Læknablaðið - 15.12.1984, Blaðsíða 21
LÆKNABLADID
337
sjúklingurinn lést af völdum meinvarpa frá
melanóma á litlu sjúkrahúsi úti á landi.
Lengd sögu um einkenni, sem með tals-
verðri vissu má rekja til æxlisvaxtar í auga,
er sýnd á töflu V. Þar sést, að 10 sjúklingar
höfðu haft einkenni í meira en 6 mánuði áður
en aðgerð var framkvæmd. Ekki var neinn
marktækur munur á lengd sögu eftir kynjum.
Meinafræðilegar rannsóknir. í töflu VI sést
vefjaflokkunin samkvæmt ICD-O flokkuninni
(8). Um helmingur æxlanna var af epitelioid
frumugerð. Yfirlit yfir stærð, litarefni og ífar-
Fig. 2. Incidence rates per 100 000 of chorodeal
melanoma, adjusted to Icelandic standard populati-
on. Five periods of five years. Male-female ratio
1,4.
andi vöxt í hvítu sést í töflum VII-IX. Ekki
tókst að sýna fram á samband á milli stærðar
æxlis og lengd sögu. Ekki var heldur neinn
munur á stærð æxlis eftir kynjum.
Afdrif og horfur. Þann 31.12.1982 voru 19
sjúklingar látnir samkvæmt upplýsingum úr
Krabbameinsskránni. í töflu X sést að 9
sjúklingar höfðu látist af völdum sjúkdómsins.
Er pað 31 % af heildarfjöldanum eða 47 %
látinna. Ekki fundust nein merki um meinvörp
hjá neinum hinna. Samkvæmt dánarvottorðum
voru aðeins 6 sjúklingar krufnir eða 32 %
peirra sem létust.
A 4. mynd sést línurit yfir lífslíkur allra
sjúklinganna eftir aðgerð. Línuritið endar í
stöllum þegar frá líður. Er pað vegna pess
hversu sjúklingarnir eru fáir. Líkurnar á því að
lifa í 5 ár voru 51 %. Tveir sjúklingar voru enn
á lífi 16 árum eftir aðgerð. Þeir sem dóu af
völdum meinvarpa lifðu lengst í 5 ár.
Á 5. mynd sjást 5 ára lífslíkur eftir kynjum.
Líkur karla á að lifa eftir 5 ár voru 64 % en
lífslíkur kvenna aðeins 30 %, (p = 0.055 reikn-
að samkvæmt aðferð Greenwoods, »two tails
of the standard normal curve« (6)).
Á 6. mynd sést mismunur á afdrifum sjúk-
linganna eftir frumugerð æxlisins. Sjúkling-
um með æxli af »spindle cell« gerð farnaðist
best, en þeir sem höfðu æxli af »epithelioid«
gerð lifðu styst. Fimm ára lífslíkur voru 87 % fyr-
ir »spindle cells«, 48 % fyrir »mixed cells«
og 33 % fyrir »epithelioid cells«.
M
Fig. 3. Choroideal melanoma in Iceland 1955-1979. Number of cases in different regions. Total number 29.
Reykjavik area (HBS), Sudurnes (SN), Vesturland (VL), Vestfirðir (VF), Norðurland vestra (NV), Norðurland
eystra (NE), Austurland(AU), Suðurland(SL).