Fréttatíminn - 03.12.2010, Qupperneq 80
80 dægurmál Helgin 3.-5. desember 2010
Kristín Ólafsdóttir er margfaldur Íslands- og bikar meistari í frjálsum.
Mark Johnson er bikarmeistari í stangarstökki og í hópi 15 bestu stanga-
stökkvara í Bandaríkjunum. Þau stefna bæði á ÓL 2012.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
SHA-0207
Vinnuljóskastari
500W tvöfaldur á fæti
5.995
SHA-0203
Vinnuljóskastari 500W
m handf 1,8m snúra
4.295
2.195
SHA-2625
Vinnuljóskastari Rone
28W m. innst. blár
5.995
Ath. perur
fylgja
2.695 3.395
5.495
SHA-3901
Loftljós úor rakaþ.
1x18w 67,5x11,2cm
SHA-3901A
Loftljós úor rakaþ.
2x18w 67,5x16,6cm
SHA-3902A
Loftljós úor rakaþ.
2x36w 128x16,6cm
Í hönnun sinni sameinar Bryndís fagurfræði, notagildi og leik þar
sem vörur hennar standa
fyrir sínu bæði sem skraut-
munir og leikföng auk þess
sem notagildi þeirra er sí-
gilt þar sem í ullarkúlunum
leynast snagar, hitaplattar,
hurðastopparar og hljóð-
dempunarkúla. Epal selur
vörur frá Normann Copen-
hagen á Íslandi og þar má
nálgast Kúluna.
„Ég hef unnið með kúl-
una í myndlistartengdum
verkum um langt skeið og
hef verið að fást við einfald-
leika þessa forms og að
sameina einfaldleikann
og leikinn. Ég á tvær litlar
stelpur og kúluformið um-
leikur mann svolítið þegar
maður er með lítil börn,“
segir Bryndís.
„Ég kynni hönnun mína
sem nútímalegan textíl
fyrir nútímaleg heimili en
notagildi hlutarins ræðst
mikið til af hugarflugi
hvers og eins. Þetta eru
munir sem eiga aldrei að
enda uppi í skáp. Þeir eru
fallegir, hagnýtir og geta
líka verið leikföng fyrir
börn eða til dæmis hunda.“
Þegar Hönnunarmið-
stöð Íslands bauð tveimur
þekktum hönnunar-
fyrirtækjum til landsins
til fundar við íslenska
hönnuði var Bryndís í hópi
sjö einstaklinga sem voru
valdir til að hitta gestina
og kynna verk sín. „Ég átti
fund sem gekk nokkuð
vel og fann meðbyr. Ég
fór samt alveg afslöppuð
á fundinn vegna þess að
ég átti nú ekki von á að ís-
lensk ull þætti mjög spenn-
andi og gerði ekki ráð fyrir
að gera stóra hluti þarna.
En þetta gekk nokkuð vel,
ég fann meðbyr og þeir
reyndust vilja kaupa eina
vöru að fundinum loknum.
Fólk úti um allan heim er
spennt fyrir náttúrulegum
afurðum með karakter og
svo hefur þessi vörulína
það með sér að yfirbragð
hennar er eins og hún sé
handunnin.“
Bryndís hélt síðan áfram
að senda Normann Copen-
hagen hugmyndir sínar og
fyrirtækið keypti einnig í
kúlusnagann í framhald-
inu.
„Mér finnst stærsti sig-
urinn í þessu öllu saman
vera að þessi samningur
er ein staðfesting þess að
íslensk hönnun getur verið
atvinnuskapandi og að við
getum vel framleitt úr okk-
ar hráefni og unnið hönn-
unarvörur hér heima. Ég
var búin að leita til Örva,
sem er verndaður vinnu-
staður, með þetta verkefni
og þau vantaði verkefni í
kreppunni þannig að þau
unnu fyrstu pöntunina frá
Normann Copenhagen
og nú eru tveir verndaðir
vinnustaðir á austurlandi
að framleiða upp í næstu
pöntun. Það er því allt
jákvætt við þetta og þessi
samningur er til marks um
að íslenskt hugvit getur
verið atvinnuskapandi.
Stjórnvöld leggja samt
sama sem ekkert í hönnun.
Styrkir liggja ekki á lausu
og það er bara harkan og
viljinn sem heldur manni
gangandi.“
bryndÍs bolladóttir náði samningi við danskan hönnunarrisa
Rúllar ullar-
kúlum út um
allan heim
Textílhönnuðurinn Bryndís Bolladóttir
hefur í um það bil tvö ár unnið með
hið einfalda kúluform og íslenska ull
og á þessum sjálfsögðu og hversdags-
legu fyrirbærum byggir hún vörulínu
sína sem hún kallar Kúlu. Hún hefur
nú náð þeim merka áfanga að danski
hönnunarrisinn Normann Copenhagen
hefur tekið hluti úr Kúlu-línunni upp á
sína arma og sér til þess að munirnir
verði seldir úti um allan heim.
Styrkir liggja
ekki á lausu
og það er
bara harkan
og viljinn
sem heldur
manni
gangandi.”
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt
Tilkynnt var um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverð-
launanna á miðvikudag. Á sama tíma var tilkynnt um
tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna. Íslensku
bókmenntaverðlaunin skiptast í tvo flokka, skáldverk og
fræðiverk og rit almenns eðlis.
Í flokki skáldverka voru þau Bragi Ólafsson (Hand-
ritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússon-
ar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson),
Bergsteinn Birgisson (Svar við bréfi Helgu), Gerður
Kristný (Blóðhófnir), Sigurður Guðmundsson (Dýrin
í Saigon) og Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir (Mörg eru
ljónsins eyru.)
Í flokki fræðiverka og rita almenns eðlis voru þau
Einar Falur Ingólfsson (Söguspor – Í fótspor W.G.
Collingwoods), Guðni Th. Jóhannesson (Gunnar Thor-
oddsen – Ævisaga), Helgi Hallgrímsson (Sveppabók-
in – Íslenskir sveppir og sveppafræði), Margrét Guð-
mundsdóttir (Saga hjúkrunar á 20. öld) og Sigrún
Pálsdóttir (Þóra biskups og raunir íslenskrar embættis-
mannastéttar).
Atli Magnússon (Si-
las Marner eftir George
Eliot), Erlingur E. Hall-
dórsson (Gleðileikurinn
guðdómlegi eftir Dante
Alighieri), Njörður P.
Njarðvík (Vetrarbraut eft-
ir Kjell Espmark), Ósk-
ar Árni Óskarsson (Kaffihús tregans eftir Carson
McCullers) og Þórarinn Eldjárn (Lér konungur eftir
William Shakespeare) voru tilnefnd til Íslensku þýð-
ingaverðlaunanna. -óhþ
Íslensku bókmenntaverðlaunin tilnefningar
15 bækur tilnefndar