Læknablaðið - 15.02.1986, Síða 29
LÆKNABLAÐIÐ
41
Lbl: Við höfum nú aðeins tæpt á nokkrum
þeirra atriða, sem til álita koma, en prentrými
sníður okkur stakk. Vildir þú Ijúka þessari
umræðu, Guðmundur Sigurðsson?
Guðmundur Sigurðsson: Ég vil ekki ljúka
þessari samræðu svo, að þær skoðanir, sem ég
hef á ákveðnum atriðum, sem rædd hafa
verið, sérstaklega í sambandi við tölvu-
skráningu heilsugæslustöðva, komi ekki al-
veg skýlaust fram hérna.
Ég minnntist á það atriði, að það væri að
mínu mati grunnatriði, að ekki breyttist sá
hópur, sem bæri ábyrgð á vörslu þessara
upplýsinga, hvort sem það væri í venjulegum
sjúkraskrám eða tölvu.
Ég legg áherslu á að við forðumst stórar
einingar, ekki bara stórar tölvueiningar,
heldur líka stórar stofnanaeiningar, stórar
kerfiseiningar, því að þar liggur í rauninni
grunnvandinn.
Ég myndi jafnvel ganga svo langt, að það
ætti að vekja sérstaka athygli, t.d. starfs-
manna á heilsugæslustöðvum, á því, hvort
þeir megi og þá hvernig þeir megi flytja
upplýsingar í gegnum síma úr einni tölvu í
aðra.
Ég er jafnvel þeirrar skoðunar, að það eigi
að leggja bann við því að gera það. Þetta er
mjög erfitt, vegna þess að það er klárt, að
menn þurfa að sækja sér upplýsingar í
gagnabanka, ekki bara hér á landi, heldur líka
erlendis, um lyf, um bókmenntir í læknis-
fræði o.s.frv. og um leið og þú hefur
möguleikann út, þá hefurðu líkamöguleikann
inn.
En ég treysti mér vel til þess að svara fólki,
sem spyr:
Hver ber ábyrgð á þessum upplýsingum?
og segja:
Það er þetta fólk, sem vinnur hér, sem hefur
aðgang að þessum upplýsingum, sem ber
ábyrgð á þeim, og þær eiga ekki að fara neitt
annað.
pHarma-medica a-s legat for medlemmer af det dermatologiske selskab i et af de nordiske lande.
Ansogning i 2 eksemplarer indsendes til:
Dr. Hannes Thorarinsson
Soleyjargotu 27
I-101 Reykjavik
Island
Tilskud til klinisk relevant forskning. Projektet bedommes af Nordisk komite og 1-2 ansogere
kan komme i betragtning.
Ansogning má indsendes senest 21.03.86.