Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Page 23
Menning
Alfræði
barnanna
um líkamann
Mál og menning hefur gefið út
fræðslubókina Mannslíkaminn,
alfræði barnanna um manns-
líkamann, í þýðingu Guðrún-
ar Bjarkadóttur. Fjölmargir
sérfræðingar komu að gerð
bókarinnar sem kom upphaf-
lega út hjá Dorling Kindersley
forlaginu í Englandi. Manns-
líkaminn er alfræðibók um
mannslíkamann fyrir börn frá
7 ára aldri. Í bókinni er fjallað
ítarlega um alla hluta manns-
líkamans og hvernig þeir vinna
saman. Á ljósmyndum tekn-
um með nýjustu tækni er sýnt
hvernig við lítum út að utan og
innan, og með skýringarmynd-
um er sýnt nákvæmlega hvaða
hlutverki hver líkamshluti
gegnir. Ýmiss konar spurningar
og verkefni gera bókina í senn
fróðlega og skemmtilega fyrir
börn á öllum aldri og alla fjöl-
skylduna.
H.C. Andersen
Hans Christian Andersen fæddist 2. apríl 1805 í Óðinsvé-
um. Enn þann dag í dag, rúmlega tvö hundruð árum síðar,
er H.C. Andersen þekktur sem eitt mesta sagnaskáld allra
tíma, ævintýri hans verið þýdd á ótal tungumál og
auðgað líf barna um allan heim.
DV Menning mánudagur 2. apríl 2007 23
Þorvaldur
í Julliard
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
hefur hlotið inngöngu í hinn
virta Julliard
listaháskóla
í New York.
Þorvald-
ur fór til
New York í
febrúar s.l.
og sótti um
inngöngu í
nokkra leik-
listarskóla þar í borg. Hann var
boðaður aftur till Bandaríkj-
anna um miðjan mars í lokaúr-
tak inntökuprófa í Julliard, með
þeim árangri að hann hlaut
inngöngu í skólann. Hann er
fyrsti Íslendingurinn til þess að
nema leiklist við þennan virta
skóla.
Blúshátíð í
Reykjavík
Blúshátíð verður haldin í
Reykjavík 3.-6. apríl. Fram
koma fjölmargir listamenn;
Zara Young ásamt hljómsveit,
Ronnie Baker Brooks, KK og
Frakkarnir,
Blúsmenn
Andreu,
Lay Low og
Kentár. Tón-
leikar eru
haldnir á
Hótel Nordi-
ca og hefjast
þeir kl. 20.
Bækistöð
hátíðarinnar verður á Domo og
hefst dagskrá þar kl. 22. Zara
Young, Andrea Gylfa, KK, Lay
Low, Brynhildur Björnsdótt-
ir og Goðsagnir Íslands munu
halda sálmatónleika á vegum
blúshátíðarinnar í Fríkirkjunni
á föstudaginn langa og hefjast
þeir kl. 20.
Í dag er fæðingardagur H.C. Andersen. og alþjóðlegi barnabókadagurinn:
Dagur barnabókanna
Alþjóðlegur barnabókadagur er haldinn
hátíðlegur í fyrsta skipti hérlendis í dag,
á fæðingardegi H.C. Andersen.
IBBY-samtökin standa fyrir deginum, en
það eru alþjóðleg samtök um barnabók-
menntir
og barna-
menningu.
Samtökin voru stofnuð árið 1953 og
starfa þau í 60 ríkjum um allan heim. Ís-
landsdeild IBBY var stofnuð í Reykjavík
árið 1985 með það að markmiði að stuðla
á allan hátt að eflingu íslenskra barna-
bóka. Á alþjóðlega barnabókadeginum
er efnt til margvíslegra viðburða víða
um heim. Að frumkvæði IBBY á Íslandi
verður haldið upp á daginn, meðal ann-
ars með sögustund í Borgarbókasafninu
í Grófarhúsi þar sem barnabókahöfund-
ar lesa úr þeim bókum sem þeir höfðu
mest dálæti á í bernsku. Samtökin veita
jafnframt barnabókaverðlaun í tilefni
dagsins. Auk þess stendur nú yfir sýning
á myndskreytingum íslenskra myndlist-
armanna við þjóðsögur í Ásmundarsal.
Guðlaug Richter er formaður IBBY á Ís-
landi, hún segir stefnt að því að halda
upp á daginn á hverju ári framvegis.
„Við gerum ráð fyrir að vera í samstarfi
við grunnskóla og leikskóla í framtíð-
inni - en í ár ber daginn upp á fyrsta
dag páskafrís, þannig að það gengur
víst ekki í þetta skiptið,“ segir Guðlaug.
„Svo ætlum við í IBBY að veita í fyrsta
skipti barnabókaverðlaun í samstarfi
við Glitni, en það eru 500.000 króna
peningaverðlaun og verðlaunagripur
til barnabókahöfundar fyrir framlag
hans til barnamenningar.“
bókmenntir
Stefán Baldursson var nýlega ráðinn óperustjóri við Íslensku óperuna. Hann er mikill
áhugamaður um óperur og hefur þegar tekið til við að leggja drög að starfinu, þó hann
sé ekki enn sestur í stól óperustjóra.
„Það er nú aðallega mikið fram-
undan,“ segir Stefán Baldursson
aðspurður um hvort ekki sé mikið
um að vera hjá honum um þessar
mundir. Hann var á dögunum ráð-
inn óperustjóri Íslensku óperunn-
ar í kjölfar brotthvarfs Bjarna Dan-
íelssonar úr því starfi. Hann segir
umsókn sína um starfið hafa bor-
ið nokkuð brátt að. „Mér var bent á
þessa auglýsingu og ákveðnir aðil-
ar hvöttu mig til að skoða þetta. Ég
sá það strax að þetta væri starf sem
ég hefði áhuga á,“ segir hann. Stef-
án er vissulega vanur því að stjórna
menningarstofnunum á borð við
Óperuna, enda var hann til fjölda
ára Þjóðleikhússtjóri og þar áður
leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur.
„Þetta er náttúrulega öðruvísi að því
leyti að þarna er tónlistin alltaf í for-
grunni, það gerir þetta nýstárlegra
fyrir mig.“
Tónlistin áberandi
Stefán hefur unnið töluvert með
tónlist í starfi sínum sem leikstjóri og
leikhússtjóri. „Ég hef svo sem leik-
stýrt óperum þó þær séu ekki marg-
ar, síðast í fyrra þegar ég leikstýrði
Föðurlandinu sem var sett upp með
Sinfóníunni. Svo hef ég sett upp fjöl-
marga söngleiki á þrjátíu ára ferli
sem leikstjóri og tónlist hefur oftar en
ekki verið áberandi í sýningum sem
ég hef sett upp. Ég hef starfað með
fjölmörgum íslenskum tónskáldum
sem hafa samið fyrir leikhús.“ Ekki
spilir heldur fyrir að Stefán er mikill
áhugamaður um óperur. „Ég á tölu-
vert safn af óperum og hef mikinn
áhuga á því listformi,“ segir hann.
Byrjaður að skipuleggja
En þó Stefán sé ekki enn sestur í
stól óperustjóra er hann byrjaður
að leggja drög að starfinu. „Auðvit-
að er maður strax farinn að hugsa
og skipuleggja til lengri tíma litið.
Fráfarandi óperustjóri er reynd-
ar búinn að leggja línurnar fyr-
ir næsta starfsár að mestu, þannig
að mín áhrif fara ekki að sjást fyrr
en seinni hluta vetrar,“ segir Stefán.
Hann telur nauðsynlegt að skoða
húsnæðismál Óperunnar. „Óperan
er í óviðunandi húsnæði, þó hús-
ið sé vissulega skemmtilegt. Það er
aðallega of lítið, þröngt um mann-
skapinn og margt að þessu gamla
húsi. Nú liggja fyrir ákveðnar hug-
myndir um að Kópavogsbær byggi
jafnvel óperuhús og svo eru fram-
kvæmdir hafnar við Tónlistarhús í
Reykjavík þar sem hægt verður að
flytja óperur. Þetta þarf bara allt að
skoða.“
Ráðning Stefáns tekur gildi 1.
maí næstkomandi - hann viður-
kennir að hann sé nokkuð spennt-
ur. „Þetta er geysilega spennandi
verkefni og ég hef sérstaklega gam-
an að því hvað ég hef fengið góð
viðbrögð frá fólki, þá ekki síst tón-
listarfólki,“ segir Stefán Baldursson
verðandi óperustjóri.
„Auðvitað er maður
strax farinn að hugsa
og skipuleggja til
lengri tíma litið“
„Geysilega spennandi verkefni“
Stefán Baldursson
„Ég sá það strax að þetta væri starf sem ég hefði áhuga á.“
Íslenska óperan
„Óperan er í óviðunandi húsnæði, þó
húsið sé vissulega skemmtilegt.“