Læknablaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 43
LÆKNABLAÐIÐ
311
Fig. 8. Photographs taken before operation.
Fig. 9. Photographs taken three years after operation.
Same patient as in figure 8.
excavatus-skekkju hjá 88% þessara fóta og til
réttinga á varus-skekkju hjá 76%.
Af þessum árangri telur höfundur sig geta dregið
þá ályktun, að forsenda sé fyrir þessari aðgerð við
meðferð holfótar á vaxtarskeiði ef veruleg
einkenni eru til staðar. Réttast mun að
framkvæma aðgerðina um 10-12 ára aldur. Þá er
enn eftir það mikið af vaxtarskeiði að
fótarbeinum gefst tími til að vaxa í eðlilegt horf
eftir að herping mjúkvefja sem ollu skekkjunni
hefur verið lagfærð.
Hjá fullvöxnu fótunum (hópur II) gaf aðgerðin
fullnægjandi árangur hvað snerti
kenndareinkenni. Rétting á varus- og
excavatusskekkju þessara fullvöxnu,
ósveigjanlegu fóta var ekki mælanleg við
eftirrannsókn. Aðgerðin virðist því einnig gefa
góða raun hjá fullorðnum með kenndareinkenni
frá holfæti.
Hjá miðaldra sjúklingum er oft komin slitgigt
(arthrosis deformans) í smáliði fótar vegna
langvarandi innbyrðis misgengis fótarbeina með
skekkju liðflata. Þessir sjúklingar hafa oft hratt
vaxandi einkenni og truflun á starfshæfni. Þá er
umrædd skurðaðgerð ekki líkleg til árangurs og
nauðsynlegt að gera staurliða- og réttingaraðgerð
(arthrodesis subtalaris correctiva).
SUMMARY
The congenital »hollow foot« consisting of varus
position of the calcaneus and an abnormally high medial
and lateral longitudinal arch (pes varo-excavatus
congenitus idiopathicus) gives with maturity increased
pain on exertion and functional disability. This
culminates in internal derangement of the individual
bones in the foot, leading to osteoarthrosis with
worsening of all symptoms. In those cases, major
surgical intervention on the foot skeleton is often the
only alternative as classical conservative treatment often
does not give satisfactory results. As surgical
intervention on the growing foot skeleton can result in
growth disturbances, an operative method that is only
confined to the soft parts was used (Steindler’s