Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 7
DV Fréttir mánudagur 2. apríl 2007 7 Vantar lögreglumenn Arnar ekki óalgengt að aðeins þriðj- ungur umsækjenda komist að. Nám- ið tekur alls sextán mánuði. Fyrstu fjórir mánuðir námsins fara fram inn- an veggja skólans en að því loknu tek- ur við átta mánaða starfsnám annað hvort hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu eða á Suðurnesjum. Nám- inu lýkur svo með fjögurra mánaða bóknámi. Meðalaldur nemenda í lög- regluskólanum nú eru 26 ár og eru konur fjórðungur nemenda. Stefnt hefur verið að því frá árinu 1997 að fjölga lögreglukonum en þá voru þær aðeins 4,6 prósent af starfandi lög- reglumönnum en í dag eru þær ellefu prósent. „Stefnt hefur verið að því að fækka ófaglærðum lögreglumönnum en einkum þurft að ráða ófaglærða í afleysingar,“ segir Arnar en bætir við að þeir sem eru ófaglærðir kynnist starfinu og komi oft í nám vissir um hvað þeir vilja starfa við. Nemendur Lögregluskólans Fleiri nemendur voru tekir inn í skólann um áramót en til stóð í fyrstu og fá 48 til viðbótar skólagöngu í haust. umsóknar- frestur rennur út 11. apríl. NafN: María BeNder aLdur: 24 ára „Mig hefur alltaf langað til að verða lögregluþjónn, alveg frá því að ég var lítil stelpa,“ segir María sem var í ferðmálafræði í Háskóla íslands. Þeg- ar því námi var lokið ákvað hún að drífa sig í lögregluskólann til að láta langþráðan draum rætast. Henni líst vel á námið í skólanum og segir það skemmtilegt. Helst heillar hana að verða rannsóknarlögreglumaður hjá fíkniefnadeild lögreglunnar. Inntökuskilyrðin í Lögregluskólann segir hún nokkuð strembin þó hún hafi ekki undirbúið sig mikið fyrir inntökuprófin. „Þau eru samt erfið, allavega líkamlega, “ segir María og bætir við að fyrir líkamlega prófið þurfi að æfa sig. Sjálf æfði hún fót- bolta í mörg ár og bjó vel að þeirri þjálfun. Hún segist alveg vissum að hún sé búin að finna sína hillu í líf- inu. „Það er alveg bókað.“ Ætlar í fíkniefnalögregluna Alltaf langað í lögregluna NafN: ragNar Már guðMuNdSSoN aLdur: 24 ára ragnari líkar námið í lögregluskólan- um vel. „Mig var búið að langa þetta lengi, alveg frá því að ég var strá- klingur svo ég lét bara verða af því,“ segir ragnar. Hann hefur ekki starf- að áður sem lögreglumaður við af- leysingar en bíður þess spenntur að starfsnámið hefjist í maí. Hann segir að það hafi ekki verið sérstaklega erfitt að komast í skólann. Hann hafi bara þurft að standast inntökupróf- ið og uppfylla inntökuskilyrðin og þetta hafi allt tekist í fyrstu tilraun. Mest heillandi við lögreglustarf- ið finnst honum hversu fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi það sé. „Þú veist aldrei þegar þú mætir í vinn- una, í hverju þú munt lenda þann daginn,“ segir ragnar. Hann fellst á að hann sé spennufíkill upp að vissu marki þó hann hafi ekki sótt neitt sérstaklega í spennu hingað til. „fólkinu mínu lýst vel á og finnst líklegt að ég eigi vel heima í þessu starfi,“ segir ragnar og fullyrðir að hann sé sjálfur löghlýðinn. Endurfundir í miðborginni! Fallegar innréttingar og fullkomin staðsetning Iðusala, í Lækjargötunni, gerir þessa tvo sali sem um ræðir að einum vinsælustu veislusölum borgarinnar. Salirnir rúma 250 manns í sæti eða 400 manns í standandi boði. Lídó er glæsilegur nýr veislusalur sem byggir á klassísk- um grunni Versala, upplagður fyrir stærri hópa til að koma saman og fagna. Aðstaða er fyrir 300 manns í borðhald og yfir 500 manns í standandi boði. Veisluþjónustan okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar og spennandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fagmönnum. Við sjáum til þess að veislan verði eins og þú vilt hafa hana: Ykkar ánægja er okkar markmið. Kynntu þér þjónustu okkar og skoðaðu matseðla á www.veislukompaniid.is eða hringdu í síma 517 5020 og veislan er í höfn! Með kveðju, Hafsteinn Egilsson Er kominn tími á endurfundi hjá þínum árgangi? Veislukompaníið býður glæsilega veislusali með öllum tæknibúnaði og fyrsta flokks veisluþjónustu í hjarta borgarinnar. Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is F í t o n / S Í A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.