Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Page 16
Stjarnan – Akureyri 36-18 (17-8)
Lið Stjörnustúlkna úr Garðabæ
tryggði sér fyrsta Íslandsmeistara-
titilinn í níu ár á laugardaginn með
mjög öruggum sigri á liði Akureyr-
ar 36-18. Reyndar var Stjarnan orð-
in Íslandsmeistari áður en leikur-
inn fór fram, þar sem Grótta sigraði
Valsstúlkur á föstudag.
Lið stjörnunar náði strax öruggri
forystu í leiknum á laugardaginn og
sigur þeirra var aldrei í hættu. Stað-
an í hálfleik var 17-8 Stjörnunni í
vil. Síðari hálfleikur var því aðeins
formsatriði og sigurhátíðin gat haf-
ist í Garðabæ.
Stjörnuliðið er vel að titlinum
komið, er vel mannað og hefur heilt
yfir staðið upp úr í vetur. Liðið er
vel þjálfað af þeim Aðalsteini Eyj-
ólfssyni og Ragnari Hermannsyni,
en þeir félagar hafa báðir orðið Ís-
landsmeistarar áður. Aðalsteinn
með kvennalið ÍBV 2004 og Ragn-
ar með kvennalið Hauka árið 2001,
svo það er ljóst að liðið er í góðum
höndum. Ítarlegt viðtal verður við
Aðalstein í páskablaði DV.
HK – Haukar 29-25 (16-15)
Leikur HK og Hauka, sem fram
fór í Digranesi á laugardaginn, var
hin besta skemmtun. Hið unga og
efnilega lið HK náði frumkvæði í
fyrri hálfleik og var meðal annars
fjórum mörkum yfir á tímabili. Stað-
an í hálfleik var 16-15 heimastúlk-
um í vil.
HK stúlkur slógu Hauka út af
laginu með því að spila framarlega
á Ramune Pegaskyte ásamt því að
bjóða upp á ferskan og snaggaraleg-
an sóknarleik, með þær systur Auði
og Rut Jónsdætur í fararbroddi. Í
miðri vörn HK stóð Arna Sif Páls-
dóttir eins og klettur og margar
sóknir Haukastúlkna brotnuðu á
þessari stóru og stæðilegu stúlku.
Í byrjun síðari hálfleik tókst HK
stúlkum að síga fram úr og unnu
að lokum verðskuldaðan sigur 29 –
25. Það er ljóst af frammistöðu HK
stúlkna að þeim hefur farið mikið
fram í vetur, þær hafa meðal ann-
ars unnið lið á borð við Gróttu og
Val, sem hafa talist mun sterkari í
gegnum tíðina. Framtíðin er björt í
Kópavoginum og ljóst að vel er stað-
ið á málum á þeim bænum.
ÍBV – FH 37-17 (22-14)
Lið ÍBV leiddi með þetta 2 mörk-
um framan af fyrri hálfleik en um
miðjan hálfleikinn tók að draga
í sundur með liðunum. Small þá
varnarleikur og markvarsla heima-
stúlkna í gang og upp hófst mik-
il hraðaupphlaupshrina ÍBV. Þetta
varð til þess að ÍBV gerði út um leik-
inn í lok fyrri hálfleiks og leiddu þær
22-14 í hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var algjör
spegilmynd loka þessi fyrir. ÍBV óð
í hraðaupphlaupum og sigurinn var
síst of stór, þar sem heimastúlkur
gerðu sig sekar um létt kæruleysi í
lokin.
Bestar í lið heimastúlkna voru
þær tékknesku vinkonur Pavla
Plaminkova og Pavla Nevarilova.
Ekaterina Dzhukeva stóð sig með
stakri prýði í marki heimastúlkna
og sú gamalreynda kempa Ingibjörg
Jónsdóttir fór mikinn í vörninni og
ljóst er að endurkoma hennar hefur
virkað sem vítamínsprauta á Eyja-
stúlkur. Laima Miliauskaite, mark-
vörður stóðu upp úr í liði FH ásamt
því að Ásta Björg Agnarsdóttir og
Sigrún Gilsdóttir áttu ágæta spretti.
Valur – Grótta 20-29 (10-12)
Fyrir fram var búist við hörkuleik
milli Vals og Gróttu á föstudskvöld-
ið, enda liðin í öðru og þriðja sæti
deildarinnar að mætast. Gróttu stúlk-
ur náðu fljótlega frumkvæði í leikum
og byrjuðu mun betur en Valsstúlkur.
Valsstúlkum tókst þó að jafna leikinn
fljótlega í hálfleiknum og jafnt var á
með liðunum í fyrri hálfleik.
Í síðari hálfleik dró svo í sundur
með liðunum, vörn Gróttu fór mikinn
og sigur Gróttu aldrei í hættu. Bestu
leikmenn vallarins voru Gróttustúlk-
urnar Natasa Damiljanovic og Anna
Úrsúla Guðmundsdóttir. Niðurstað-
an varð því 20-29 Gróttu í vil og liðin
höfðu sætaskipti í deildinni.
Líklegt þykir að þessi lið mætist
í Deildarbikarkeppni HSÍ í mótslok
og því var sigur Gróttustúlkna mikil-
vægur því endi þær í öðru sæti fá þær
heimaleikjarétt gegn liði Vals í und-
anúrslitum. Kristinn Guðmundsson
mánudagur 2. apríl 200716 Sport DV
Stjarnan ÍSlandSmeiStari
Stjörnustúlkur
tryggðu sér um
helgina Íslands-
meistaratitilinn í
DHL-deild kvenna í
handbolta. Grótta
lagði Val á föstu-
daginn og þau úr-
slit tryggðu Stjörn-
unni titilinn.
Átti góðan leik natasa
damiljanovic átti góðan leik
í liði gróttu sem lagði
Valstúlkur að velli.