Nýtt S.O.S. - 01.09.1960, Blaðsíða 32
lokin,“ hvíslar Sypkens að Viruly. „Eg ætla að freista þess að komast í
land og ná í hjálp! “
Viruly hugsar málið, svo ypptir hann öxlum:
„Straumurinn er o£ sterkur og álarnir of djúpir. Þá yrði stundum að
grípa til sundsins, en á milli yrði að vaða leðju og sandbleytu, — og
þetta er þriggja kílómetra leið. Shannon er því miður ekki aðeins fljót,
heldur er þar fenjasvæði mjög stórt og illt yfirferðar. Eg efast mjög um,
að yður heppnist þetta. . .“
„En eitthvað verðum við að gera, því þegar bjart er orðið og við sjá-
umst frá flugvellinum, getur það verið of seint.“
Þeir ræddust enn við um ástandið og loks var ákveðið, að Viruly og
Sypkens skuli vera á flakinu og gæta þess að fólkið ryðjist ekki í bátinn,
sem þegar er yfirfullur. Þá mundi brjótast út uppþot að nýju. Henn-
inger ætlar að reyna að komast til norðurbakka fljótsins. Hann kveður
þá félaga tvo með handabandi, svo rennir hann sér ofan í ískalt straum-
vatnið.
Nokkur öflug sundtök. Þjóðverjinn syndir nokkurn spöl. Þá lendir
hann á grynningum og sekkur næstum upp að mitti í sandbleytu —
rífur sig upp úr henni og heldur áfram.
Nú skeður það, að allt í einu fylgja þrír eða fjórir menn dæmi Henn-
ingers, renna sér niður af flakinu, þá fer hver af öðrum, átta, tíu, tólf
— þeir fara allir í slóð Henningers.
Viruly kallar til þeirra, að þeir ættu tafarlaust að snúa til baka, þetta
sé með öllu þýðingarlaust. Mennirnir synda, brjótast um í stríðum
straumnum, þá vaða þeir yfir eyrarnar, sökkva ofan í sandbleytuna, sumir
rífa sig upp úr, aðrir sitja fastir og hrópa á hjálp, en enginn getur veitt.
Fyrir löngu voru þeir, sem fyrirhyggjulaust lögðu út í ófæruna, horfn-
ir af sjónarsviðinu. Þá heyrist allt í einu dynur í lofti í vesturátt.
Björgun?
Þau horfa öll upp í loftið.
Nú heyrast hreyfladrunurnar miklu greinilegar, þá sjást rauðu og
grænu ljósin á vængjunum, og nú flýgur hún í birtu ljóskastaranna:
Það er verið að undirbúa lendingu þessarar áætlunarflugvélar.
Flugvélin flýgur með þrumugný yfir flakið í um það bil sextíu metra
32
Nýtt S O S