Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.12.1938, Síða 45

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.12.1938, Síða 45
Þ J Ó Ð I N 289 eg væri ekki í þeim hóp, þvi að þá vrði það ein kona og fjórir karl- menn.“ „Alveg rétt. Ein og fjórir, kona og menn“, sagði liðþjálfinn og hjartað í Önnu tók viðbragð, með því að nú vissi hún að hún var örugg, því að „einn og fjórir, K. og M.“ var ein- mitt eilt að dulmálsteiknum þýzku njósnaranna, ef þeir vildu ganga úr skugga um hvort um njósnara og fé- lagsbræður væri að ræða eða ekki. Anna gerði sér engar grillur um það, hvernig á því stóð, að þessi liðþjálfi var þýzkur njósnari. Henni var líka sama um þótt hann væri svikari, sem væri að veiða hana. Það varð aldrei verra en það var. Nú var þó ef til vill möguleiki á því, að henni tækist að komast hjá dauða. Hún var fljót að átta sig á hlutunum, og nú spurði hún liðþjálfann, hvort sér leyfðist að ganga erinda sinna, en hann bauðsl til að fylgja henni, þeg- ar varðmaðurinn lét sem liann ællaði að gera ])að. Varðmaðurinn lét sér það vel líka, og hafði ekki fleiri orð um það. Liðþjálfinn fylgdi henni, en þess var enginn kostur, að þau gætu talazt við, með því að varðmaðurinn var stöðugt í nánd. Þegar liðþjálfinn lokaði dyrunum á eftir lienni hvisl- aði hann: „Ger þú hina stúlkuna drukna. Láttu svo mig um hitt.“ Nokkru eftir að hún var aftur komin i klefa sinn, kom liðþjálfinn með eina flösku af vodka, og hún var stór. „Yfirforinginn hefir leyft það, að þessar tvær stúlkur fái þessa hress- ingu síðustu stundirnar“, sagði hann við vörðinn, en hann gerði við það enga athugasemd. Timinn leið og dauðaæfintýrið var leikið í klefanum kvennanna. Anna gerði allt sem hún gat til þess að hella hina fulla, og hún gerði það án þess að vorkenna lienni hið minsta. Að vísu hefði hún viljað hjálpa stúlk- unni, ef þess hefði verið nokkur kost- ur, en úr því sem komið var varð hún að hugsa um það eitt að bjarga sjálfri sér, og gera það, sem henni hafði verið skipað. Þegar liðþjálfinn kom aftur eftir nokkurn tíma, til þess að lita eftir því, hvernig stúlkunum liði. vildi svo til, að vörðurinn var i tólf skrefa fjarlægð, og hann gat því livíslað gegn um lúguna og spurt hvernig gengi. „Það er eins og það á að vera“, svaraði Anna, og hún gerði það án þess að finna til nokkurs sársauka. Stúlkan hafði orðið mjög glöð, er hún fékk fyrstu sopana og hún hafði hresst við og gleymt þeim örlögum, sem hiðu hennar, og nú mókti hún, með þvi að soparnir urðu henni of margir og sterkir. En hún hafði flöskuna við lilið sér, og i morgun- málið hafði hún kannske örfað sig á ný, og mætti þá dauðanum lilæj- andi. Frh.

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.