Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 9
Í hundruða þúsunda tali flýja nú ungir Austur-Evrópubúar heima- slóðirnar. Þegar Pólland, Tékkland, Ungverjaland, Slóvakía og Eystra- saltsríkin fengu inngöngu í Evr- ópusambandið hófust miklir fólks- flutningar frá þeim löndum til Vestur-Evrópu. Helstu áfangastað- irnir voru Bretland, Írland og Sví- þjóð, en þau lönd stóðu opin fyrir innflytjendum. Að mati Austur-Evrópubúa er biðin eftir bættum lífskjörum orð- in of löng og nú þremur árum eftir inngöngu í Evrópusambandið örlar enn lítið á lífsgæðum sem talist gætu sambærileg þeim sem þekkjast í Vestur-Evrópu. Því leitar fólk í vestur í leit að hærri tekjum, betri atvinnu- tækifærum og betra lífi almennt. Áætlað er að um tvær milljón- ir Pólverja leiti nú um stundir betri lífskjara utan heimalandsins. Pólska þjóðin telur um 38 milljónir. Á Ír- landi eru tæp 200 þúsund Pólverj- ar í vinnu. Meira en sextíu þúsund Lettar og tugir þúsunda Litháa hafa snúið baki við föðurlandinu og leit- að betra lífs og atvinnumöguleika annars staðar. Í þessum tilfellum er mestmegnis um að ræða fólk undir þrjátíu og fimm ára aldri og stór hluti þess hefur lokið háskólaprófi. Þessi fólksflótti er því gríðarleg blóðtaka fyrir þau lönd sem um ræðir, því ekki er talið líklegt að þetta fólk flytji aft- ur heim, eftir að hafa komið sér fyrir í nýju landi. DV Fréttir þriðjudagur 27. mars 2007 13 tortryggni í samstarfi og Suður-Kóreu frekar en að veðja meira á Kínverja en þeir hafa nú þegar gert. Ástæðan er meðal annars sú að Rússum svíður að vera orðnir eins konar hráefnasal- ar á meðan hátækniiðnaður bygg- ist upp í Kína. Þeir gætu hins vegar snúið þessari þróun að hluta til við með því að auka vopnaútflutning til Kína. Stjórnvöld í Peking hafa hingað til verið stærsti viðskipta- vinur rússneskra vopnaframleið- anda enda nauðug til að kaupa þau þaðan þar sem evrópsk og bandarísk framleiðsla hefur ekki staðið þeim til boða. Rússar hafa hinsvegar sett vopnasölu til Ind- lands í forgang og hafa því aðeins boðið Kínverjum restarnar ef svo má segja. Þar spilar vafalítið inn í þessi inngróna efasemd þeirra í garð nágranna sinna. Hvað sem því líður þá stigu forsetar landanna skref í þá átt að auka viðskiptaleg- og menningar- leg tengsl þjóðanna í síðustu viku og verður árangurinn væntan- lega metinn þegar sameiginlega geimskulta þeirra lendir á Mars eftir rúm þrjú ár. kristjan@dv.is armensk kirkja endurreist í tyrklandi 1.100 ára gömul armensk kirkja hefur verið endurbyggð í austur- hluta Tyrklands af stjórnvöldum þar í landi. Eru þetta mikil tíðindi fyrir þær sak- ir að samskipti þessara landa hafa verið mjög stirð í langan tíma. Tyrk- ir lokuðu til að mynda landamær- um sínum að Armeníu á síðasta áratug og hafa ekki opnað þau aftur. Armenar hafa á sama tíma krafist þess að Tyrkir viðurkenni þjóð- armorð á einni og hálfri milljón Armena árið 1915. Margar vestur- landaþjóðir styðja kröfu þeirra en Tyrkir vilja ekki viðurkenna verkn- aðinn og segja mun færri hafa lát- ist. Endurbyggingin er talin eiga að bæta samskipti landanna tveggja. fuglaflensa breiðist út Samkvæmt fréttum frá Bangladesh hefur útbreiðsla fuglaflensu aukist í mið- og norðurhéruðum landsins. Um er að ræða sextán kjúklinga- bú í fimm héruðum, en samkvæmt opinberum yfirlýsingum hefur ekki orðið vart sýkingar í fólki í þessum tilfellum. Flutningar með fiðurfé hafa verið bannaðir utan tíu ferkílómetra- svæðis umhverfis umrædd kjúkl- ingabú. Áttaviti í farfuglum Farfuglar og bréfdúfur bera örlitlar járnflögur í húðinni ofan á gogg- inum sem snúast eftir segulsviði jarðar og virka sem áttaviti. Þýskir fræðimenn birta þessar niðurstöð- ur sínar í tímaritinu Naturwiss- enschaften. Þessu ber saman við rannsóknir Robert Beasons í New York háskóla, en hann taldi þó að um væri að ræða segulmagnað efni inni í höfði fuglanna. Áður var talið að fuglarnir notuðust aðallega við sýnileg kennileiti eins og landslag og stjörnur. fjögur börn létust í árás Fjögur börn létu lífið og sex önnur slösuðust í sjálfsmorðsárás í aust- ur Afganistan. Árásin átti sér stað um hundrað kílómetrum austur af höfuðborginni Kabúl. Að sögn talsmanns afganska varnarmála- ráðuneytisins var árásinni beint að bílalest afganska hersins sem var á heimleið eftir að hafa aðstoðað fórnarlömb flóða á svæðinu. Börnin sem létust voru í grenndinni þegar árásarmaðurinn sprengdi í loft upp bíl fullan af sprengiefni. Peking óperan Listamenn óperunnar eiga að milda afstöðu rússa til Kínverja. Plánetan Mars sameiginlegt geimfar rússa og Kínverja hefur ferð sína í átt að mars síðla árs 2009. Jóhannes Páll páfi annar, einn vinsælasti páfi tuttugustu aldar- innar, hefur nú færst nær því að vera tekinn í dýrlingatölu. Í dag er þess minnst að tvö ár eru liðin frá andláti hans og verða Vatikaninu afhentar skýrslur og vitnisburðir upp á þúsundir síðna þar sem er að finna rök fyrir því að Jóhannes Páll skuli tekinn í helgra manna tölu, en það er síðasta stig áður en menn eru teknir í dýrlingatölu. Svo hægt sé að taka Jóhannes Pál í dýrlingatölu þarf að vera hægt að rekja tvö kraftaverk til hans, en í þessum skýrslum er meðal ann- ars að finna vitnisburð hinnar 46 ára gömlu Marie Simon - Pierre og kraftaverk sem hún vill eigna Jó- hannesi Páli páfa. Marie Simon - Pierre er frönsk nunna sem greindist með Park- inson sjúkdóminn, en Jóhannes Páll páfi þjáðist einmitt af sama sjúkdómi. Að hennar sögn hvarf sjúkdómurinn tveimur mánuðum eftir andlát páfa, en hún hafði þá heitið á hann í von um bata, „Rit- hönd mín varð fullkomlega læsi- leg... verkirnir í líkama mínum hurfu og stirðleikinn hvarf... og ég skynjaði djúpan frið.“ En áður en Vatikanið getur úrskurðað þetta sem kraftaverk þarf að fara fram ítarleg rannsókn, læknaskýrslur verða skoðaðar og nýjir sérfræð- ingar fengnir til að skoða mál frönsku nunnunnar svo hægt sé að staðfesta að lækningu hennar megi rekja til kraftaverks. Ef sú er raunin er hægt að taka Jóhannes Pál í helgra manna tölu. Ef Vat- ikanið úrskurðar það kraftaverk þarf bara eitt til svo Jóhannes Páll páfi annar verði tekinn í dýrlinga- tölu. Þarf tvö kraftaverk til að vera tekinn: Jóhannes Páll páfi annar tekinn í helgra manna tölu Ungu fólki finnast umbætur ganga hægt: austur-Evrópubúar flýja heimalandið Tékkland 2004 ung kona fagnar inngöngu í Evrópusambandið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.