Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.12.1938, Side 13
I> J Ó Ð I N
257
mynd um stærð snurpunótar, skal
þess getið, að ef meðalnót væri reisl
á rönd i Austurstræti í Reykjavík,
þá myndi hún ná frá Aðalstræti og
upp í mitt Bankastræti, en hæðin
væri eins og tvö Reykjavíkur Apó-
tek. Væri nótin breidd út, mundi
flatarmál hennar vera eitthvað um
einn og hálfur liektari, eða tæplega
5 vallardagsláttur. Netið er fest á
kaðla og lieita þeir á langjöðum
teinar, en fvrir endum brjóst, og
liorn nótarinnar iieita hálsar. Tein-
arnir heita korkateinn eða fláateinn
sá efri, en liinn blý- eða steinateinn.
Þeir eru mun styttri en netið, og
heitir sá mismunur felling. Verður
fellingin að fara eftir ákveðnum
hlutföllum, og getur kostað að ekki
náist síld i nótina, sé fellingin til
muna vitlaus. A neðri tein nótar-
innar eru festir svonefndir hana-
fætur. Það eru kaðalspottar, grann-
ir, um 4 faðma langir, en á milli
þeirra eru 3—5 faðmar, og eru
hafðir 11—13 hanafætur á nót. A
miðju hvers hanafótar er festur
liringur úr kopar, vel fingurs gild-
ur og það víður, að nettlientur mað
ur getur komið hendi í gegn um
hann. Gegn um þessa hringi er
dreginn frekar mjór kaðall, en
sterkur, og nefnisl snurpulína. Hún
liggur með öllum teininum þegar
nótin er ekki í notkun.
Nótin er oflast vfir veiðitimann i
tveimur bátum, sem nótabátar
nefnast. Þeir eru á stærð við (5—8
tonna trillubát, en öðruvísi byggð-
ir og geysisterkir. öftast er bátum
þessum róið og þá 2 eða 3 árar á
borð, en róðurinn er þungur mjög
og erfiður. í framstafni hvors t)áts
er komið fyrir járni, allgildu, í lagi
líkt og göngustafur og svipuðu á
lengd. Krók-endinn á járninu stend-
ur upp og er þar fest hjól, en járn-
ið nefnist daviða og lijólið davíðu-
l)lokk. Fjórar þóftur eru i hvorum
l)át. Á þriðju þóftu að framan er
venjulega svonefnt snurpuspil. Er
því snúið með tveimur sveifum og
geta 2—3 menn tekið á hvorri. Milli
þriðju þóflu og þeirrar öftustu, sei:
Togarinn Þórólfur.