Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Blaðsíða 29

Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Blaðsíða 29
En snúum okkur aftur að Flavíu. Loftskeytið frá útgerðinni, sem beð- ið hafði verið eftir, var komið. Veðurspáin frá Hamborg kom þegar fram. Stuttu eftir, að Theune skipstjóri hafði snúið skipi sínu í vesturátt, í áttina til Ocean Layer, tók að létta til og skyggni að batna — aðeins þokuslæðingur var nú hér og þar. Um klukkan 12 tilkynnir varðbergsmaðurinn: „Reykský! Eitt strik á stjórnborða!“ Það er „Ocean Layer.“ Skipið rekur þarna enn eitt á hafinu. Um klukkan 14,30 er Flavia komin í nokkur hundruð metra fjarlægð frá hinu brennandi skipi. Vélarnar eru stöðvaðar! Eftir stutta ráðstefnu með yfirmönnum sínum, tekur Theune skip- stjóri eftirfarandi ákvörðun: „Ocean Layer verður bjargað, og tekið í drátt!“ Þetta er stutt en innihaldsmikil skipun! Sæsímaskipið er ennþá í björtu báli, svo að stjórna verður Flavia af hinni mestu gætni. Theune skipstjóri gætir þess vel að viðhafa allar varúðarráðstafanir, því nú hefur hann tvöfalda ábyrgð. Hann er enn með brezku áhöfn- ina, 98 menn, um borð í skipi sínu. Ehlert, fyrsti stýrimaður, fær skipun um að velja menn í björgun- arsveitina. Hann velur þriðja stýrimann, Quapp, og sex hinna reyndustu og hraustustu háseta. Þeim er öllum frjálst að ákveða, hvort þeir vilja taka þátt í þessu eða ekki. Enn einu sinni varar Ehlert þá við: „Þið athugið það, að þetta er ekki áhættulaust. Það er meira að segja hættulegt, herrar mínir.“ Enginn skert úr leik. Löngum skotlínum fyrir dráttartrossurnar er nú fest aftan í bátinn frá Flavia. Allir mennirnir eru klæddir sundvestum, og þrjú eldslökkvi- tæki liggja tilbúin, ef á þyrfti að halda að kæfa snögglega eld, sem festi á þeim. Síðan leggur báturinn frá! Allir um borð, Þjóðverjar sem Bretar, hafa safnast saman á afturskipi Flavia. — Þeir fylgjast spenntir með björgunarstarfi þessara átta manna. Njtt S O S 29

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.