Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.12.1938, Síða 5
6. hefti
ÞJÓDI
1. árg.
Reykjavík, 1938.
Sigurður Kristjánsson alþm:
Tildrög og samþykkt
sambandslaganna.
í sjálfstæÖisbaráttu íslendinga
fram til ársins 1918 lögðu þeir höf-
uðáherslu á það, að fá viðurkennl,
að ísland og Danmörk væru jafn
rcttháir sanmingsaðilar.
íslendingar héldu því fram, að
þeir liefðu aldrei látið af hendi nein
landsréttindi, né viðurkennt yfirráða-
rétt Dana yfir íslandi. Héldu þeir
því hins vegar fram, að Danir liefðu
með valdi tekið sjálfsákvörðunar-
réttinn af Islendingum, og bæri þvi
að láta af hendi öll yfirráð yfir ís-
lenzkum máluni, þegar er Islend-
ingar sjálfir krefðust þess.
Danir viðurkenndu hins vegar
ekki þennan rétt Islendinga. Þeir
lifðu enn í gömlum stórveldis-
draumi. Danakonungur réði enn,
auk Danmerkur, yfir Færeyjum, Is-
landi, Grænlandi og eyjum í Vesl-
urindíum. Þetta veldi vildu þeir
ekki rýra. En auk þess var þeim
sérstaklega annt um verzlunarvið-
skiftin við ísland. Var því lengi ekki
við það komandi að ísland vrði við-
urkennt fullvalda ríki, og' allra sízt
að íslendingar fengju ulanríkismál
íslands i sínar hendur. Mótbárurn-
ar voru fvrst þær, að Islendingar
ætti ekki rétl á fullveldi. Og i öðru