Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Qupperneq 7

Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Qupperneq 7
Nýtt S. O. S. 7 „Þökk-----óska þess sama!“ kaliar Ehrt- rnann skipstjóri, er stendnr út við brúar- vænginn. Hann ætlaði að segja eitthvað meira, en stormhviða lokaði munni hans og hafði nær rifið af honum húfuna. Hann veifar til þeirra á Dörthe Oldendorff, sem heldur nú með aukinni ferð út í myrka nóttina. Þá gefur Ehrtmann skipstjóri háfnsögu- manninum merki, að hann skuli nú fara með skipið út úr flóðgáttinni. „Vélina hæga ferð áfram! Stýri tíu á bakborða!“ Þá hefur Irena Oldendorff einnig för sína, þessa örlagaríku för, sem hún átti ekki afturkvæmt úr. Skipið fer hægt gegnum hliðið á Emd- enarflóðgáttinni. Hafnargarðarnir eru brátt að baki, hafnarljósin einnig, nóttin tekur við, biksvört og ógnvekjandi. Ýlfrandi stormurinn tekur á móti skip- inu. Hann er reiður þessu litla fleyi, er ræðst til fangbragða við hann. — Bíddu bara! öskra stormhviðurnar, komdu bara fyrst út á hafið, þá skulum við sýna þér í tvo heimana! En sjómaðurinn lætur ekki hræða sig með svo einföldum hætti. Oft hefur storm- urinn ógnað lífi sjómannsins og það ekki sjaldan á þessum vetri, og tala skipanna, er hafa orðið honum að bráð, er orðin (ihugnanlega há. Allur heimurinn talar einmitt nú um bandaríska flutningaskipið Flying Enter- price (6711 brúttó tonn), sem hefur rekið um Norðuratlantshafið síðan um jól fyrir þungum stormi. Farmurinn, sem er að mestu hrájárn, hefur kastazt til í lestun- um og valdið miklum skemmdum. Stýris- umbúnaðurinn er h'ka gereyðilagður. Skipið hrekst sem rekald undan storm- inum, stjórnlaust rekur þetta stóra flutn- ingaskip, sem þar aðauki er með nokkra farþega innanborðs. Nærstödd skip, sem sjálf verða að berj- ast gegn storminum, koma skjótt til hjálp- ar. Meðal þeirra er bandaríska flutninga- skipið General A. W. Greeley, með fjölda hermanna innanborð, flutningaskipið Golden Eagle og ameríska skipið South- land. Á ’sama tíma og Irena Oldendorff legg- ur út á æstar öldur Norðursjávarins, er áhöfnin á Southland að hefja sitt hættu- lega björgunarstarf við Flying Enterprice. Þessá daga og nætur milli jóla og ný- árs skeður einn hinna stórfenglegu, drama- tísku atburða, sem ávallt öðru hvoru eru að ske á sæ. Og ekki sá síðasti. Hafið hefur enn valið nýja fórn. Sú fórn skal heimt áður en ártalið 1951 hverf- ur úr almanakinu. Skipið; sem fyrir valinu varð, er Irena Oldendorff. Enn er það á valdi Ehrtmanns skip- stjcira að forðast hættuna. Hann þarf að- eins að skipa svo fyrir, að snúið skuli til baka. = • En honum flýgur ekkert slíkt í hug. Hann hefur enga ástæðu til neins ótta. Á leiðinni um Vestur-Ems er stormaldan að vísu orðin allhá og vindurinn virðíst fara vaxandi. En oft hefur hann lent í svipuðum veðrum áður án þess að það gerði skipi hans tjón. Hafnsögumaðurinn reynir heldur ekkert til þess, að draga úr honum lengur. Ehrtmann telur heldur enga ástæðu til að snúa við til Borkum og bíða þar betra veðurs. Illviðrið getur haldizt svo dögum skipt- ir á þessum tíma árs. En tíminn er dýr- mætnr. Hver klukkustund, er skipið ligg-

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.