Læknablaðið - 15.03.1983, Síða 33
LÆKNABLADIÐ
83
6.10. Þessi flókna túlkunar- og miðlunarað-
staða er ein af orsökum pess, að rökréttir
greiningarlyklar röntgenrannsókna hafa verið
og eru mjög erfiðir í gerð:
Hér er mjög sjaldan hægt að gefa niður-
stöðuskýrslu í óvíræðum tölum með stöðluð-
um samanburði á sama hátt og t.d. í meinefna-
fræðilegum umsögnum og greiningum, heldur
verður umsögnin og þar með niðurstaðan
oftast með nokkrum persónulegum blæ rann-
sóknandans, viðtakandans og jafnvel sjúk-
lingsins. Með tölvugeymdum válgreiningarað-
ferðum má að vísu draga nokkuð úr pessum
blæmun, en skilgreiningar í slíkum forskriftum
er hins vegar ekki heldur hægt að túlka með
ákveðnum tölum í öllum tilvikum.
í tölvugeymdum greiningarkerfum, eins og
t.d. RADIATE, sem getið var um í 4. kafla,
hefur verið reynt að vinna gegn þessum
hlutlægniserfiðleikum, m.a. með því að gefa
mismunandi röðun greiningarþátta (diagnostic
criteria) mishá líkindagildi (confidence rating)
frá greiningarsjónarmiði (mynd 6.10.1.).
Þessi tegund stiggreiningar leysir þó engan
veginn allan þann vanda, sem felst í uppbygg-
ingu og innihaldi röntgenumsagnarinnar
og/eða röntgengreiningarinnar: Niðurstaða
röntgenrannsóknarinnar, eins og henni eru
gerð skil í röntgengreiningu og/eða umsögn,
getur verið með fernu móti:
Einkenni Greiningarvalkostir
1. 1 a b c d
II. 2 1 a b c
III. 3 2 1 a b
IV. 4 3 2 1 a
6.10.1. Dæmi um breytilegt líkindagildi (confidence
ra ting) vid mat á rannsóknarnidurstödu.
í pessum dæmum er radad saman 1-4 einkennum og
jafnmörgum valkostum. Eftir því sem fleiri einkenn-
um er radad saman peim mun færri verda valkost-
irnir. Þannig fæst aukid líkindagildi á ferlinum frá
I-IV.
a) Skýr afbrigði á gerð líffæris (t.d. með-
fæddur galli),
b) starfræn truflun (t.d. achalasia cardiae),
c) ekki nánar skilgreinanleg, en þó sjúkleg
breyting í líffæri (t.d. infiltratio pulmonis),
d) skýrt afmörkuð sjúkdómsgreining (t.d. frac-
tura femoris, ulcus duodeni).
Eins og þessi upptalning ber með sér, er
miklum erfiðleikum bundið og nánast ógerlegt
að gera röntgengreiningarlykil þannig úr garði,
að hann sé fullkomlega rökréttur. Þeim mun
þýðingarmeira er, að allar skilgreiningar á
dálkum lykilsins séu sem skýrastar og er
viðleitnin til þess undirstaða flestra þeirra
skráningarlykla greininga og niðurstaðna, sem
nú eru notaðir, enda nauðsynleg forsenda fyrir
notkun tölvugeymdra skráningarkerfa.
6.11. í áður tilvitnuðum greiningarlyklum, t.d.
A.C.R. (67) er lögð áherzla á venzlatengda
(hierarkiska) gerð greiningarlykils, en jafn-
framt þurfti stundum að vísa til skráningarað-
ferða, sbr. þessa töflu og mynd 6.11.1:
300 NEOPLASM
310 Benign neoplasm or cyst
311 Polyp, polyposis, papilloma
315 Cyst, pseudocyst, mucocele, polycystic
disease, pseudomyxoma
319 Other
320 Malignant neoplasm -primary
321 Carcinoma
329 Other
330 Malignant neoplasm -secondary
340 Extra-alimentary mass affecting
gastro-intestinal structure
343 Liver, spleen
344 Pancreas
345 Biliary tree, gallbladder
349 Other
350 Hepatomegaly, splenomegaly
Pessi tafla sýnir lítinn part úr greiningarlykli
meltingarfæra. Þegar þessi tengsl eru skoðuð
með nokkurri gagnrýni, kemur í ljós, að enda
þótt skilgreining heita á »neðri« stigum venzla-
trésins sé í öllum tilvikum rökréttur hluti
efri og efstu skilgreininga, þá eru valkostir
orðnir allmargir, þegar komið er niður á þriðja
stig og bjóða raunar heim mun flóknari
stiggreiningu en taflan sýnir. Það kom einnig í
ljós, að á greiningarlykli A.C.R. voru 1036
skilgreiningar. Ekki þótti fýsilegt að hefja
þessa starfsemi með svo flóknum og marg-
brotnum lykli.