Læknablaðið - 15.11.1986, Qupperneq 13
LÆKNABLAÐIÐ
293
Guöjón Guðmundsson, Ari
Jóhannesson og Bragi
Níelsson rœddu við
Lœknablaðið.
Ef vel ætti að vera þyrfti að vera röntgenlæknir á
staðnum ef ekki að staðaldri, þá a.m.k. lengur í
einu en nú er, þannig að færi gæfist á meiri
samvinnu við fasta lækna sjúkrahússins.
Læknar og annað starfsfólk
Haukur Kristjánsson var fyrstur lækna ráðinn að
Sjúkrahúsi Akraness. Hann tók til starfa ári áður
en sjúkrahúsið var formlega opnað. Haukur
starfaði á Akranesi til ársins 1955 er hann varð
yfirlæknir á Slysavarðstofu Reykjavíkur. Þá tók
við prófessor Guðmundur Thoroddsen, sem
gegndi starfinu í nokkra mánuði, eða þar til Páll
Gíslason varð yfirlæknir sjúkrahússins. Páll
gegndi starfinu til 1970.
Nú eru fjórir yfirlæknar á sjúkrahúsinu, þeir Ari
J. Jóhannesson sérfræðingur í Iyflækningum,
Bragi Níelsson sérfræðingur i svæfingum,
Guðjón Guðmundsson sérfræðingur í
skurðlækningum og Stefán J. Helgason
sérfræðingur i kvensjúkdómum. Auk þeirra eru
þrír sérfræðingar í hlutastarfi og fimm
aðstoðarlæknar í fullu starfi, þar af fjórir
námskandidatar. Þar við bætast þrír læknar á
heilsugæslustöðinni. Allir sérfræðingarnir eru
jafnframt með sjálfstæðan stofurekstur.
Þróunin hefur orðið sú að þjónustan hefur aukist
stöðugt þótt rúmum hafi ekki fjölgað í samræmi
við það. Þegar augljóst var orðið að sjúkrahúsið
yrði ekki fullnýtt með þeim starfskröftum er voru
á staðnum, var sú leið valin að bjóða fleiri
sérfræðingum vinnuaðstöðu á sjúkrahúsinu.
Áður var þess getið að röntgenlæknir kemur á
sjúkrahúsið einu sinni í viku og rannsóknalæknir
einu sinni í mánuði. Að auki kemur barnalæknir
þrisvar í mánuði, bæklunarlæknir tvisvar í
mánuði og háls-, nef- og eyrnalæknir einu sinni í
mánuði. Augnlæknir hefur einnig komið
reglulega á sjúkrahúsið fram til þessa en ekki
framkvæmt neinar aðgerðir þar. Nú er Guðrún
Guðmundsdóttir augnlæknir nýkomin til starfa
með fast aðsetur á Akranesi og von er á Þóri
Bergmundssyni háls- nef- og eyrnalækni.
Ráðningar annars faglærðs starfsfólks hafa verið
nokkuð sveiflukenndar. Stöðugur skortur er á
hjúkrunarfræðingum og vantar tvo
hjúkrunarfræðinga á deild. Margir
hjúkrunarfræðinga eru í hlutastarfi. Eykur það
mjög alla vinnu við launabókhald og útheimtir
meiri starfsmannafatnað. Launalega koma
hjúkrunarfræðingar í hlutastarfi þó betur út þrátt
fyrir það að þeir sem eru í 80% starfi eða meira
séu einum launaflokki hærri.
Á Akranesi eru búsettir 38 hjúkrunarfræðingar,
þannig að ekki kreppir skórinn þar að, heldur er
hjúkrunarstarfið einfaldlega ekki eins eftirsótt og
áður var og töluvert um það, að
hjúkrunarfræðingar hætti eða hverfi í önnur
störf.
Upp á síðkastið hefur gengið nokkuð vel að fá
sjúkraliða til starfa. Leyfi er fyrir 38 sjúkraliðum
í fullu starfi. Einnig er leyfi fyrir tveimur
sjúkraþjálfum í fullu starfi, en ekki veitti af
einum í viðbót. Meinatæknar eru sex í
sameiginlegu starfi fyrir sjúkrahúsið og
heilsugæslustöðina, þrír í fullu starfi og þrír í
hlutastarfi. Tveir röntgentæknar starfa á
sjúkrahúsinu og iðjuþjálfi í hlutastarfi.