Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Page 16

Nýtt S.O.S. - 01.02.1957, Page 16
i(i Nýtt S. (). S. ur fundizt á flakinu nein merki þess, að árekstur liafi átt sér stað. Ekki varð annað séð, en Irena Olden- dorl' hafi verið fullkomlega sjófser og allt í bezta lagi um borð til hins síðasta. Samt sem áður sökk luin. Og hún hefur sokkið með mjög skjótum hætti. Hvernig verður það skýrt, að ekki eitt einasta S O S kall var sent út og ekkert neyðarmerki sást. Að vísu hafði Elbe-Weser Radio heyrt tvö S O S köll kl. 03,28 hinn 31. desember, en á þeim kom engin skýring, og ekki var vitað hvaðan köllin komu né livar skipið, er sendi, hafði verið statt. En það má teljast útilokað, að Irena Oldendorff hafi sent út þetta neyðarkall, því þá var hún einmitt þvert út af hafn- söguskipinu „Borkum" og stóð þá í merkjasambandi við það skip. Skipverjar á „Borkum" hefðu og hlot- ið að sjá neyðarblys á Irenu Oldendorff, hefði þeim verið skotið á þeini tíma eða síðar, jafnvel eftir að siglingaljós |>ess voru komin úr augsýn. Veðrið var að vi'su mjög illt, en skyggni ekki slæmt. Má því álykta með fullri vissu, að eng- in neyðarmerki hafi verið send frá Irenu Oldendorff. En hvers vegna ekki? Við þeirri spurningu er aðeins eitt svar: Til þess hefur ekkert ráðrúm gefizt. Er þá augljóst, að skipið helur sokkið á nokkrum mínútum. Eri er hugsanlegt, að nýtt skip, byggt úr bezta efni og fullkomið að allri gerð, hvolfi og sökkvi? Sérfræðingarnir svara þeirri spurningu neitandi. Staðreyndin talar svo öðru triáli. Sérfræðingarnir hafa raunar rétt fyrir sér að því leyti, að slíkt skip gliðnar ekki í sundur allt í einu og hverfur þessvegna í hafið. Raunar gæti hugsazt, að öflugur brot- sjór hefði orkað slíku, en við byggingu skipa er gert ráð fýrir, að þau þoli þunga brotsjói. Orsökin getur því ekki verið þessi. Væri svo, ætti hvert það skip, er lenti í stormi, að sæta þeim válegu afdrif- um. En þessa ömurlegu nótt var þó ekki neitt afspyrnuveður. Átta vindstig á þess- um tíma árs er svo sem ekkert óvenjulegt. Skip af þessari gerð átti meira að segja að geta þolað fellibyl án teljandi skaða. Irena Oldendorff var enginn strandsigl- ingabátur, heldur skip með miklu burð- arþoli, sambærilegt við hvert það skip, er siglir daglega um Norðursjó og Atlants- haf. I‘að mun falla í hlut sjódómsins að skýra orsök slyssins, að svo miklu leyti sem það verður gert. Málið skyldi taka til síðustu umræðu í sjóréttinum 4. júní 1952- Málið fyrir sjórétti. Það var löngu vitað, að sjórétturinn í Bremerhaven mundi gera allt, sem í hans valdi stæði, til þess að grafast fyrir orsök þess, að Irena Oldendorff fórst með allri áhöfn. Ekki einungis til þess að komast að niðurstöðu um, hver bæri ábyrgðina á slysinu, heldur einnig til að sannprófa, ef unnt væri, hvort ágallar í byggingu skips- ins ættu þátt í afdrifum þess, hleðsla skips- ins eða annar útbúnaður og draga nauð- synlega lærdóma af niðurstöðunni. í umræðum málsins, er standa klukku- stundum saman, eru öll atriði krufin til mergjar eins og frekast er kostur. F.n mjög

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.