Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Side 6

Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Side 6
6 Nýtt S. O. S. — „Gott kvöld, hafnsögumaður, mælti Ehrtmann skipstjóri. Hvernig er útlitið? „Eg hef séð hann svartari, skipstjóri. En — ef ég væri í yðar sporum mundi ég hugsa 'mig um tvisvar, hvört ég ætti ekki að bíða til morguns." „Svo slærnt held ég jrað sé nú ekki. — Hvað segja síðustu veðurfréttirnar?" „Yestan átta ennþá. F.kki beinf álitlegt fyrir skipstjóra sem flytur farm á þilfari." Ehrtmann skipstjóri svarar engu. Hann lítur út um gluggann og sér eftírlitsniann- inn á hafnarbakkanum, þar sem hann er að atlmga hleðslumerki skipsins og skrá hversu djúpt það risti. Það lítur út fyrir, að hann sé ekki sem ánægðastur, er hann sér, hve lilaðið skip- ið er. Hleðslumerkið sem á aði sýna Iiá- markshleðslu að vetrarlagi, er komið á kaf í sjó. Það er því auðsætt, að skipið er of lilaðið. En þegar hann fer að athuga skipsskjöl- in, .kemst hann að raun um, að Irena Old- endorff hefur undanþágu um hleðslu, þeg- ar skipið siglir með ströndum fram eð'a milli þýzkra hafna. Skipið hefur fyrirmæli um áð sigla gegnurn Kílar-skurðinn. Eftirh.tsmaður- inn telur því hleðsluna í lagi og heldur á brott. Ehrtmann skipstjóri er ánægður. Hann veit fullvel, að svo gat farið, að honum hefði verið neitað um brottfararleyfi. Þá hefði hann orðið að leggjast upp að Iiafn arbakkanum aftur og losa um 100 tonn úr skipinu. Skipið er of hlaðið sem því magni nemur, vegna þess að ákvörðunar- staðurinn er ekki þýzk höfn heldur sænsk. En nú ætti öllu að vera óhætt jrar til komið er til Holteman. Þá væri í versta tilfelli hægt að losa jressi hundrað tonn. Auk jæss léttist skipið á leiðinni um það, er eyðist af vatni og olíu. F.hrtmann skipstjóri tekur ekki mjög hátíðlega ummæli hafnsögumannsins um þilfarshleðsluha. Hann siglir ekki í fyrsta sinn nú með Jieint hætti. Koks er að vísu frábrugðið timburfarmi, en hvað viðvíkur traustleika skipsins, Jjá hefur hann ekki miklar áhyggjur. lrena Oldendorff hefur jafnan verið fær í flestan sjó. F.tt nauðsyn bar til, að útgerð skipsins léti framkvæma rannsókn á jní. hver yæri raunveruleg sjóhæfni þess, meðal annars með tilliti til þess, hve mikinn hliðarhalla jaað Jiyldi. Þetta hafði ekki verið gert, eða a. m. k. ekki svo öruggt væri. Slík pról' hafði aðeins Charlotte Schröder geng- ið undir og staðizt Jrað. Sú prófraun var svo látin gilda fyrir hin skipin öl 1 fjögur. Þessi háttur mun vera, í samvæmi við lög og reglur, og sjaldan komið að sök. En færi svo sanit, að einhverju hinna fjög- urra skipa lilekktist á, gat slík tanræksla haft alvarlegar' afleiðingar. F.hrtmann skipstjóri ákveður með sjálfum sér, að knýja skipafélagið til að láta frantkvæma nefndai sjóhæfnitilraunir á skipinu. Betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. En nú er tómt mál að hugsa um jtessa hluti, j>ví nú er sjórinn í flóðgáttinni kom- inn í jafnhæð við hafið, og ]>á er liægt að halda af stað. Framundan er nóttin og úfið haf. Nú opnast flóðgáttarhliðið. Merkjasínt- inn gefur til kynna, að skipið megi fara út. Skrúfur Diirthe Oldendorf taka að snú- ast og skipið sígur með hægri ferð út úr flóðgáttinni. „Góða nótt og gleðilegt nýár!" kalla skipverjar til starfsbræðra sinna á lrenu Oldendorff.

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.