Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Page 8
þriðjudagur 28. mars 200712 Fréttir DV
Forseti Kína, Hu Jintao, sneri heim
til Peking frá Moskvu fyrir helgi
með uppáskrifaða pappíra um
aukið samstarf við Rússa. Þrátt fyr-
ir vilja beggja þjóða til að vinna
betur saman ólgar valdabarátta
undir niðri.
Eftir tvö ár hefur ómannað
geimfar merkt rússneska og kín-
verska fánanum sig á loft á leið til
reikistjörnunnar Mars. Leiðtogar
landanna staðfestu samning þess
efnis á fundum sínum í síðustu
viku. Þetta verkefni er táknrænt fyr-
ir aukið samstarf landanna á næstu
árum. Er áætlað að viðskipti land-
anna verði tífalt meiri árið 2010 en
þau voru á valdatíma Boris Jelts-
íns í Rússlandi. Forsetar ríkjanna
eru einnig samstíga í málefnum
Írans og sendu frá sér sameiginlega
áskorun til þarlendra stjórnvalda
að hlíta samþykktum öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna.
Telja Kínverja fjandsamlega
Á sama tíma og rússneskir
stjórnmálamenn ganga frá samn-
ingum við kínverska kollega sína
hríðversnar álit landa þeirra á Kín-
verjum. Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun telja þrjátíu prósent Rússa
að Kínverjar séu fjandsamleg þjóð.
Er þetta mun hærra hlutfall en
mældist í samskonar könnun fyr-
ir fimm árum síðan. Ólöglegum
kínverskum innflytjendum í Síb-
eríu er einna helst kennt um þessa
niðurstöðu samkvæmt frétt danska
blaðsins Weekendavisen. Þeir eru
um hundrað þúsund talsins sem er
ekki stór hluti af íbúum þessa strjál-
býla hluta landins. Bent er á að allt
frá innrás Mongóla á þrettándu öld
hafi Rússar verið á varðbergi gagn-
vart öllu því sem frá nágrönnum
þeirra í austri kemur.
Menningarátakinu Ár Kína í
Rússlandi er ætlað að milda álit
íbúa landins á Kínverjum. Verður
þeim til dæmis boðið upp á sýn-
ingar á vegum óperuhússins í Pek-
ing og sýningu um sögu postulíns
og silkis sem einskonar innsýn inn
í listasögu landsins.
Stórkarlalegir Rússar
Í sambandi þessara tveggja
þjóða á síðustu öld voru Rússar
ávallt sterkari aðilinn þó þeir væru
það ekki alltaf á pappírunum. Um
miðja síðustu öld gekk samband
þessara tveggja kommúnískra stór-
velda vel en síðan fór að halla und-
an fæti og á sjöunda áratugnum
andaði köldu þeirra á milli. Sá tími
er þeim sem nú sitja á valdastóli í
Rússlandi í fersku minni. Undir lok
aldarinnar þegar vegsemd ríkjanna
þróaðist í sitthvora áttina áttu Rúss-
ar samt sem áður erfitt með að líta
á sjálfa sig sem lítilmagna Kínverja
segir í frétt Weekendavisen. Þannig
er staðan í raun og veru ennþá í dag
þrátt fyrir mikinn uppgang í Kína
þar sem hagvöxtur hefur mælst í
tveggja stafa tölum síðustu fjögur
ár.
Aukin olíuviðskipti
Umferð járnbrautalesta hlöðn-
um olíu á leið frá Rússlandi yfir til
Kína mun stóraukast á næstu árum.
Um þetta náðu forsetarnir sam-
komulagi um en Kínverjar hafa
þörf fyrir alla þá orku sem Rússar
geta skaffað þeim. Þar af leiðandi
hefðu þeir frekar kosið að Rússar
léðu máls á því að reisa olíuleiðslur
frá Síberíu og til iðnaðarsvæðanna
í norðurhluta Kína. Það verkefni
hefur verið rætt síðasta áratuginn
en Rússar hafa dregið lappirnar af
ótta við að framkvæmdin myndi
auka uppgang Kínverja enn meira.
Er því talið líklegra að Rússar reyni
að auðvelda olíuviðskipti við Japan
tortryggni í samstarfi
Forsetar Kína og Rússlands ætla að
stórauka samvinnu þjóða sinna. Ríkin
tvö ætla að standa saman að geimrann-
sóknum og búist er við að innan þriggja
ára verði viðskipti landanna tífalt meiri
en þau voru í stjórnartíð Boris Jeltsíns.
Þrátt fyrir þetta telur þriðji hver Rússi
að Kínverjar séu fjandsamlegir Rússum.
Olíuvinnsla í Síberíu
rússar ætla að auka
útflutning á olíu til Kína.
Vladímír Pútín og Hu
Jintao Forsetar
rússlands og Kína ætla
að auka samvinnu
þjóðanna næstu ár.