Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.12.1938, Side 28
272
1» J Ó Ð I N
þeirra næðu saman. Þeir fengu eigi
vilja sínum framgengt. Rúthenia
varð sjálfstætt sambandsriki Tékkó
Slóvakíu.
Þjóðverjar liafa fengið leyfi
Tékka lil þess að leggja veg gegn-
um Tékkó-Slóvakiu. Sumir setja
þessa vegarlagningu í samband við
fyrirætlanir Þjóðverja um að vinna
lönd af Rússum. — Úkrainumenn
(Rúthenar tilheyra þeim) eru um
50 milljónir. Þeir búa i Tékkó-Sló-
vakíu, eins og áður er sagt, en auk
þess í Póllandi og þó sérstaklega
í Rússlandi. Þeir bvggja stórt land
flæmi í Rússlandi, norðanvert við
Svartahaf. Þjóðverjar hafa reynt
að vekja sjálfstæðiskröfur Ukrainu-
manna. Það er ekki búizt við því,
að þeir hyggist að leggja land þetta
undir sig. Þeir vilja koma þar upp
sjálfstæðu ríki, sem þeir ætla síðan
að liafa mikil verzlunarskipti við.
En hvað, sem hæft kann að vera
í þessu, þá eru Rússar, Pólverjar
og Ungverjar hræddir. — Pólverj-
ar hafa upp á síðkastið ofsótt Úkra-
ínumenn íPóllandi mjög ákaft. Enn-
fremur hafa þeir bundizt traustum
böndum við Rússa. Sú samvinna,
sem er að skapast milli þeirra, staf-
ar vafalaust af óttanum við þess-
ar fyrirætlanir Þjóðverja.
Ungverjar eru einnig hræddir.
Þeir vara Þjóðverja við því að
hyggja á slíka hluti.
Ef til vill er þessi ótti Rússa, Pól-
verja og Ungverja ástæðulaus og
ýmislegt bendir á, að svo sé. —
Framtiðin verður að skera úr því.
býskaland eftir stri'ð (feita línan) og eins og það er i dag.