Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Page 20
mánudagur 2. apríl 200720 Sport DV
Arsenal hafði unnið Liverpool þri-
svar á leiktíðinni áður en liðin mætt-
ust á laugardaginn. Liverpool tók
Arsenal í kennslustund og fór með
öruggan sigur af hólmi, 4-1. Sigurinn
var verðskuldaður þar sem Liverpool
sýndi oft á tíðum lagleg tilþrif á með-
an Arsenal átti slæman dag.
Liverpool var mun betri aðilinn í
fyrri hálfleik og hálfgert andleysi virt-
ist einkenna leik Arsenal. Á meðan
boltinn gekk vel manna á milli hjá
Liverpool náðu leikmenn Arsenal
aldrei að finna taktinn í leik sínum.
Það tók Liverpool ekki nema fjór-
ar mínútur að komast yfir í leikn-
um. Eftir góðan samleik hjá Arbeola
og Pennant á hægri kantinum kom
góð sending inn á teiginn sem Peter
Crouch afgreiddi í netið.
Þetta virtist slá leikmenn Arsenal
útaf laginu. Liverpool hafði náð yfir-
höndinni og hélt áfram að sækja að
marki gestanna.
Á 35. mínútu skoraði Peter Crouch
sitt annað mark í leiknum. Brasilíu-
maðurinn Fabio Aurelio fékk boltann
á vinstri kantinum, átti góða send-
ingu fyrir sem fór beint á kollinn á
Crouch sem skoraði. Crouch hefur
oft verið gagnrýndur fyrir slaka skall-
atækni, en þarna sló hann duglega á
gagnrýnisraddir.
2-0 í hálfleik og forysta Liverpool
fyllilega verðskulduð. Arsenal liðið
alveg úti að aka og ekki nema skugg-
inn af sjálfum sér.
Leikmenn Arsenal gerðu sig lík-
lega til að skora í upphafi síðari hálf-
leiks þegar Emmanuel Adebayor átti
gott skot sem hafnaði í stöng Liver-
pool marksins.
Það voru þó leikmenn Liverpool
sem skorðu þriðja mark leiksins. Eftir
aukaspyrnu frá Fabio Aurelio skallaði
Daninn Daniel Agger boltann í net-
ið á 60. mínútu. Annað mark hans á
leiktíðinni.
Skömmu síðar átti Adebayor góð-
an skalla að marki Liverpool sem Jose
Reina, markvörður Liverpool, varði
meistaralega. Mikilvæg markvarsla
sem kom í veg fyrir að Arsenal kæm-
ist inní leikinn.
William Gallas gaf Arsenal von
þegar hann náði að minnka muninn
í 3-1 á 72. mínútu. Arsenal fékk horn-
spyrnu og upp úr henn kom Gallas
boltanum í netið af stuttu færi.
Peter Crouch fullkomnaði þrennu
sína á 81. mínútu. Hann fékk send-
ingu frá Pennant, lék á tvo varnar-
menn Arsenal og skoraði örugglega.
Glæsilegt mark hjá Crouch og aug-
ljóst að Enska landsliðið getur vel
nýtt krafta hans.
Þar við sat. 4-1 sigur Liverpool
staðreynd í leik sem leikmenn Arsen-
al vilja eflaust gleyma sem allra fyrst.
Einn besti leikur Liverpool á leiktíð-
inni og liðið komið upp fyrir Arsenal í
þriðja sæti deildarinnar.
„Þetta er mjög sérstök stund, þetta
var mjög mikilvægur leikur fyrir okk-
ur. Sigurinn er það mikilvægasta en
ég er ótrúlega ánægður með þrenn-
una. Mér er alveg sama hvernig ég
skora mörkin en þetta var skemmti-
leg þrenna,“ sagði Peter Crouch sem
skoraði eitt mark með hægri færi, eitt
með vinstri og eitt með skalla.
„Ég fékk góða aðstoð. Ég var einn
frammi og Steven [Gerrard] var fyrir
aftan mig. Stundum er maður svolít-
ið einangraður en sú var ekki raunin í
dag, félagar mínir sóttu mikið og það
gerði þetta auðveldara,“ bætti Crouch
við.
Crouch sagði að úrslitin gegn Ars-
enal fyrr á leiktíðinni hafi drifið leik-
menn Liverpool áfram. „Það var frá-
bært að skora fjögur mörk í dag gegn
frábæru liði. Stjórinn var duglegur að
minna okkur á að úrslitin gegn Ars-
enal á þessari leiktíða hafa verið von-
brigði.“
Steven Gerrard fór meiddur af
velli á 55. mínútu. Rafael Benitez,
stjóri Liverpool, taldi þó að meiðslin
myndu ekki halda honum frá leikn-
um gegn PSV í Meistaradeild Evrópu
á þriðjudaginn.
„Ég held að þetta sé ekki alvar-
legt, ég held að hann verði í lagi. Við
vorum að reyna að vernda alla leik-
menn. Við vissum að þetta yrði erfið-
ur leikur en við vissum líka hvað við
ættum að gera.
Við vildum vinna og koma fram
hefndum. Við vorum að gera það
sama og í síðustu leikjum gegn Ars-
enal en stundum getur maður ekki
skorað. Í dag skoruðum við tvö mörk
í fyrri hálfleik og liðið var að leika að
miklu sjálfstrausti,“ sagði Benitez.
dagur@dv.is
Stórmeistara jafntefli á Stadio Olimpico
Roma tók á móti AC Milan í stór-
leik helgarinnar í ítölsku knatt-
spyrnunni á laugardaginn. Frakk-
inn Philippe Mexes kom Roma yfir
strax á 4. mínútu en Alberto Gilardi-
no náði að jafna metin fyrir AC Milan
á þeirri 61. eftir að hafa komið inn á
sem varamaður í hálfleik.
Þar við sat og vonbrigði fyrir bæði
lið að fá aðeins eitt stig úr þessari
viðureign. Jákvæðu fréttirnar fyrir
AC Milan voru þó þær að Alessandro
Nesta var mættur í vörn liðsins á nýj-
an leik en hann hefur verið frá vegna
meiðsla í fjóra mánuði.
„Ég var í þrjá mánuði í endur-
hæfingu í Miami og er búinn að
leggja hart að mér undanfarnar fjór-
ar vikur til að komast í form,“ sagði
Nesta sem valinn var maður leiks-
ins gegn Roma. Nesta þakkaði einn-
ig Marcello Lippi fyrir sinn þátt í að
hjálpa honum í gegnum meiðslin.
„Ég verð að þakka Lippi sérstak-
lega fyrir, hann hringdi í mig þegar
landsliðið fór og hitti forsetann og
fékk viðurkenningu fyrir sigurinn á
HM. Ég gat ekki verið á staðnum en
hann hringdi í mig á þeirri stundu
til að leyfa mér að hlusta á ræðuna
og sagði að þetta væri líka fyrir mig.
Það hafði mikla þýðingu fyrir mig,“
sagði Nesta og bætti við að jafntefli í
leiknum gegn Roma hafi verið sann-
gjörn úrslit.
„Ég held að þetta hafi verið sann-
gjörn úrslit. Roma fékk nokkur færi,
en það gerðum við líka, sérstaklega
eftir að Gilardino kom inná,“ bætti
Nesta við. dagur@dv.is
Úrslit helgarinnar
Roma og AC Milan skildu jöfn 1-1 í stórleik helgarinnar í ítölsku deildinni þar sem
Alessandro Nesta lék sinn fyrsta leik í fjóra mánuði:
Mættur til leiks alessandro nesta var mættur í lið aC milan á nýjan leik eftir meiðsli.
Hér er hann í baráttu við rodrigo Taddei, leikmann roma.
Enska úrvalsdEildin
Liverpool - Arsenal 4-1
1-0 (4.) Crouch, 2-0 (35.) Crouch, 3-0 (60.)
Agger, 3-1 (72.) Gallas, 4-1 (81.) Crouch.
Bolton - Sheff. United 1-0
1-0 (80.) Davies.
Charlton - Wigan 1-0
1-0 (86.) D. Bent víti.
Fulham - Portsmouth 1-1
0-1 (4.) Kranjcar, 1-1 (90.) Pearce.
Man. United - Blackburn 4-1
0-1 (29.) Derbyshire, 1-1 (61.) Scholes,
2-1 (73.) Carrick, 3-1 (83.) Park, 4-1 (90.)
Solskjær.
Newcastle - Man. City 0-1
0-1 (80.) Mpenza
Tottenham - Reading 1-0
1-0 (41.) Keane víti.
West Ham - Middlesbrough 2-0
1-0 (2.) Zamora, 2-0 (45.) Tevez.
Watford - Chelsea 0-1
0-1 (90.) Kalou.
staðan
Lið L U J T M S
1 Man. Utd 31 25 3 3 74:21 78
2 Chelsea 31 22 6 3 55:19 72
3 Liverp. 31 17 6 8 48:21 57
4 Arsenal 30 16 7 7 52:28 55
5 Bolton 31 15 5 11 36:38 50
6 Tottenh. 31 14 6 11 44:44 48
7 Everton 30 12 10 8 38:26 46
8 Reading 31 13 5 13 43:39 44
9 Portsm. 31 11 10 10 37:32 43
10 Blackb. 31 12 4 15 37:45 40
11 Newc. 31 10 7 14 34:40 37
12 Middl. 31 9 9 13 32:38 36
13 Man. C. 30 10 6 14 23:34 36
14 Fulham 31 7 14 10 32:45 35
15 Aston V. 30 7 13 10 29:35 34
16 Wigan 31 9 6 16 30:45 33
17 Sheff. U. 31 8 7 16 25:45 31
18 Charlton 31 8 6 17 29:49 30
19 West H. 31 7 5 19 25:51 26
20 Watford 31 3 11 17 19:47 20
Þýska úrvalsdEildin
Bayern M. - Schalke 2-0
1-0 (3.) Makaay, 2-0 (78.) Salihamidzic.
Bielefeld - Dortmund 1-0
1-0 (79.) Kamper.
Bochum - Hannover 2-0
1-0 (35.) Gekas, 2-0 (42.) Epalle.
E. Cottbus - Werder Bremen 0-0
Gladbach - Frankfurt 1-1
0-1 (11.) Kyrgiakos, 1-1 (89.) Insua.
Hamburg - Wolfsburg 1-0
1-0 (60.) Mahdavikia.
Mainz - B. Leverkusen 1-3
0-1 (41.) Barbarez, 0-2 (44.) Barbarez,
0-3 (52.) Schneider, 1-3 (75.) Zidan.
Nurnberg - Hertha B. 2-1
1-0 (4.) Galasek, 2-0 (60.) Engelhardt,
2-1 (69.) Gimenez.
Stuttgart - Aachen 3-1
1-0 (29.) Streller, 1-1 (59.) Sichone, 2-1
(75.) Lauth, 3-1 (84.) Cacau.
staðan
Lið L U J T M S
1 Schalke 27 16 5 6 42:27 53
2 W.Bremen 27 15 6 6 61:33 51
3 Stuttgart 27 14 7 6 45:31 49
4 Bayern M. 27 14 5 8 41:31 47
5 Bayer L. 27 12 6 9 43:36 42
6 Nurnberg 27 9 14 4 38:25 41
7 Hannover 27 9 8 10 33:39 35
8 Hertha B. 27 9 7 11 37:44 34
9 Aachen 27 9 6 12 42:48 33
10 Hamburg27 6 14 7 30:27 32
11 Wolfsb. 27 7 11 9 27:30 32
12 Cottbus 27 8 8 11 29:36 32
13 Frankfurt27 6 13 8 34:45 31
14 Bochum 27 8 6 13 32:42 30
15 Mainz 27 7 9 11 24:40 30
16 Bielefeld 27 7 8 12 32:36 29
17 Dortm. 27 7 8 12 29:38 29
18 Gladbach27 6 7 14 22:33 25
liverpool
kom fram hefndum
Peter Crouch skoraði
þrennu þegar Liverpool
tók Arsenal í kennslu-
stund á heimavelli sínum.
Þrenna peter Crouch var
mættur í liverpool á nýjan
leik og skoraði þrennu.
Með þá í vasanum miðjumenn liverpool höfðu algjöra yfirburði gegn andstæðing-
um sínum í leiknum, sem fundu enga smugu í gegnum vörn heimamanna.