Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 22
300 1986; 72: 300-6 LÆKNABLAÐIÐ Baldur Johnsen ÞYNGD SKJÖLDUNGS í ÍSLENDINGUM INNGANGUR í framhaldi af vefjameinafræðilegum rannsóknum höfundar á burðarmálsdauða með krufningum á Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði 1955-1976 (1, 2) var nú ætlunin að taka saman þyngdarmælingar undirritaðs á skjöldungum og nýrnahettum úr sama efniviði áranna 1967-76, en um slíkt^hafði ekki verið birt neitt fyrr miðað við líkamsþyngd barna 0-7 daga gamalla. Þegar þessar niðurstöður lágu fyrir varð tæplega undan því vikist, að gera nýja athugun á þyngd skjöldunga í fullorðnum íslendingum, ekki síst ef hafðar voru í huga breyttar neysluvenjur, sem gátu leitt til stækkunar kirtilsins. Menn vissu að fyrir 40 - 50 árum var skjöldungur íslendinga minni en annarra manna. Júlíus Sigurjónsson sýndi fram á þetta í doktorsriti sinu Studies of the human thyroid in Iceland (3). Rannsókn Júlíusar beindist fyrst og fremst að fullorðnu fólki, 146 körlum og 118 konum, og reyndist þyngd skjöldunga meðalþyngd úr 20-80 ára aldursflokkum karla vera 13,98 g og kvenna 11,58. Á þeim tímum reyndust Norðmenn í Bergen vera líkastir íslendingum með 13,56 g skjöldungsþyngd, en næstir komu Japanir með 13,80 g og þá Skotar í Aberdeen með 16,94. Meginlandsþjóðir voru með miklu þyngri skjöldunga. Strandþjóðirnar með létta skjöldunginn byggðu mataræði sitt mikið á fiskmeti og öðru sjávarfangi, jafnvel enn meira en nú þekkist. Til dæmis urðu íslendingar öldum saman að nota harðfisk i stað brauðs (5) og þangtegundina söl (rhodymenia palmata) í stað káls (6). Allt eru þetta mjög joðríkar fæðutegundir og þótti fræðimönnum og þykir enn góð samsvörun í slíku mataræði og léttum, en joðríkum skjöldung (7). í fólki á meginlandssvæðum fjarri sjó austan hafs og vestan er fæðan oft joðfátæk Frá Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði. Barst 23/06/1986. Samþykkt til birtingar 12/08/1986. svo að skjöldungur stækkar stundum úr hófi, svo að lýti verða af framan á hálsi og fengu hirðmeyjar Maríu Theresíu í Austurriki óspart að kenna á sliku á sínum tíma sem sjá má á málverkum. Fram á miðja þessa öld var á svæðum fjarri sjó meðalþyngd skjöldunga oft 40-50 g. Hér var um að ræða svokallaða landlæga einfalda skjöldungsstækkun (simple endemic goitre), sem aðeins var hægt að lækna eða koma í veg fyrir með því að bæta joði í fæði þessa fólks. í því sambandi má geta þesss, að Marine í Ohio gaf stúlkum í framhaldsskóla nokkrum 30 g af natríum joðsalti tvisvar á ári með þeim afleiðingum er stundir liðu, að tíðni skjöldungsstækkunar féll úr 20% í 0,2%. í sambandi við hinn smávaxna skjöldung í íslendingum samfara joðríku fæði hafa vaknað ýmsar spurningar um tíðni sérstakra skjöldungssjúkdóma hér á landi, svo og afbrigðilegra lífeðlisfræðilegra áhrifa lítils, joðriks skjöldungs á efnaskipti líkamans. Innlendir og erlendir vísindamenn hafa sérstaklega beint athyglinni að íslendingum í þessu sambandi. Fyrstur til að beina athyglinni að skjöldungskrabbameini í þessu samhengi var Ólafur Bjarnason í erindi er hann flutti um það efni 1964 (9) en hann hefur síðan fylgt því máli eftir (10-13). Þessar rannsóknir Ólafs Bjarnasonar og félaga leiddu í ljós all miklu meiri tíðni skjöldungskrabbameins í íslendingum heldur en í öðrum Norðurlandabúum, en þar bar langhæst krabbamein með totumyndun (carcinoma papilliferum). Ekki eru þessir vísindamenn þó á einu máli um orsakir og afleiðingar hér, og fróðlegt verður að fylgjast með, hvort breyttar lífsvenjur íslendinga hafa einhver áhrif er fram líða stundir, á tiðni skjöldungskrabbameins. Joðinnihald íslenskra fæðutegunda hefir þó Iítt verið rannsakað, nema mjókur, sem reyndist all joðrík, enda kýr og annar búpeningur oft alinn á sjávarfangi, sem fóðurbæti fyrrum (14). Þá var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.