Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Blaðsíða 34
Tveir Þjóðverjar einir um borð í Ocean Layer!
Captain describes how ship was abandoned! (Skipstjórinn lýsir því,
hvernig skipið var yfirgefið).
Bretarnir neita að greiða björgunarlaun!
„Skipið var ekki stjórnlaust, heldur var strengur frá því fastur við
meginlandið!" skrifar eitt brezku blaðanna.
„Theune skipstjóri sá í sjónauka, að sæsímastrengurinn í Ocean Layer
var slitinn!" sagði þýzkt blað.
Komið hefur fram, að tveir menn voru um borð í Ocean Layer, þeg-
ar skipið var yfirgefið! Var það gert með vitund og ásetningi skipstjór-
ans?
Hræðslu uppþot á sæsímaskipinu, tveir menn gleymdust!
Ocean Layer tryggður hjá Lloyd fyrir sem næst 18 milljónir punda.
Ocean Layer tryggður hjó Lloyd frir næstum 20 milljónir marka!
Sjórán fyrrverandi kafbátsforingja!
Bretar verða að borga skip dýru verði, sem þeir fengu upp í stríðs-
skaðabæturl
Þetta er aðeins sýnishorn af því, hvernig blöðin ræddu þetta víð-
fræga björgunarmál.
Hver var sannleikurinn? Var þetta aðeins venjulegt bragð óhlutvandra
blaðamanna til þess að vekja.æsing og illdeilur?
Blaðamenn eru sjaldan sérfræðingar í siglingamálum. Ef málið er lagt
út á bezta veg má gera ráð fyrir, að stuttorðar orðsendingar skipanna
hafi valdið einhverjum misskilningi.
Ef svo reynist, hlýtur allur sannleikurinn að koma í ljós þegar áhafn-
ir skipanna þriggja, Flavia, Ocean Layer og Wotan, koma til hafnar
í Falmouth.
Hvað skeði svo, þegar Ocean Layer, sem enn rauk hressilega úr, kom
til hafnar í Falmouth, dregin þangað af Wotan?
Brezku hafnaryfirvöldin synjuðu leyfis um, að skipið yrði dregið inn
á höfnina, vegna þess, að ennþá gusu þykk reykský upp úr því.
Kom þá til ákafrar deilu milli Todds skipstjóra á Wotan og stjórn-
enda brezku slökkvibátanna, en Todd krafðist þess, að þeir skiptu sér
ekkert af skipinu, vegna þess að björgun þess væri á hans ábyrgð.
34
Nýtt S O S