Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Blaðsíða 33

Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Blaðsíða 33
um það allt. Að því loknu leggur Theune aðra hönd sína á herðar Bretans: „Sjáið þér nú til, Mr. Ross, það er engan veginn hægt að ásaka yður. Þér urðuð að yfirgefa skipið. Björgunarbátarnir hefðu brunnið eftir stutta stund. E ghefði farið eins að í yðar sporum. ~ - 18. júní 1959 — klukkan 9. „Hamburger Abendblatt“ (Kvöldblaðið í Hamborg) fær svohljóðandi skeyti frá Wotan: „allar nauðsynlegar ráðstafanir gerðar stop erum með ocean layer í eftirdragi stop eldur um borð dvínar nokkuð stop tveir menn frá okkur eru þar á vakt stop en það er hættulaust nú stop í morgun var allgott veður hægur austanvindur stop við gerum sex og hálfan hnút og verður sennilega sunnudagsmorgun í fal- mouth stop staða okkar í morgun klukkan níu þýzkur tími var 48,14 n 17,55 v stop erum sem sagt enn á norður atlantshafi stop öllum um borð líður vel tuttugu og tveim mönnum og einum hundi stop þökkum kærlega kveðjuna frá hamborg stop gjörið svo vel að skila kveðju til venslafólks okkar stop sjáumst aftur í hamborg — skipstjóri og björgunarstjóri." Lengi var Flavia á forsíðum heimsblaðanna ásamt fregnum um póli- tíska ókyrrð, morð og annan ófarnað. Það var mikið skrifað um bæði skipin um þessar mundir. Var þá farið að rifja upp afrek Carlsens skipstjóra á „Flying Enter- prize“, sem neitaði að yfirgefa skip sitt fyrir sjö árum, ásamt bátsmann- inum Kenneth Dancy. Þá var líka, eins og nú, reynt að ná í höfn í Bretlandi, og einmitt í Falmouth eins og nú. Nokkrar fyrirsagnir stórblaðanna gefa svoliltlla hugmynd um það, hvað skrifað var í sambandi við þetta mál: Hvers vegna yfirgáfu þeir Ocean Layer? Ákafardeilur vegna björgunar sæsímaskipsins Ocean Layer! Níutíu og átta skipbrotsmönnum bjargað! Miklar deilur að lokinni björgun Ocean Layer. Skipstjórinn á Flavia leiðréttir misskilning. Nýtt S O S 33

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.