Læknablaðið - 15.05.1983, Blaðsíða 22
144
LÆKNABLADIÐ
Algengi annarra sjóngalla má miða við
heildartölu sjónprófaðra á heilsugæslustöðv-
um, enda voru par skoðuð 82.5 % af fæðing-
arárgöngunum.
Pegar borin er saman könnun, gerð í Suður-
Svípjóð fyrir rúmum áratug, kemur í ljós mjög
svipaður árangur leitar að sjóngöllum 4 ára
barna og í pessari könnun (2).
Hjúkrunarfræðingar sjónprófuðu börnin á
heilsugæslustöð og augnlæknir skoðaði pau,
sem ekki stóðust pær kröfur um sjón og
samsjón, sem gerðar voru.
Sömu rannsóknaraðferðir og skilmerki voru
notuð í báðum könnunum. Árangur beggja
kannananna er sýndur í 9. töflu. Tæplega 4 %
voru með skjálg og um 8 % purftu gleraugu.
Aðal sjónlagsgallinn var fjarsýni>2.5 D,
28.5 % af skoðuðum, en nærsýni var 3.9 % eða
mjög svipað og í þessari könnun.
í pessari sænsku könnun var talið að um
97 % barna með sjóngalla hafi fundist með
sjónprófi einu saman og ef krafa um lág-
marksssjón hefði verið minni en 5/6 hefði
árangur orðið mun lakari.
í Cardiff var kannað afbrigðilegt vöðvajafn-
vægi hjá heilum fæðingarárgangi, 4832 börn-
um, 4-5 ára (3). Algengistölur eru mjög svipa-
ðar og í þessari könnun, nema að tiltölulega
fleiri fundust par með tileygð í Cardiff- könnu-
ninni sbr. 10. töflu.
í Finnlandi reyndust 2.7 % fjögurra ára
barna vera með skjálg í könnun, sem par var
gerð og 1.3 % með starfræna sjóndepru (am-
blyopia) (5).
Hversu mörg börn með meiriháttar sjón-
galla fundust ekki við augnskoðun 4 ára barna
á heilsugæslustöðvum í þessari könnun? Því er
svarað með skipulegri leit eftir að börn eru
byrjuð í skóla. Par sem börn, sem ekki ná 5/6
sjón eru send til augnlæknis er sennilegt að
flest börn með meiriháttar sjóngalla komi í
leitirnar við frumskoðunina eins og komið
hefur í ljós við sænsku könnunina.
Af línuritinu má nokkuð ráða hversu mörg
af 4 ára börnum í þessari könnun verða
nærsýn.
Sjónlag breytist með aldrinum en mest á
unglingsaldri. Talið er að framhluti augans hafi
náð fullum vexti, pegar hann er tveggja ára.
Afturhluti augans er í vexti fram yfir tvítugt og
augað verður dýpra. Skýrir petta sjónbreyt-
ingu yfir í nærsýni. Þeir sem fæðast með rétt
sjónlag eða fjarsýni á lágu stigi verða því
nærsýnir, þegar fram-aftur ás augans lengist
Table IX. Ophthalmological examination of 4 year o!d children in Reykjavik and Sweden (2) (screening and diagnostic investigation).
Iceland Sweden
1981 1971
Vision screening of
4 years old 2128 2387
Referred to Eye department 309 358
Referred 14.4 °/o 15.0 %
Found with significant eyedisorders 42.1 % 43.0 %
Eye disorders percentage of screened 6.1 % 6.4 %
Table X. Comparision of muscular imbaiance of 4
year old children per thousand population in pre-
sent study and the Cardiff study (3).
Reykjavík Cardiff
Esotropia 20.8 36.2
Exotropia 7.3 7.7
Esophoria 7.3 6.7
Exophoria 6.6 6.7
Total 42.0 57.3
Table XI. Ophthalmic examination of 4 year old
children born 1976 and 1977 done at the orthoptic
clinic St. Joseph's Hospital.
Percentage
of children
born 1976
Regions Number and 1977
Reykjavík .... 410 15.9
Suburbs .... 137 10.2
Other communities .... 100 2.4
The whole country 647 8.1
og myndin, sem horft er á fellur í brennidepil
fyrir framan sjónhimnu.
í skýrslu (11) um skólaeftirlit í grunnskólum
í Reykjavík 1980 segir að 13.068 börn hafi
verið sjónprófuð en það er 87.1 % af öllum
nemendum. Af sjónprófuðum voru 1554 með
gleraugu eða 11.9% af sjónprófuðum. Af
þessu má sjá að nærsýnum er farið að fjölga
meðal barna á grunnskólastiginu (6-15 ára).
í 11. töflu greinir frá börnum sem fædd eru
1976 og 1977, sem höfðu verið skoðuð á
gögudeild augndeildar í árslok 1981. Eru
langflest úr Reykjavík, þar næst úr nágranna-
bæjum, en langfæst utan af landsbyggðinni.
Börn á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri eiga
kost á augnþjálfun, en önnur ekki.