Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Qupperneq 6
Þrátt fyrir að brotthvarf úr lögreglunni
sé lítið, samkvæmt könnun Lögreglu-
skólans, vantar fjölda lögreglumanna
til starfa víða um land. Lögregluskól-
inn hefur brugðist við þessum vanda
og mun á næsta ári útskrifa fleiri lög-
reglumenn en nokkru sinni.
Fjórán lögreglumenn vantar til
starfa hjá lögregluembættinu á Suð-
unesjum og telur lögreglustjórinn,
Jóhann R. Benediktsson, vandamál-
ið tímabundið. Ástæðuna fyrir vönt-
uninni nú segir hann meðal annars
vera hvarf ófaglærðra lögreglumanna
í lögregluskólann og því sé von á ein-
hverjum þeirra til baka. Strax í maí á
Jóhann svo von á nokkrum nemum
úr lögregluskólanum í starfsnám.
Vantar tíu á
höfuðborgarsvæðinu
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
Höfuðborgarsvæðisins, segir vanta
um tíu lögreglumenn í hans emb-
ætti en erfitt sé að svara nákvæmlega
til um fjöldann enda 340 til 350 lög-
reglumenn sem starfa hjá embætt-
inu á hverjum tíma. Þá segir hann líka
alltaf þurfa að taka tillit til fjárlaganna
og ráða ekki fleiri en svo að þeim tak-
ist að halda sig innan settra marka.
„Þetta er lúxusvandamál, “ segir
Stefán því á sama tíma er búið að efla
og útvíkka starfsemi lögreglunnar
og hann á vonar lausnin sé inn-
an seilingar með fleiri út-
skrifuðum nemum
úr lögregluskólan-
um. „ Eftir útskrift-
irnar á næsta ári ætt-
um við að vera komin
í góð mál. Með enn
öflugri löggæslu sem
í dag er þó ekkert til
að skammast sín
fyrir,“ segir Stefán.
Aðalástæðu manneklunnar
telur hann vera fjölgun lögreglu-
starfa eins og í sérsveitinni, í fíkni-
efnalögreglunni, fjarskiptdeildinni
og öðrum sérhæfðari störfum innan
lögreglunnar. „Á meðan okkur vant-
ar almennt lögreglumenn til starfa
verðum við að ráða ófaglærða í sum-
arafleysingar og það á örugglega við á
flestum stöðum,“ segir Stefán.
Lögreglan á Hvolsvelli auglýsir eft-
ir fjórum lögreglumönnum til starfa
en alls eru tíu stöður lögreglumanna
hjá embættinu og vantar því í fjörtíu
prósent þeirra. „Ég hef ekki sérstak-
ar áhyggjur af þessari stöðu því ég er
viss um að það takist að fullmanna
stöðurnar, enda bjóðum við upp á
mjög skemmtilegt umdæmi,“ seg-
ir Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlög-
regluþjónn.
Flestir í lögregluna
Samkvæmt könnun lögreglu-
skólans er brotthvarf menntaðra lög-
reglumanna lítið. Frá árinu 1999 til
ársins 2006 útskrifuðust 312 úr lög-
regluskólanum og starfa 285 þeirra
sem lögreglumenn í dag sem eru
91 prósent, brottfallið er því að-
eins níu prósent. „Hluti af
þeim 26 sem hætt hafa
störfum hafa farið í
lögfræðinám og gætu
því skilað sér til ann-
arra starfa innan lög-
reglunnar. Þá hverfa
sumir til svipaðra starfa
og fara í sjúkraflutning-
ar eða til slökkviliðsins,“
segir Arnar Guðmundsson,
skólastjóri lögregluskólans.
Fleiri í skólanum
Lögregluskólinn hefur brugðist við
vöntun á lögreglumönnum og voru
teknir inn 48 nemendur síðustu ára-
mót í stað 32 eins til stóð. Þá verða 48
teknir inn í skólann í september þannig
að á næsta ári ættu 96 lögreglumenn
að útskrifast sem eru fleiri en nokkru
sinni fyrr. Í desember síðasliðinn voru
svo útskrifaðir 35 lögreglumenn. Frest-
ur til að sækja um í lögregluskólann
rennur út 11. apríl næstkomandi og
hafa áhugasamnir því enn tíma. „Við
viljum endilega fá til okkar kraft-
miklar konur og karla ,“ seg-
ir Arnar. Ásóknin hefur
alltaf verið mikil
og segir
mánudagur 2. apríl 20076 Fréttir DV
Vantar lögreglumenn
Menn vantar í stöður hjá lögreglunni.
Brotthvarf úr stéttinni er ekki ástæðan
heldur fjölgun lögreglustarfa og því að
unnið er að því hafa sem fæsta lögreglu-
menn ófaglærða. Lögregluskólinn ætlar
að útskrifa 96 nemendur á næsta ári sem
er meira en nokkru sinni.
Hjördís rut sigurjónsdóttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is
„Á meðan okkur vantar
almennt lögreglumenn
til starfa verðum við að
ráða ófaglærða í sum-
arafleysingar og það á
örugglega við á flestum
stöðum.“
Lögreglunemar í þjálfun
líkamleg þjálfun er ekki síður
mikilvæg en bókleg menntun í
lögreglunni og þurfa nemendur að
standast ákveðin inntökuskilyrði.
refsað fyrir
óstundvísi agi er
mikilvægur þáttur
námsins. Ef nemendur
koma of seint í
þolþjálfun fá þeir
refsingu í formi
armbeygja.