Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.12.1938, Side 22
Enska l)inghúsið.
síyrjöldinni hefði lokið þannig, að
Þýzkaland liefði orðið undir og
Tékkó-slóvakía losnað úr greipum
Þjóðverja, þá hefðu Tékkar verið
engu bættari. Land þeirra hefði
verið evðilagt, og þeir hefðu
sennilega ekki fengið að halda
Sádelahéruðunum. Bretar og
Frakkar hefðu ekki getað fall-
izt á slíkt fyrirkomulag aftur
Síðan spyr hann: Hvaða vit
tiéfði verið i því að fara í styrjöld
til þess að koma í veg fyrir að Súd-
eta-héruðin sameinuðust Þýzka-
landi, þar sem vér niyndum hafa
afhent Þjóðverjum þau að stýrjöld-
inni lokinni?
Herl>ert Samuel er einn af kunn-
ustu stjórnmálamönnum Breta. —
Hann hefir verið ráðherra, gegnt
landsstjórastörfum og verið foringi
þess lilula frjálslynda flokksins, sem
er í andstöðu við núverandi stjórn.
Hann féll i síðustu kosningum og
gat því ekki lengur verið formaður
þingfiokksins. Hann á nú sæti i lá-
varðadeildinni og er í frjálslynda
flokknum.
Þessi afslaða Herberts Samuels
mótast áreiðanlega ekki af ást lians
á valdhöfum Þýzkalands, því að
liann er Gyðingaættar.
Annar frægur maður úr hópi
frjálslyndra stjórnarandstæðinga
hefir lýst yfir svipaðri afstöðu til
þessara mála og H. Samuel. Það er
Lothian lávarður. Hann var einka-
ritari Lloyd Georges um langt skeið
og nýtur mjög mikils álils. Hann
liefir í grein, sem birtist í Sunday
Observer, varið afstöðu Chamber-
lains til Þýzkalands-málanna með
því, að hingað til hafi Þjóðverjar
yfirleitt haft réttlælið með sér.
Úr hópi sósíalista, sem varið hafa
stefnu Chamberlains, má minna á
Elton lávarð. Hann hefir nýlega
skrifað tímaritsgrein, þar sem hami
fellsl alveg á stefnuna, sem kennd
er við Múnclien. Elton lávarður cr
talinn einn af mestu fræðimönn-
um Breta. —
Nokkrar aukakosningar hafa far
ið fram í Bretlandi síðan Múnchen-
sáttmálinn var gerður. Þær virðasi
sýna, að stjórnarflokkarnir haldi
fylgi sínu hjá þjóðinni. Að vísu het-
ir stjórnin tapað sumum þeirra. En
það er engin nýlunda. Stjórnarand-
stæðingar í Bretlandi vinna oft
aukakosningar. Það stafar af þvi,
að þegar stjórnin hefir mikinn