Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Síða 32
Kennara vantar í nærri eitt
hundrað stöður í Reykjavík. Í sumum
skólum vantar allt að fjórðungi
kennara. Grunnskólakennarar hafa
umhugsunarfrest fram á vorið til að
gera upp hug sinn varðandi næsta
skólavetur. Ólafur Loftsson, formaður
Félags grunnskólakennara, segir
hljóðið í kennurum þungt.
„Mér sýnist útlit fyrir mikla hreyfingu
í vor og haust þar sem hlutirnar hafa
lítið lagast. Okkar tilfinning er sú að
haustið verði erfitt. Margir kennarar
eru ekki sáttir við niðurstöðuna úr
nýafstöðnum viðræðum og telja
launin ekki lengur samkeppnishæf.“
Guðný Elísabet Ingadóttir,
mannauðsráðgjafi á menntasviði
Reykjavíkurborgar, segir stöðuna nú
líka því sem oft hafi verið. Hún óttast
ekki að haustið verði erfiðara en áður.
„Við höfum ekki átt í vandræðum
með að ráða kennara undanfarin ár.
Skólastjórar hafa ekki lýst yfir áhyggjum
og ég á ekki von á því að staðan verði
erfiðari í haust,“ segir Guðný Elísabet.
Aðspurður telur Ólafur að raun-
særri mynd fáist fljótlega eftir páska.
Hann segir svæðaformenn og samn-
inganefnd hafa reynt að velja skástu
leiðina út úr þeim vanda sem við
blasti. „Menn stóðu frammi fyrir
tveimur vondum kostum, að velja á
milli þess að lemja sig í hausinn með
hamri eða steini. Sú leið var valin
sem talin var gefa minni sársauka.“
trausti@dv.is
Starfsmenn Seltjarnarnesbæjar eru
margir hverjir ósáttir við að starfsfólki
bæjarskrifstofunnar hafi verið boðið í
árshátíðarferð til Kaupmannahafnar en
aðrir starfsmenn hafa orðið að borga
sjálfir fyrir sínar árshátíðir sem haldnar
eru á Seltjarnarnesi.
Starfsmönnum bæjarskrifstofu
var boðið í árshátíðarferð til
Kaupmannahafnar. Bærinn greiddi flug
og veislu fyrir starfsmennina en makar
greiddu sitt flug. Starfsmannafélag
Seltjarnarness bauð skrifstofufólkinu
styrk til að greiða gistinguna og því
ljóst að árshátíðarferðin var vegleg í alla
staði. Aðrir starfsmenn eru ósáttir við
að fá ekki sömu möguleika, til dæmis
starfsfólk í skólunum, leikskólunum og
áhaldahúsi.
Einn viðmælenda sagði greinilegt
að ekki sama gilti fyrir alla í því aðeins
starfsfólki bæjarskrifstofunnar hafi
verið boðið. Hann baðst hins vegar
undan því að koma fram undir nafni,
starfs síns vegna.
Sárir starfsmenn
Árshátíð starfsmanna
Kópavogsbæjar var haldin nýverið þar
sem miðaverð allra starfsmanna var
niðurgreitt en makar greiddu fullt verð.
Í samtölum við fjölda starfsmanna
Seltjarnarnesbæjar kom fram að þeir
eru óánægðir með að ekki sé haldin
sameiginleg árshátíð starfsmanna.
Kennararnir héldu sína eigin árs-
hátíð í félagsheimili bæjarins þar sem
starfsmenn og makar greiddu fullt
verð. Leikskólarnir eru ekki búnir að
halda árshátíð sína en líklegt er tal-
ið að þar þurfi starfsmenn og makar
að greiða fullt verð. Áhaldahús bæj-
arins hefur ekki enn skipulagt árshá-
tið. Haukur Kristjánsson, bæjartækni-
fræðingur Seltjarnarnesbæjar, segist
koma alveg af fjöllum í þessu máli.
Hann segir deildir bæjarins halda sín-
ar árshátíðir út af fyrir sig og þannig
hafi fyrirkomulagið ávallt verið. „Ég
kannast ekkert við óánægju. Það hef-
ur aldrei verið haldin nein sameigin-
leg árshátíð,“ segir Haukur.
Kristinn Bergsson, bæjarverkstjóri
Seltjarnesbæjar, hefur heyrt af óánægju
meðal sinna starfsmanna sem rædd
hefur verið undanfarna daga. Sjálfur
segist hann ekki mikið hafa velt þessu
fyrir sér. „Ég hef heyrt á mönnum að
sumir eru sárir yfir þessu, ég hef heyrt
þessar raddir,“ segir Kristinn.
Kominn tími til
Jónmundur Guðmarsson, bæj-
arstjóri Seltjarnarnesbæjar, er hissa
ef óánægja fyrirfinnst meðal starfs-
manna þar sem bæjarfélagið hafi ver-
ið mjög opið fyrir hvataferðum ýmissa
deilda innan þess. Hann segir að tími
hafi verið kominn á skrifstofufólkið.
„Það er nákvæmlega ekkert athuga-
vert við þetta og kemur mér á óvart
ef einhver er ósáttur. Í gegnum tíð-
ina höfum við verið mjög opin fyrir
því að styrkja okkar starfsmenn til að
halda til útlanda í hvataferðir og hef
ekki orðið var við annað en að þeir sjái
ekki ofsjónum yfir því sem aðrir gera.
Starfmenn skrifstofunnar eru senni-
lega eini hópurinn sem ekki hafði far-
ið í slíka ferð á umliðnum árum og
óhætt að færa rök fyrir því að kominn
hafi verið tími á þá,“ segir Jónmundur.
„Þessi ferð var með sama formi og hjá
öðrum hópum sem hafa fengið slík-
ar ferðir. Bæði kennarar og leikskóla-
kennarar hafa farið í svona ferðir og
kominn tími á skrifstofufólkið að lyfta
sér upp. Því er við að bæta að síðustu
tvö ár hefur fólkið neitað sér um árs-
hátíð og jólahald til þess að eiga fyrir
þessu.“
mánudagur 2. apríl 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
FréttaSKot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Laugavegur 53b • 101 Reykjavík • 5 11 3350 • www.hereford.is
HerefordBorðapantanir í síma 511 3350
2 fyri
r 1 á
drykk
jum
hússi
ns 17
-19
Íslenska nautakjötið
klikkar ekki.
Notum eingöngu sérvalið
íslenskt nautakjöt á
Hereford steikhúsi
Tívolí, tívolí...
Hlutfall efnis, unnið af ritstjórnum, í dagblöðum þriðjudag-
inn 13. mars. Dregið hefur verið frá innsett efni, selt efni og
auglýsingar.
Efni blaðanna
d
v v
ið
SK
ip
ta
b
la
ð
ið
m
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Fr
ét
ta
b
la
ð
ið
80%
72%
66%
38%
Stálu númerum
af lögreglubílum
„Þetta hefur ekki áður gerst,
að vísu hafa verið teknir hjól-
koppar af lögreglubíl og
hent í nærliggjandi garð,
en menn hafa ekki
gert neitt sem hefur
leitt til svona fyrir-
hafnar áður,“ segir
Kristján Örn Kristj-
ánsson, lögreglumaður.
Óprúttinn einstaklingur, eða
einstaklingar, stal númeraplötun-
um af báðum bílum lögreglunn-
ar í fyrrinótt og höfðu þær ekki
fundist í gær. Númeraþjófurinn
kom þó ekki í veg fyrir að lög-
reglumenn kæmust ferða sinna
á bílum sínum í gær. Þeir létu
útbúa fyrir sig bráðabirgðanúmer
og voru því löglegir á vegum úti.
Annar bíllinn var meðal annars
við umferðareftirlit í gær.
Skili þjófurinn ekki plötunum
þarf lögreglan að láta endurnýja
þær með einhverjum tilkostnaði.
Búast má við að hún fái forgangs-
afgreiðslu.
Formaður Félags grunnskólakennara óttast haustið:
úTvaldir Til úTlanda
meðan aðrir fá ekkerT
Óánægja hjá starfsmönnum Seltjarnarnesbæjar vegna ólíkra árshátíða starfsmanna:
Fótboltakappar í laugardalnum Þó veðrið geti verið vætusamt og kalt aftrar það ungum piltum ekki frá því að spila fótbolta.
Þessir piltar voru á fullu í eystri hluta Laugardalsins í gær og gáfu ekkert eftir.
trauSti haFSteinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
dv mynd gúndi
Minni sársauki valinn
Ósáttir kennarar Félag grunnskóla-
kennara hefur áhyggjur af þungu hljóði í
kennurum. Félagið spáir mikilli hreyfingu
í grunnskólunum í vor og haust.
Unglingahópar
víða um borgina
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hafði í nógu að snúast í nótt. Að
sögn varðstjóra mátti greinilega
sjá að grunnskólarnir eru komnir
í páskaleyfi því töluvert var um
hópamyndanir unglinga í hverfum
borgarinnar. Söfnuðust hópar víða á
opnum leiksvæðum og hlaust ónæði
af fyrir íbúa. Lögreglan þurfti að hafa
afskipti af fjölda ungmennar fram
eftir nóttu og bar nokkuð á ölvun.
fer ekki fram aftur
„Mér hefur ekki verið sagt
upp. Kjörtímabilið rennur út í
byrjun júní og hef ég ákveðið að
hætta þá. Nú er ég búinn að vera
að þessu í átta ár og gengið vel,“
segir Ólafur Ólafsson, fyrrver-
andi landlæknir og formaður
Landsambands eldri borgara.
Annan júní næstkomandi
verður kosið í nýja stjórn hjá
Landsambandi eldri borgara þar
sem Ólafur hefur setið sem for-
maður síðast liðin átta ár. Hann
hefur ákveðið að gefa ekki kost
á sér til áframhaldandi setu sem
formaður og er ánægður með
þau verk sem hann á að baki
fyrir sambandið. Nýverið stóðu
yfir deilur milli eldri borgara og
Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigð-
isráðherra vegna framkvæmda-
stjóðs aldraðra en Ólafur útilok-
ar að deilan tengist því að hann
fari ekki fram aftur.
Olmert vill funda
með aröbum
Forsætisráðherra Ísraels, Ehud
Olmert tekur jákvætt í ályktun
fundar arabaríkja um hvernig Ís-
raelar geti bætt
sambandið við
nágrannaþjóðir
sínar. Þar segir að
Ísraelar verði að
láta af hendi land
sem þeir her-
tóku árið 1967
og bæta stöðu
Palestínu til að
skapa ásættan-
legt ástand á Miðausturlöndum.
Olmert segir tilbúinn til að hitta
fulltrúa hófsamra arabaríkja, eins
og það er orðað, á fundi ásamt Mah-
moud Abbas, leiðtoga Palestínu og
ræða þessar tillögur frekar. Frá þessu
var sagt á fréttavef BBC í morgun.