Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Qupperneq 4
„Ég var að reyna hughreysta fólk sem hélt að það myndi missa vinnuna í ál- verinu,“ sagði Gísli Hrafnkelsson, ung- ur Hafnfirðingur á kosningavöku Al- can í Hafnarborg á laugardagskvöld. Fólk hélt niðri í sér andanum þegar seinni tölur kvöldsins voru lesnar upp. Hafnfirðingar höfðu hafnað stækkun álvers Alcan í Straumsvík. Enn höfðu utankjörstaðaratkvæði ekki verið tal- in, en vonbrigðin leyndu sér ekki. Samkoman í Hafnarborg leystist fljót- lega upp eftir að úrslitin voru kunn og húsið sem nokkrum mínútum fyrr var þéttsetið tæmdist skyndilega. Þegar öll 12.747 atkvæðin höfðu verið talin kom í ljós að Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álversins með að- eins 88 atkvæða mun. Fjársterkur ofjarl Mikil fagnaðarlæti brustu út á kosningavöku Sólar í Straumi á Hótel Víkingi þegar lokatölur kosninganna voru tilkynntar um klukkan hálf ell- efu. Um svipað leyti óku bílar um göt- ur Hafnarfjarðar og þeyttu flautur. Það mátti greina sigurvon hjá fólki á staðn- um, en svo mjótt var þó á munum að allt gat gerst. Ósk Vilhjálmsdóttir, einn stjórn- enda Framtíðarlandsins, sagði að við ofurefli hefði verið að etja, stórfyrir- tæki sem gæti eytt peningum að vild til kosningabaráttunnar og farið fram með stór loforð. Ef til vill hefði mun- urinn orðið meiri ef jafnræðis hefði notið. Vonbrigði Alcan Rannveig Rist, forstjóri Alcan, seg- ir niðurstöður kosninganna vera von- brigði, en fyrirtækið muni engu að síður lúta vilja meirihlutans. Rannveig vill ekki gefa upp hve miklum pening- um fyritækið varði til kosningabarátt- unnar. Fulltrúar Sólar í Straumi segja samtökin hafa varið hátt í þremur milljónum króna í sína baráttu.Al- can hefur stefnt að stækkun álvers- ins í Straumsvík síðastliðin átta ár og sögðu forsvarsmenn fyrirtækisins meðal annars að ef ekki yrði af stækk- un þýddi það að álverið yrði á endan- um lagt niður. Rannveig gefur ekkert upp um þetta eins og sakir standa, en segir að ekki sé hægt að gera versks- miðjuna hagkvæmari en hún þegar er, án þess að til stækkunar komi. Framkvæmd kosninga Blaðamenn DV hittu þau Rann- veigu Rist, Hrannar Pétursson upp- lýsingafulltrúa og Lúðvík Geirs- son bæjarstjóra í Hafnarfirði að baki Flensborgarskóla þegar líða tók á laugardaginn. Lúðvík var ánægður með kosningaþátttökuna og vísaði á bug allri gagnrýni á framkvæmd kosn- inganna. Hann vill ekki gefa upp af- stöðu sína í málinu. Lúðvík trúir ekki að Alcan muni yfirgefa Hafnarfjörð á næstunni. Hrannar Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Alcan, taldi þá að munurinn á milli fylkinganna yrði meiri en skoð- anakannanir gáfu til kynna. mánudagur 2. apríl 20074 Fréttir DV Fjölgaði um fjögur hundruð Forsvarsmenn Hags Hafn- arfjarðar ætla að kanna hvort andstæðingar álversstækkunar utan Hafnarfjarðar hafi skráð lögheimili sitt í bænum til að kjósa gegn stækkun. Jóhanna Dalkvist, í Hagi Hafnarfjarðar, segir samtökin hafa fengið ábendingu um að um 700 andstæðingar stækk- unar hefðu flutt lögheimili. „Þetta eru upplýsingar sem við getum ekki vísað frá okkur að óathuguðu máli,“ segir hún. Lopakarlar og skemmtikraftar „Það hefur verið talað niður til okkar, við höfum verið kölluð skemmtikraftar og lopapeysulið. Nú verð- um við tekin alvarlega,“ sagði Ómar Ragnarsson, formað- ur Íslandshreyfingarinnar, við Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstri grænna á kosningavöku Sólar í Straumi á laugardagskvöldið. Báðir hafa þeir barist hart gegn frekari stóriðju á Íslandi. Steingrímur með flokki sínum og Ómar á eigin vegum, uns hann var einn af stofnend- um Íslandshreyfingarinnar, stjórmálaflokki sem hyggst bjóða fram í öllum kjördæm- um landsins í kosningunum í vor. Íslandshreyfingin ætlar að leggja sérstaka áherslu á umhverfismál. Áhrifalaus kosning „Þessi kosning hefur í rauninni ekkert vald og engin áhrif. Sveitarstjórnin þarf ekk- ert að fara eftir þessu, að ekki sé minnst á eftir næstu kosning- ar þegar ný stjórn verður tekin við,“ segir Jón Sigurðs- son, formaður Framsóknar- flokksins. Hann segir að það verði að vera alveg skýrt hvaða reglur gildi um framkvæmd íbúalýðræðis. „Til þess að nota íbúalýðræði í skipulagsmálum þá verður atkvæðagreiðslan að fara fram snemma í ferl- inu, þannig að ekki sé verið að kjósa um andlit fyrirtækis heldur skipulag sveitarinnar,“ segir hann. Hann telur ekki réttlátt að gefa fyrirtæki vilyrði fyrir starf- semi og etja því þannig út í hundruða milljóna króna und- irbúning sem síðan sé kastað fyrir róða á lokasprettinum. Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álvers Alcan í Straumsvík í kosningum á laugardag. Aðeins munaði 88 atkvæðum. Ómar Ragnarsson segir að nú verði umhversinnar tekn- ir alvarlega. Ekkert ákveðið um framtíð álversins segir Rannveig Rist. Átök í Hafnarfirði SigtRygguR ARi jÓhAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Meiri líkur á álveri á Bakka við Húsavík eftir kosningar í Hafnarfirði: Skynsamir Hafnfirðingar „Í Hafnarfirði býr skynsamt fólk,“ segir Örlygur Hnefill Jónsson lög- maður og Samfylkingarmaður á Húsavík. Hann segir að grannt hafi verið fylgst með framvindu kosninga um stækkun álvers í Straumsvík þar nyrðra. Örlygur segir Húsvíkinga al- mennt hafa talið að stærra álver í Straumsvík myndi seinka áformum um álver á Bakka við Húsavík. Ekki var um formlega kosninga- vöku að ræða á Húsavík á laugar- dagskvöld en fólk hittist og ræddi málin. „Við hittumst, fylgdumst með tölunum og ræddum málin. Þetta er náttúrulega stórmál, enda er eðlismunur á því að hafa þenn- an iðnað í miðri höfuðborginni eða koma honum fyrir á landsbyggð- inni þar sem styrkja þarf atvinnulíf- ið,“ segir Örlygur. Hann bætir því við að talsverð- ur munur sé á þeim framkvæmdum sem fyrirhugaðar voru í Straumsvík og áætlunum um álver á Bakka. Ef lagt hefði verið í stækkun á álveri Alcan í Straumsvík kæmi upp þörf fyrir rafmagn úr fallvatnsvirkjun- um. „Þannig framkvæmdir eru örar, standa yfir í tvö til þrjú ár og svo er öllu stungið í samband. Eins og hugmyndin er í Þingeyjarsýslum þá verður þetta gert í áföngum á átta til tíu árum, sem segir mér að áhrifin verða minni á efnahagslífið.“ Það er skoðun Örlygs að líklega hefði aldrei verið lagt út í tvær ál- versframkvæmdir á sama tíma. Ekki sé æskilegt að þjóðfélagið hagi sér þannig. „Reyndar held ég að til- finning fólks fyrir þenslu og verð- bólgu vegna stóriðjuframkvæmda hafi haft áhrif á niðurstöðu kosn- inganna í Hafnarfirði. Fólk er venju- lega bráðvel gefið og skynsamara en margir vilja ætla.“ Örlygur telur jafnframt að Hafn- firðingar þurfi varla að örvænta um eigin hag. Á höfuðborgarsvæð- inu mælist 39 prósenta hagvöxt- ur sem fyrst og frest sé tilkominn vegna bankastarfsemi og opinberr- ar þjónustu. Þessu sé öðruvísi farið á landsbyggðinni þar sem hagvöxt- ur hafi farið yfir í að vera neikvæð- ur eins og gerst hafi á Norðvestur- landi. sigtryggur@dv.is Frá húsavík Örlygur Hnefill Jónsson á Húsavík segir Hafnfirðinga hafa tekið rétta ákvörðun. Samfélagið hefði ekki þolað tvær álversframkvæmdir. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Fagnaðarlætin brjótast út nær óstöðv- andi fagnaðarlæti brutust út á kosningavöku Sólar í Straumi á laugardagskvöldið þegar endanleg úrslit lágu fyrir. Hér má meðal annarra sjá þau Ómar ragnarsson, formann íslandshreyfingarinnar, og Ósk Vilhjálmsdótt- ur í Framtíðarlandinu fagna ákaft. Á kjördag rannveig rist, Hrannar pétursson og lúðvík geirsson ræða málin á lóð Flenborgarskólans. „ég var að reyna hughreysta fólk sem hélt að það myndi missa vinnuna í álverinu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.