Læknablaðið - 15.03.1983, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ
69
4. UPPLÝSINGAKERFI RÖNTGENGREININGA
4.1. Þegar eftir 1950 var orðið ljóst, að þróun
röntgentækjaframleiðslu með aukinni notkun
rafeindatækni í byggingu myndkerfanna myndi
leiða af sér breytingar í hefðbundnum rönt-
gengreiningaraðferðum (1, 34, 35, 36, 37).
Aukin innsýn 1 og almenn þekking á »miðlun-
arfræði« (communications theory) myndi einn-
ig stuðla að nýjum aðferðum við lausn
verkefna og úrvinnslu röntgengreininga (29,
30, 38, 39). Rök fyrir þessu hvíla að verulegu
leyti á niðurstöðum tæknirannsókna á mynd-
yfirfærslueiginleikum (transfer function) hinna
nýrri röntgenmyndunarkerfa (4, 40, 41, 42) og
á aukinni þekkingu á og notkun niðurstaðna
og kenninga um lífræn og sálræn áhrif á sjón
og sjónskynjun (visual perception), við hlut-
lægt mat á nákvæmni og endurtekningarhæfni
(reproducibility) í hinum hefðbundnu rönt-
gengreiningaraðferðum (31, 43, 44, 45, 46).
4.2. Garland, Yerushalmy o.fl. beittu sér 1944-
1946 fyrir rannsókn á nákvæmni og áreiðan-
leika greiningarniðurstaðna varðandi berkla-
grunsamlegar breytingar í lungum. Upphaf-
legur tilgangur var að prófa og bera saman
mismunandi tækjabúnað og filmustærðir (47)
en frumniðurstöður um greiningarnákvæmni
og villur leiddu til þess, að áfram var haldið
með tilraunir á
a) samanburði á greiningum margra hópa
röntgenlækna á sömu myndum,
b) endurteknum samanburði sömu hópa og
sömu mynda,
c) endurteknum samanburði á greiningum
einstakra lækna á sömu myndum.
Rannsóknir þessar, sem náðu yfir mörg ár og
mörg sjúkrahús í Bandaríkjunum, hafa verið
taldar mjög merkt framlag til rannsókna á
endurtekningarhæfni (reproducibility), saman-
burðarskekkju (interobservatory error) og
einstaklingsskekkju (intraobservatory error)
(2).
Yerushalmy og samstarfsmenn hans hafa
gert þessum rannsóknum skil í fjölda greina á
undanförnum áratugum (46, 47, 48, 49) og sýnt
fram á, að í hinum venjulegu greiningaraðferð-
um felst veruleg hætta á skekkjum, er
athyglin beinist einkum að ákveðnu einkenni
eða einkennum, hvort sem bornar eru saman
Önnur sjónatriði Annað skyninntak
Áherzlan er hér lögd á sjálfan greiningarferilinn og sýnt hvernig upplýsingainnihald tekur breytingum og
verdur fyrir áhrifum í peim ferli. — Gert eftir THOMAS (52).