Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Page 14
i4 Nýtt S. O. S.
Leitartækin staðfesta það, er menn
liafði grunað. Á þessum stað, á 19 faðma
dýpi, liggur skipsflak á hafsbotni. Til
fiekara öryggis er larið oft yfir staðinn
með bergmálsdýptarmæli. Og allt ber að
sama brunni. F.n hvort skipið er Irena
Old.endorff, er ekki vitað enn sem komið
er. Til þess að sannprófa það, verður kaf-
ari sendur niður næsta dag.
Kafarinn fer niður og gengur umhvrfis
skipið á hafsbotninum. Það er vöruflutn-
ingaskip af nýjustu gerð og liggur á botn-
inum á stjórnborðssíðu. Kringum skipið
eru miklar dyngjur af koksi, sem hefur
runnið af þilfarinu og úr lestaropunum.
Á kinnung skipsins stendur skýrum
stöfum nafnið: Irena Oldendorff.
Kafarinn beinir sterkum ljóskastara að
botni skipsins og bakborðssíðu. En liann
finnur ekkert er bendi til, að, leki hafi
komið að skipinu eða aðrar skemmdir.
Hvergi er að sjá neitt gat, er hlyti að hafa
kontið, hefði skipið siglt á tundurdufl.
Hinsvegar . getur hann ekki kannað
hvernig stjórnborðssíðan lítur út.
Hann verður nú að fara upp voii bráð-
ar, því verznandi veður neyðir hann til
að hætta rannsóknum sínunt um sinn.
. Vegna storma, er liéldust um tveggja
vikna skeið, var ekki unnt að framkvæma
frekari rannsókn á flakinu fyrr en 25.
janúar.
Fyrst og fremst skyldi ganga úr skugga
um, hver væri orsök slyssins. Hið opin-
bera gerði sér einkum far um að fá úr
því skorið, hvort skipið hefði far.izt á tund-
urdufli eða ekki, því ef skipið hefði siglt
á dufl, yrði að leita enn betur að tundur-
duflum á þessari fjölförnu siglingaleið,
en svæðið átti sem sé að vera vandlega
hreinsað.
Kafarinn vann nú langtímum saman við
flakið til jtess að reyna að finna einhver
rnerki urn tundurduflssprengingu. Hann
leggur líf sitt í hættu er hann klifrar upp
koksdyngjurnar, er nokkúr hluti flaksins
liggur í. Hann leitar vandlega að olíuleka,
jwí ef skip ferst á tundurdufli, þá skemm-
ast nær undantekningárlaust 'smurnings-
o golíuleiðslur. Þá leitar olían upp á yfir-
börðið fleiri daga eftir að skipið sekkur.
En ekkert bendir til, að þetta skip hafi
lent á.tundurdufli. Sú verður fyrsta nið-
urstaða rannsóknarinnar.
Þá léttir þuitgu fargi af sjódómsmönn-
tim.
Nú hefur björgunarfélagið í Hamborg
starf sitt.
Það ætlar að freista jress að ná upp flak-
inu af Irenu Oldendorff. Dráttarbáturinn
Seefalke fer á vettvang og sendir kafara
sinn niður á hafsbotn. Hann á að ganga úr
skug'ga um, hvort unnt sé að lyfta flakinu
upp á yfirborðið. Þessi kafari vinnúr