Fréttatíminn - 03.12.2010, Side 50

Fréttatíminn - 03.12.2010, Side 50
50 viðhorf Helgin 3.-5. desember 2010 Í vikunni var opinberuð kortlagn-ing á hagrænum umsvifum skap-andi greina á Íslandi. Það hefur komið betur í ljós hversu mikil verð- mæti og störf þessar greinar leiða af sér. Þær reynast vera einn megin- burðarás íslensks atvinnulífs og vægi þeirra fer stöðugt vaxandi. En vægi til dæmis vöruhönnunar gæti orðið margfalt meira. Það ætti að vera leiðandi mark- mið stjórnvalda að framleiddar verði þróaðar og hannaðar vörur úr sem stærstum hluta af því mikla magni af áli sem flutt er úr landinu hrátt og óunnið. Minna hráefni Á síðustu árum hefur verið gríðarleg umræða um uppbyggingu stóriðju í landinu, aðallega orkuöflun fyrir álver með tilheyr- andi stórframkvæmdum víða um land. Umræðan hefur fyrst og fremst snúist um óafturkræfa um- hverfisröskun og orkusamninga við erlend stór- fyrirtæki. Verkefnisstjórn um nýtingu á orku í Þingeyjarsýslu skilaði þeirri niðurstöðu um daginn að fleiri álver væru einu áhugaverðu og raunhæfu iðnaðarkostirnir á svæðinu. Áframhaldandi fjölgun álvera og útflutningur á hrááli mun koma í veg fyrir framþróun íslensks atvinnulífs og er á kostnað sjálf- bærni, fjölbreytni og ímyndarsköpunar. Furðulega lítið hefur verið rætt um þá möguleika sem felast í vöruþróun og framleiðslu úr áli á Íslandi. Árið 1996 skipaði þáverandi iðnaðarráðherra nefnd til að skila hugmyndum um hvernig hið opin- bera geti stuðlað að frekari vinnslu úr áli. Það hafði lengi legið fyrir að markaðurinn fyrir framleiðslu úr áli færi stækkandi, meðal annars í bílaiðnaði, skipa- smíðum, byggingariðnaði og annarri framleiðslu á þróuðum og hönnuðum vörum. Nefndin leitaði ráða hjá íslenskum og útlendum sérfræðingum og tók skipulega fyrir ýmsa möguleika á framleiðslu úr léttmálmum hérlendis, s.s. völsun, þrýstimótun og steypingu. Í skýrslu nefndarinnar frá því 1997 sagði meðal annars: „Þótt hér sé framleitt ál er ekki sjálfgefið að við það náist svo mikið samkeppnisforskot að hagkvæmt verði að reisa hér völsunar- eða þrýstimótunarverk- smiðju. Nálægð við markaði og þekking á þeim og stærðarhagkvæmi geta ráðið mestu um hvernig hinni fullunnu vöru reiðir af í samkeppninni. Þess vegna mun, svo dæmi sé tekið, ál til skipasmíði á Ís- landi að öllum líkindum verða flutt inn frá erlendum völsunar- og þrýstimótunarverksmiðjum þó að álskip eigi eftir að ryðja sér æ meira til rúms, eins og sér- fræðingar telja að verði raunin í náinni framtíð.” Meiri vöruþróun Í framhaldi af störfum nefndarinnar var stofnaður Málmgarður, með aðsetur í þáverandi Iðntæknistofn- un, samráðsvettvangur fyrir vöruþróun, markaðs- og tæknirannsóknir, menntun og upplýsingamiðlun á sviði léttmálma. Það endurspeglaði hins vegar þekkingarleysi og skammsýni hérlendra stjórnvalda að verkefnið var keyrt á einum starfsmanni í hálfu starfi við að aðstoða frumkvöðla, fjárfesta og starf- andi fyrirtæki í áliðnaði. Þrátt fyrir lítið bolmagn og stuttan líftíma vann Málmgarður ítarlega skýrslu með verkfræðinema í Háskóla Íslands um þrýstimót- un á áli hérlendis. Nú í haust tilkynnti Rio Tinto Alcan að fram- leiðsluferli álversins í Straumsvík yrði breytt og að frá 2014 yrðu einungis framleiddir boltar í stað barra. Þessi breyting opnar fyrir þann möguleika að hérlendis hefjist fram- leiðsla á álprófílum með þrýstimótun. Grundvöllur gæti loksins verið að skapast fyrir fjölbreytta þróaða fram- leiðslu innanlands sem myndi stórauka útflutningsverðmæti hvers tonns af áli. Álverin þurfa annars vegar að fram- leiða einingar sem íslenskur iðnaður getur tekið við og hins vegar vera tilbúin að selja einingarnar til frekari vinnslu hérlendis. Stóra hindrunin gæti verið að álverin hér væru með sölusamninga á allri sinni framleiðslu og óttuðust samkeppni við dótturfyrir- tæki sín, meðal annars í Evrópu, sem vinna álið áfram. Meiri sérstaða Með vöruþróun fyrir frekari vinnslu væri hægt að skapa nýjungar og sérstöðu og gjör- breyta ímynd álframleiðslu hérlendis. Engin þörf yrði á fjölgun álvera og þeim gæti fækkað í fram- tíðinni. Sérstæðar og rekjanlegar vörur úr áli, fram- leiddar á Íslandi úr endurnýjanlegri orku, fengju athygli á alþjóðlegum markaði þar sem fyrirtæki og almennir neytendur bíða eftir vörum úr vottuðu hrá- efni. Slík nálgun við vöruþróun og framleiðslu ætti einnig að laða að erlent fjármagn og þekkingu. Í dag eru framleidd og flutt úr landinu árlega um 800.000 tonn af áli. Samkvæmt upplýsingum frá samtökum álframleiðenda sitja 40% af útflutnings- tekjunum eftir í landinu í formi launagreiðslna, skatta, orkukaupa og ýmissar þjónustu sem álfyrir- tækin kaupa. Í dag er heimsmarkaðsverðið á einu tonni af hrááli yfir 2.000 USD en hver ætli séu mögu- leg hámarksverðmæti úr einu tonni? Úrvinnsla áls er ekki bara spurning um að nýta hráefni heldur eru hér á ferðinni gífurlegir hagsmun- ir því kg-verð á áli í hráframleiðslu frá álverum er mjög lágt í samanburði við kg-verðið í álvörum sem við kaupum til dæmis í gluggum, tröppum, rennum og öðrum vörum. Meiri verðmæti Í ljósi þess að launakostnaður hérlendis hefur lækkað, opnast stór tækifæri fyrir samkeppnishæfa vinnslu og vöruþróun á þessu „innlenda hráefni“. Meginskilyrðið fyrir því er að hérlend fyrirtæki geti keypt hráefnið beint frá álverunum. Stjórnvöld ættu, með Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Listaháskóla Ís- lands og Háskóla Íslands í fararbroddi, að hrinda af stað átaki um vöruþróun úr áli þar sem keyrt yrði á breyttum gildum og öðrum markmiðum en áður hefur verið gert. Í framhaldinu mætti byggja upp klasa fimm til tíu fyrirtækja, til dæmis á Norður- og Austurlandi, sem störfuðu í sameiningu að þróun, framleiðslu og útflutningi á fjölbreyttum vörum úr álprófílum. “Móðurfyrirtækið” myndi framleiða prófíla sem önnur minni fyrirtæki þróuðu svo margvíslegar um- hverfisvottaðar vörur úr. Framleiðsla á vinnanlegu hráefni getur leitt af sér margfalt fleiri framleiðandi einingar á meira þróuðum vörum og þar með marg- falt meiri verðmæti. Þessar einingar eiga að spretta upp á næstu árum á Íslandi. Ef starfrækt væru í landinu þrjú til fjögur alþjóðleg fyrirtæki á stærð við Össur og Marel sem myndu skapa sér sérstöðu við framleiðslu á hönnuðum vörum úr áli, yrðu til mörg hundruð fjölbreytt störf fyrir fólk með alls konar sérþekkingu. Vörþróun og framleiðsla sem væri byggð á umhverfisvottuðu hráefni myndi vega á móti ókostum við fjarlægð til markaðar. Hrafnkell Birgisson vöruhönnuður og fyrrverandi formaður Samtaka hönnuða Minna hráefni, meiri vöruþróun Ál er ekki fiskur Gæðabækur á góðu verði HRÍFANDI ÆVISAGA MÖGNUÐ FRÁSÖGN Karl Blöndal / Morgunblaðið „…fallega og smekklega dregin upp góð og skýr mynd af Reykjavík… áhrifamikil mynd af fjölskyldunni … mjög læsileg … bók sem höfðar til stórs lesendahóps.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn „…breið skáldsaga um ástina og dauðann, eins og allar aðrar góðar sögur,og mörgum þrepum ofar í bókmenntastiganum en formúlubókmenntirnar.“ Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið Tilboðsverð 3.980 kr. Tilboðsverð 3.980 kr. * Tilboðsverð gilda til 8. desember 2010 Hvað þarf til? 1. Aðgengi að hráefni, en það veltur á samstarfsvilja álveranna í landinu. 2. Langtíma stuðningur opinberra aðila því það er lang- hlaup en ekki spretthlaup að byggja upp slíkan iðnað. 3. Viðskiptasambönd erlendis við umhverfissinnuð fyrir- tæki með því að bjóða sérstæða og vottaða vöru. 4. Samstarf við erlend fyrirtæki og sér- fræðinga væri nauðsynlegt þar sem þekkingin er of takmörkuð hérlendis. 5. Erlent fjármagn í þró- unarvinnuna mætti meðal annars nálgast í gegnum evrópska nýsköpunarstyrki. 6. Þróun hugmynda í sam- starfi innlendra og erlendra hönnuða, verkfræðinga og markaðsfræðinga til að tryggja sér- stöðu vörunnar á alþjóðlegum markaði. Með vöruþróun fyrir frekari vinnslu væri hægt að skapa nýj- ungar og sérstöðu og gjörbreyta ímynd álfram- leiðslu hérlendis. Engin þörf yrði á fjölgun álvera og þeim gæti fækkað í framtíðinni.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.