Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Síða 11
Flavia var á heimleið til Hamborgar frá Havana á Kúbu.
Eftir þrjá sólarhringa má vænta þess, að skipið nái sinni heimahöfn.
Það er mikið annríki í loftskeytakytrunni á Flavia.
Skipstjórinn og útgerðarstjórnin eru í stöðugu loftskeytasambandi til
þess að ráða ráðum sínum um væntanlega umhleðslu skipsins og hvern-
ig hún gangi fljótast fyrir sig.
Þá koma til sögunnar mikill fjöldi skeyta skipverja til ættingja og
vina, sem þeim gefst kostur á að hitta eftir nokkurra vikna eða mánaða
aðskilnað, en þó aðeins tiltölulega stutta stund. Margir verða að leggja
á sig langt ferðalag til þess að geta verið með vinum og vandamönnum
nokkrar klukkustundir. Þá er hver mínútan dýrmæt.
Tíminn er peningar! Svo hljóðar kjörorð hins erilssama nútímamanns.
Kuhs loftskeytamaður vefur sér sígarettu með vinstri hendi, en með
þeirri hægri skrifar hann skeytin, sem berast. Hann telur orðin og reikn-
ar verðið.
Þá verður hann var við eitthvert þrusk að baki sér.
Að baki hans opnast dyrnar að kortaklefanum.
Quapp, sem er þriðji stýrimaður á skipinu, kemur inn. Hann heldur
á könnu með rjúkandi kaffi og hann lokar hurðinni hljóðlega á eftir
sér. Hann hlær, er hann lítur spyrjandi augu loftskeytamannsins.
„Fáðu þér smáhlé — fáðu þér þetta indæla Hagkaffi.*)
Góðlátlegt háð' liggur í orðum stýrimannsins. Allir um borð vita, að
enda þótt loftskeytamaðurinn kunni vel að meta vín og vindla, þá segir
hann baunakaffi hinn óhollusta drykk, sem enginn ætti að leggja sér til
munns. Þess vegna drekkur hann bara Hagkaffi.
Menn brosa að þessu og segja, að allir séu smáskrýtnir á einhvern hátt.
Loftskeytamenn hafa það orð á sér, bæði þeir, sem eru á kaupskipaflot-
anum og í hernum, að þeir séu undarlegustu fuglarnir um borð. Kannski
orsakast þetta af því, að þeir hugsa mikið á einverustundum og ábyrgð
starfsins leggst þungt á þá suma.
En vissulega nýtur starf loftskeytamannsins virðingar, ekki aðeins vegna
þess, að þeir vita um margskonar leyndarmál vegna starfa síns, og atburði,
sem öðrum eru huldir, heldur vegna þess, að ef slys ber að höndum á
hafinu, þá eiga sjómennirnir i mörgum tilfellum líf sitt loftskeytamann-
inum að launa, ef hann er dugandi maður og hugrakkur.
*) Sérlega góð kaffitegund og vel þekkt i Þýzkalandi.
j 1
Nýtt S O S