll Gústavsson 3. Mörk Akureyri: Nikolaj Jankovic 6, Hörður Fannar Sigþórsson 5, Magnús Stefánsson 5, Goran Gusic 3, Ásbjörn Friðriksson 2, Rúnar Sigtryggson 1, Heiðar Þór Aðalsteinsson 1, Atli Ævar Ingólfsson 1 og Einar Logi Friðjónsson. Varin skot: Hreiðar Levý Guðmunds- son 15/1 og Sveinbjörn Pétursson 3. Staðan: Valur 18 13 1 4 510:473 27 HK 18 12 3 3 496:453 27 Fram 18 10 2 6 541:499 22 Stjarnan 18 9 0 9 488:486 18 akureyri 18 7 2 9 481:498 16 Haukar 18 4 4 10 501:525 12 Fylkir 18 5 2 11 497:529 12 ír 18 5 0 13 506:557 10 Næstu leikir: ÍR-HK 11. apr. 16:00 Haukar-Stjarnan 11. apr. 16:00 Akureyri-Fylkir 11. apr. 16:00 Valur-Fram 12. apr. 20:00 DHL-DeiLD kvenna Valur-grótta 20-29 HK-Haukar 29-25 íBV-FH 37-17 Stjarnan-akureyri 36-18 Staðan: Stjarnan 21 18 1 2 660:426 37 grótta 22 14 3 5 556:486 31 Valur 21 13 2 6 555:501 28 Haukar 22 13 1 8 611:559 27 HK 21 10 1 10 577:623 21 Fram 21 9 3 9 495:517 21 íBV 22 8 2 12 539:583 18 FH 21 2 2 17 469:606 6 akureyri 21 1 1 19 416:577 3 Næstu leikir: Fram-ÍBV 10. apr. 19:00 FH-Stjarnan 10. apr. 19:00 Akureyri-HK 10. apr. 19:00 Haukar-Valur 11. apr. 18:00 Haukar komnir í kreppu Andri í færi andri Snær Stefánsson, leikmaður akureyrar, náði ekki að nýta þetta dauðafæri gegn Fram í gær. andri komst ekki á blað og það munaði um minna fyrir akureyri. Lítið um eLdmóð Framarar styrktu í gær stöðu sína í þriðja sæti DHL deildar karla í handbolta er liðið lagði Akureyri í fremur bragðdaufum leik. Leikurinn virtist skipta liðin litlu máli en Andri Berg Haraldsson skoraði níu mörk í 29-27 sigri Fram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.