Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Page 10

Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Page 10
i o Nýtt S. O. S.-------- ar á honum. — — — — Þetta er maður, sjómaður, eftir klæðn- aði mannsins að dæma. Líklega liefur sjór skolað honum fyiir borð og síðan hefur iíkið borizt upp að ströndinni. Björgunarbeltið, sem hann ber, hefur ekki megnað að bjarga lífi hans. Limir mannsins eru enn hreyfanlegir, ekki enn stirðnaðir að fullu. Húðin er víða skrámuð. Blóð drýpur enn úr sárun- um. Það getur ekki verið langur tími lið- inn síðan maðurinn gaf upp öndina, senni- lega aðeins nokkrar mínútur. Strandvörðurinn rís á fætur, og skimar leitandi í kringum sig. Er þetta eina herfangið, sem liafið skil ar aftur, eða-------- Allt í einu tekur strandvörðurinn und- ir sig stökk. í tvö hundruð metra fjarlægð sér hann annan mann. Hann veltist enn í brimsog- unum, hrekst fram og aftur, rétt eins og hafið hefði ekki enn ráðið við sig, hvort það ætti að skila honum upp að strönd- inni eða taka liann með sér í djúpið. Strandverðinum tekst með nokkrum erf- iðismunum að draga manninn á land. Enn einn drukknaður og líkaminn ekki að fullu kólnaður. Hann hefur líka verið sjómaður, sem hin mikla ófreskja hefur kvistað niður í blóma lífsins. Hinn látni ber armbandsúr. Það hefur stanzað kl. 8,10, eða fyrir tæpum tveim klukkustundum. Strandvörðurinn verður gripinn skelf- ingu. En hann vinnur bug á hræðslunni. Fyrst tveim líkum hefur skolað upp að ströndinni með svona litlu millibili, þá hlýtur stórslys að hafa skeð í námunda við eyna. Og það fyrir Örfáum klukkustundum. Gamli maðurinn hættir leitinni. Eins fljótt og kostur er hraðar liann sér til baka. Hann verður að tilkynna strándfó- getanum atburðinn tafarlaust og vekja fólkið. Ekkert er líklegra en fleiri menn liggi í flæðarmálinu, og kannske eru enn einhverjir, sem nú neyta síðustu krafta til að berjast fyrir lífinu. Ef til vill er ekki enn of seint að koma Jieim til hjálp- ar. Fólk Jnisti á fætur við hjálparkallið. Sjálfboðaliðar skunda niður að ströndinni. Þeir leita um allan norðurhluta eyjarinn- ar, el' einhverjir skyldu hafa lifað af sjó- slysið og að fleiri látnum. Hver ntaður er }:>ess albúinn að hætta eigin lífi til að bjarga skipbrotsmönnum, ef J^ess væri þörf. Arangur leitarinnar, sem hafin var |>ennan gamlársdagsmorgun við strendur Borkum, var blátt áfram hræðilegur. Alltaf voru að finnast fleiri og t'leiri drukknaðir sjómenn. Fyrst þrír, þá tveir, einn og einn á

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.