Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Blaðsíða 28

Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Blaðsíða 28
lagsins í Hamborg. Vikum saman hefur hann legið aðgerðarlaus í höfn- inni í La Coruna á Vesturströnd Spánar. Og enginn af áhöfninni bjóst við því, að nokkur verkefni byðist slíku skipi á bezta tíma ársins. Mesti annatíminn var venjulega þá, er haust- og vetrarstormarnir geys- uðu á Atlantshafinu. Þrátt fyrir það, er áhöfnin stöðugt viðbúin og fjarskiptaþjónusta fell- ur aldrei niður. Ef slys ber að höndum er tíminn mikils virði, og sá dráttarbátur, sem fyrstur er á vettvang fær það verk að vinna, að draga hið viðkomandi nauðstadda skip til hafnar. „Wotan" er tilbúinn að leggja af stað á stundinni. Sama er að segja um samskonar skip annarra þjóða, t. d. Breta, Frakka og Spánverja. Þeir eru viðbúnir eins og spretthlaupari á_alþjóðlegu íþróttamóti, sem bíður þess eins að skoti sé hleypt af. í sama bili og loftskeytamaðurinn á Wotan tók á móti fyrsta neyðar- kallinu hringdi hann aðvörunarbjöllunni. Þá var klukkan 2 eftir miðnætti, en samt þutu allir á fætur án þess að mögla og brátt var hver maður á sínum stað. Þetta er sannarlega vel þegið tækifæri til nokkurrar tilbreytingar eft- ir hinar leiðinlegu hafnarlegur — já, og svo vonin í háum björgunar- launum! Er þetta þá aðeins dans kringum gullkálfinn? Er það aðeins verzlun og hagnaðarvon, sem veldur því, að menn ráð- ast til starfa á slfk skip? Sumir láta liggja að því, þegar há björgunarlaun eru greidd. En þá er því gleymt, að þessi skip liggja mánuðum saman í höfn með ærnum kostnaði, það verður greiða hafnargjöld, fæði, eldsneyti, laun og svo framvegis, en allt þetta hefur í för með sér gífurlegan kostnað. Það gleymist líka oft, að ekki sjaldan hrífa þessi skip feikna verðmæti úr greipum Ægis, og oft er það svo, að áhafnir dráttarbátanna hætta eigin lífi í þessum björgunarleiðöngrum. Það skyldi þó ekki falla í gleymsku, að allir sannir sjómenn fara fyrst og fremst þeirra erinda, að bjarga nauðstöddum félögum. Fáum mínútum eftir að merki var gefið, er þeir, sem vakt áttu á Wotan, konmir á sinn stað. Landfestarnar eru leystar og svo er haldið af stað í áttina til Ocenan Layer, sem er í 600 sjómílna fjarlægð, sam- kvæmt því, sem staðan hefur verið tilkynnt. 28 Nýtt. S O S

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.