Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 40

Læknablaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 40
308 LÆKNABLAÐIÐ varo-excavatus. Þar af voru 323 fætur skornir upp á bæklunarskurðdeild Landspítalans og 70 fætur á St. Jósefsspítala. Aðgerðirnar voru gerðar á báðum fótum allra sjúklinga utan eins. Allir leituðu læknis vegna vaxandi, staðbundinna þreytu- og álagsverkja. Til eftirrannsóknar voru valdir 106 sjúklingar þar sem sjúkdómsgreiningin var eingöngu pes varo-excavatus congenitus. Holfætur af öðrum orsökum voru því útilokaðir úr efnivið rannsóknar. Áttatíu og tveir þessara sjúklinga voru skornir upp á bæklunarskurðdeild Landspítala og 24 á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Þar sem allir sjúklingar nema einn gengust undir aðgerð á báðum fótum, var hér um að ræða rannsóknarefnivið, er tók til 211 fóta, þ.e. 53,4% allra þeirra fóta sem þessi aðgerð hafði verið gerð á. Af þeim 106 sjúklingum sem eftirrannsókn var gerð á voru áttatíu og fimm (80,2%) á vaxtarskeiði, þ.e. 16 ára og yngri (hópur I) og tuttugu og einn (19,8%) fullvaxinn (hópur II). í hópi I voru 100 fætur stúlkna og 70 fætur pilta. Stúlkurnar voru 6-16 ára við aðgerðina (meðalaldur 12 ár), en piltarnir 6-15 ára (meðalaldur 12 ár) (Mynd 2). í hópi II voru 29 fætur kvenna og 12 fætur karla. Konurnar voru 17-35 ára við aðgerð (meðalaldur 20 ár) en karlar á aldrinum 17-34 ára (meðalaldur 24 ár). (Mynd 3). Tcekni við skurðaðgerð. Húðskurður er gerður innanfótar á móts við tuber calcanei (Mynd 10). Aponeurosis plantaris er losuð frá iljarfitu en síðan skorið á festu hennar við hælbein. Allir mjúkvefir með festu á neðri fleti hælbeins eru losaðir frá beini, allt fram að articulatio calcaneo-cuboideum). Eftir aðgerð er fóturinn gipsaður með réttingu formgallans. Göngugips er á í 6 vikur. Eftir gipstöku fullt álag án stoðar. ÁRANGUR Eftirfarandi viðmiðanir voru hafðar við mat á árangri aðgerðar: 1) Mat sjúklings á einkennum fyrir og eftir aðgerð. 2) Rétting á excavatus-skekkju á ilbogum. 3) Rétting á varus-stöðu hælbeins. Árangur aðgerðar var metinn með skoðun, ljósmyndun og röntgenmælingum. Fyrir hóp I var tímabilið frá skurðaðgerð að eftirrannsókn frá einu ári og tveim mánuðum, upp í níu ár og tíu mánuði (meðaltal fjögur ár og tveir mánuðir) á fótum stúlknanna og frá einu ári og einum mánuði, upp í níu ár og fimm mánuði (meðaltal fjögur ár og einn mánuður) á fótum drengjanna. Meðaltímalengd í hópi I var því fjögur ár og einn mánuður. í hópi II (fullvaxta fætur) var fylgst með konunum í eitt ár og tvo mánuði og upp í átta ár og einn mánuð eftir skurðaðgerð (meðaltal tvö ár og átta mánuðir) og með körlunum frá einu ári og fimm mánuðum, upp í sjö ár og átta mánuði (meðaltal þrjú ár og þrír mánuðir). Meðaltímalengd í hópi II var því tvö ár og ellefu mánuðir. Meðaltímalengd eftirlits beggja hópa (I og II) var 3/2 ár. Viðmiðanir - Mat sjúklings á árangri aðgerðar við eftirrannsókn: 1) Góður árangur. Laus við kenndareinkenni. 2) Viðunandi árangur. Minni kenndareinkenni en fyrir aðgerð. 3) Ófullnægjandi árangur. Lítill eða enginn bati. Number of feet Years Fig. 2. Age at operation of growing feet (Group I). Numberogfeet ,» ? Mean age 20 years •—• <? Mean age 24 years 10 Mean age all group 22 years 8 \ _ \ 17 19 21 23 25 27 29 31 33 35 Years Fig. 3. Age at opeation. Fully grown feet (Group II).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.