Læknablaðið - 15.02.1988, Page 22
48
LÆKNABLAÐIÐ
Þá koma fram í töflunni öll tilfelli af vansköpun á
sama ársbili og í sömu aldursflokkum, 0-6 daga
og 0-1 árs. Þá er og talinn fram fjöldi krufninga á
sama hátt. í yfirlitinu á töflu II er afbrigða getið
og gengið út frá meðfæddri vansköpun í
einstökum hlutum hjartans svo sem hólfum,
veggjum og æðum, en á töflu III eru skráðir
einstakir meðfæddir gallar í hjarta (specific
lesions).
Á töflu II sést að 5 ára meðalfjöldi meðfæddra
hjartagalla í börnum innan eins árs er 30, árin
1957-71, en 17 árin 1972-76. Sem hundraðshluti
(%) af krufningum er fjöldi meðfæddra galla í
hjarta 1957-71 12% en 1972-76 7%, en miðað við
alla vansköpun eru hundraðshlutarnir 47% og
27% á fyrra og seinna tímabili.
Flestir hjartagallar eru í sleglaskipt, 25 og í
gáttaskipt 13, á meginæðarós 11, æðavíxl 8,
meginæðarboga 8 og á stofnæðarloku lungna 7.
Samanber töflu II.
Einstakir meðfæddir gallar í fyrrnefndum
líffærahlutum er galli í sleglaskipt (VSD) 24,
sporgat opið (ASD secundum) 7, meginæðarós
alveg lokaður (AO atresia) 8, fullkomin
meginæðarvíxl (TGA) 8, lungnastofnæðarós
lokaður (PA) 5, sameiginlegur slagæðastofn
(TACP) 5 og slagæðarpípa opin (PDA) 5.
Samanber töflu III.
Eins og tölurnar hér að framan bera með sér er
samanburður milli taflna II og III háður því að
tekið sé tillit til þess, að annars vegar er um að
ræða afmarkaða líffærahluta hjartans og hins
vegar sérstaka nafngreinda galla (specific lesions).
í 390 andvana fæddum börnum komu fram 11
hjartagallar eða 28 af þúsundi.
UMRÆÐA
Niðurstöður rannsókna þeirra, á meðfæddum
hjartagöllum á íslandi, sem hér er gerð grein
fyrir, byggjast á krufningum með hliðsjón af
klinískum sjúkdómsgreiningum, í sumum
tilfellum. Þær gefa góðar upplýsingar um:
1. Tíðni meðfæddra hjartagalla í andvana
fæddum börnum.
2. Sérstaklega afmarkaða (specific) meðfædda
hjartagalla, fjölda þeirra og dreifingu í
krufningum barna innan eins árs.
3. Tölfrœðilegt yfirlit yfir meðfædda hjartagalla
á fimm ára tímabilum árin 1957-76 í hópum
burðarmálsbarna og allra barna innan eins árs
í úrtakinu.
Table III. Incidence of specific lesions of congenital
heart disease.
Lesions N (%)
Ventricular septal defect (VSD).......... 24 (22,0)
Atrial septal defect (ASD secundum)...... 7 (6,5)
Aorta atresia (AO atresia)................ 8 (7,5)
Transposition of the great arteries (TGA). 8 (7,5)
Pulmonary atresia (PA).................... 5 (4,7)
Truncus arteriosus (TACP)................. 5 (4,7)
Patent ductus arteriosus (PDA)............ 5 (4,7)
Tetralogy of Fallot....................... 4 (3,7)
Cor biloculare (2) and Cor triculare
biatriatum (2) ........................ 4 (3,7)
Pulmonary stenosis (PS)................... 3 (2,8)
Eisenmenger complex....................... 3 (2,8)
Coarctation Aortae........................ 3 (2,8)
Absence of portion of aorta arch.......... 3 (2,8)
Persistent common atrioventricular canal. 3 (2,8)
Stenosis of orificium aortae ............. 2 (1,9)
Ebstein’s anomaly......................... 2 (1,9)
Endocardial fibroelastosis................ 2 (1,9)
Pulmonal veins enter right atrium........ 1 (0,9)
Other single cases....................... 11 (10,3)
Note: This table is only indirectly comparable to table 11.
1. Tíðni meðfæddra hjartagalla í andvana
fæddum börnuum. Af 390 andvana fæddum á
rannsóknatímabilinu reyndust 11 hafa hjartagalla
eða 28 af 1.000 börnum (28%o). Þessi útkoma er
fyllilega sambærileg við aðrar rannsóknir svo sem
á austurströnd Bandaríkja Norður Ameríku þar
sem Mitchell og félagar (10) gerðu yfirgripsmikla
rannsókn á 56.109 börnum sem fæddust á fjórða
áratugnum, en af þeim reyndust 1.344 andvana
fædd (24%o) og af þeim andvana fæddu 37
(27,5%o) með hjartagalla, sem fundust við
krufningar. Þetta er nánast sama tíðni, sem
virðist mega byggja á samkvæmt útreikningum á
líkum á hjartagöllum:
Mitchell et al:
WX'^tSt*100'2'75*0-45
Núverandi rannsókn:
-4^r-x 100 + -^X 100 = 2,82 + 0,85
390 390
í rannsókn Mitchells reyndust 457 börn hafa
hjartagalla (8,l%o) samkvæmt ýmsum klínískum
rannsóknum og krufningum, eftir atvikum, en
fylgst var með þessum 56.109 börnum nokkuð
fram á fyrsta áratuginn. Svipuð útkoma hefir
fengist úr slíkum rannsóknum annars staðar eða
7,5-8,0%o (11). Svo yfirgripsmiklar rannsóknir
liggja ekki fyrir hér á landi.
Helstu hjartagallar í andvana fæddum börnum