Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Side 12
mánudagur 2. apríl 200712 Sport DV Leik HK og Vals á laugardag var beð- ið með eftirvæntingu af handbolt- aunnendum. Þarna voru að mætast tvö efstu lið deildarinnar. Leikurinn var þó ekki eins spennandi og margir bjuggust við en heimamenn réðu lög- um og lofum í Digranesinu og unnu á endanum sjö marka sigur 29-22. „Við bara spiluðum frábærlega all- ar 60 mínúturnar og vorum enn betri í seinni hálfleik. Við höfum í mörg- um leikjum slakað of mikið á og ver- ið lélegir á lokakaflanum en þarna náðum við að halda sama dampi all- an leikinn,“ segir Valdimar Þórsson, leikmaður HK, en hann var frábær á laugardaginn. Hann skoraði mest HK-inga eða átta mörk en á eftir hon- um komu Sergei Petraytis og Tomas Eitutis sem skoruðu sjö hvor. HK var með frumkvæðið í fyrri hálfleik, náði mest þriggja marka for- skoti og hafði yfir 11-9 þegar gengið var til búningsherbergja. Liðið kom grimmt út í seinni hálfleikinn og hélt áfram að spila virkilega góðan hand- bolta. Ekki var veikan blett að finna. Varnarleikur HK var mjög öflugur og hreyfaleikinn mikill. Þetta skilaði al- gjörlega sanngjörnum sjö marka sigri en Valsmenn áttu engin svör. Framundan er einvígi þessara tveggja liða um Íslandsmeistaratitil- inn en með sigrinum jafnaði HK lið Vals að stigum. Valsmenn eru í örlítið betri málum að því leyti að þeir hafa betur í innbyrðis viðureignum gegn HK og sigri bæði lið alla þá leiki sem þau eiga eftir standa þeir uppi sem sigurvegarar. „Það var aldrei annað í mynd- inni hjá okkur en að vinna þennan leik, sama hvort það væri með einu marki eða fleirum. Valsmenn áttu bara ekki möguleika. Þeir hefðu bara getað tryggt sér titilinn með sigri en núna þurfa þeir að fara í mjög erf- iða leiki þar sem allt getur gerst. Þeir hafa örugga viljað jafnmikið og við vinna þennan leik en við vorum bet- ur tilbúnir. Þá vorum við á heimavelli og stemningin í húsinu var svakaleg. Allt var með okkur og við náðum fram toppleik,“ sagði Valdimar. „Nú er það bara að klára þessa þrjá leiki sem við eigum eftir og athuga hvort að Vals- menn haldi það út.“ HK á eftir að leika gegn ÍR í Breið- holtinu, Haukum á heimavelli og svo gegn Akureyri fyrir norðan í loka- umferðinni. Valur á hinsvegar eftir að taka á móti Fram og ÍR og í loka- umferðinni leikur liðið gegn Hauk- um á Ásvöllum. Fyrir tímabilið voru ekki margir sem bjuggust við að HK myndi berjast um Íslandsmeistaratit- ilinn en félagið á nú möguleika á því að hampa sínum fyrsta í sögunni. „Við erum með mjög breytt lið frá því í fyrra. Það er mikið af nýjum mönnum en samt sem áður small þetta ótrúlega fljótt saman hjá okk- ur. Við hugsuðum ekkert út í það fyr- ir tímabilið að við gætum gert atlögu að Íslandsmeistaratitlinum. Þegar fór að líða að áramótum var síðan far- ið að tala um það að við værum ekki með neitt slakara lið en hin liðin og að við ættum möguleika á því að vinna þetta,“ segir Valdimar. Hann segir að mikið sjálfstraust sé í Kópavogsliðinu núna. „Það er nátt- úrulega frábær árangur hjá HK að hafa náð að tryggja sér annað sæt- ið en við erum þó ekki saddir. Það er ekki oft sem maður fær þennan möguleika,“ segir Valdimar. Eins og komið hefur fram þá var stemningin góð í Digranesinu á stórleiknum um helgina en því miður er ekki hægt að segja það um marga leiki í vetur. „Deildin sjálf hefur verið nokkuð spennandi. Liðin eru mjög jöfn að getu og því margir jafnir leikir. Það er alltaf verið að tala um þessa úrslita- keppni og að reyna að fá áhorfendur á leikina. Mætingin hefur ekki ver- ið góð í vetur fyrir utan síðustu leiki. Ég veit ekki hvort að það myndu fleiri mæta ef úrslitakeppni yrði tekin upp. Félögin og HSÍ mega gera betri um- gjörð í kringum þetta Eins og þessi leikur gegn Val, það hefði verið hægt að blása hann enn meira upp,“ segir Valdimar. Hann bíður spenntur eftir næsta leik HK-inga en þá heimsækja þeir Austurbergið og etja kappi við ÍR. „ÍR- ingar hafa komið mér mjög á óvart. Ég var búinn að afskrifa þá en þeir gáfust ekki sjálfir upp og eru komnir í möguleika á að halda sér uppi. Ég held að þeir vinni Stjörnuna þar sem Stjörnumenn eru bara hættir (viðtalið var tekið fyrir viðureign Stjörnunnar og ÍR. Valdimar reyndist sannspár og ÍR vann). ÍR-ingar mæta alveg brjál- aðir til leiks gegn okkur. Næsti leik- ur þeirra á eftir leiknum gegn okk- ur verður gegn Val. Ef við vinnum ÍR verður líklega þeirra seinasti mögu- leiki í leiknum gegn Val.“ Eitt er þó ljóst og það er að mikil spenna er framundan á lokasprett- inum og má búast við hörkuleikjum bæði hjá HK og Val. elvargeir@dv.is Tvö efstu lið DHL-deildar karla í handbolta áttust við í Digranesinu á laugardag. HK fór með öruggan sigur af hólmi á heimavelli gegn Val og eru liðin nú jöfn að stigum á toppi deildarinnar. Valsmenn áttu ekki möguleika Ráðalausir Óskar Bjarni og lærisveinar hans áttu engin svör gegn HK-ingum. Skrefinu á undan HK-ingar spiluðu betur en Valsmenn á öllum sviðum á laugardag. Ragnar Hjaltested, leikmaður HK, gefur hér hnitmiðaða sendingu. Karlmannsíþrótt Baldvin Þorsteinsson tekur hér hraustlega á Tomas Eitutis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.