Læknablaðið - 15.12.1984, Blaðsíða 16
334
LÆKNABLADID
nýrri, en hér eru þrjár eftirmeðferðir á móti
hverri nýrri.
í greininni sem vitnað er í hér að ofan
kemur í ljós, gagnstætt því sem áður hafði
verið sýnt fram á, að sjúklingar sem meðhöndl-
ast með raflækningu dvelja lengur á sjúkra-
húsi en sambærilegur hópur sjúklinga sem fær
annars konar þunglyndismeðferð. Einnig kem-
ur fram, í mótsögn við það sem aðrir hafa
haldið, að raflækningar minnka ekki líkur á
sjálfsmorðstilraunum eða sjálfsmorðum. Þá
eru bornir saman sjúklingar sem meðhöndl-
aðir eru með lyfjum annars vegar og raflækn-
ingum hins vegar.
Raflækningar munu halda áfram að vera
nauðsynlegur þáttur í meðferð sjúklinga, fyrst
og fremst þeirra sem hafa sjúkdómsgreining-
una innborin geðlægð og ekki hafa svarað
annarri meðferð. Rannsóknir verða því að
halda áfram á verkun, aukaáhrifum og saman-
burði raflækninga við önnur meðferðarform.
Grein Hlédísar Guðmundsdóttur er byrjunin á
því starfi hérlendis.
Tómas Zoega
HEIMILDIR
1) Squire LR, Chace PM. Memory functions six to
nine months after electroconvulsive therapy.
Arch Gen Psychiatry. Vol 32, Dec 1975.
2) Babigian HM, Guttmacher LB. Epidemiologic
considerations on electroconvulsive therapy.
Arch Gen Psychiatry. Vol 41, March 1984.