Byggingarlistin - 01.01.1951, Qupperneq 9
félögunum hefur verið falin viss ábyrgð og
skyldur varðandi byggingar íbúðarhúsa, að
ríkið veitir bentug lán til byggingar og end-
urbóta íbúðarhúsa, að ríkið veitir ákveðn-
um tegundum fjölskyldna húsaleigustyrki.
Sérstök ríkisstofnun, bostadsstyrelsen, hef-
ur verið sett á fót til að hafa á hendi fram-
kvæmdir og sjá um rannsóknir í byggingar-
málum.
Fyrir einstökum greinum þessarar starf-
semi mun nánari grein gerð hér á eftir.
3. Skipulag starfseminnar
Þrír aðilar hafa með höndum framkvæmd
þessara mála: „bostadsstyrelsen", „lansbo-
stadsnámnder" og „kommunala förmedlings-
organ“.
„Bostadsstyrelsen“ er ríkisstofnun, undir
sérstakri stjórn. Hlutverk hennar er: 1) Að
fylgjast með þróuninni á byggingarmarkað-
inum, framkvæma rannsóknir varðandi
byggingarþörfina og skilyrði byggingarstarf-
seminnar og hafa með höndum hagskýrslu-
gerð um byggingarstarfsemi, byggingar-
kostnað o. s. frv. 2) Að rannsaka teikningar
og lýsingar á byggingum, sem sótt er um lán
fyrir, veita fyrirtækjum í byggingariðnaðin-
um ráð og leiðbeiningar varðandi fyrir-
komulag bygginga, leiðbeina undirstofnun-
um í lénum og sveitarfélögum, láta í té
teikningar af einbýlishúsum. 3) Að ákveða
veitingu lána og húsaleigustyrkja til allra
fjölbýlishúsa og til einbýlishúsa í bæjum
með yfir 10.000 íbúum, hafa umsjá með
þessum lánum, hafa eftirlit með starfsemi
léns- og sveitarfélagsnefndanna.
Stofnuninni er skipt niður í almenna
deild, áætlunardeild, tæknideild, lánadeild
og félagsmáladeild.
„Lansbostadsnamnd“ er í hverju léni skip-
uð 5 mönnum, fjórir eru tilnefndir af ríkis-
stjórninni, þann fimmta, sem jafnframt er
framkvæmdastjóri nefndarinnar, velja hinir
fjórir. Verkefni nefndanna eru: 1) Að rann-
saka í samráði við „hostadstyrelsen" ástand
í byggingarmálum og byggingarþörf í lén-
inu. 2) Að rannsaka teikningar og lýsingar
þeirra bygginga, sem r.efndin veitir lán til.
3) Að ákveða veitingu lána og húsaleigu-
styrkja til einbýlishúsa í öðrum sveitarfé-
lögum en bæjum með yfir 10.000 íbúa, og
hafa umsjá með þessurn lánum.
Auk framkvæmdastjórans er gert ráð fyr-
ir, að hjá nefndunum starfi byggingarverk-
fræðingar og arkitektar.
„Kommunala jörmedlingsoTgan“ eru valin
af sveitarstjómunum sjálfum, og engin al-
menn fyrirmæli eru gefin um það, hvernig
þessari starfsemi skuli fyrirkomið, en það
er að sjálfsögðu mjög breytilegt eftir stærð
sveitarfélaganna. Verkefni þessara stofnana
eru: 1) Að gera áætlun í samráði við „bo-
stadsstyrelsen“ um byggingarstarfsemina í
sveitarfélaginu (þessi skylda hvílir þó að-
e*ns á sveitarfélögum með meira en 10.000
bYGGINGARLISTIN 1951,1
Vér framleiðiuii:
Hurðir, þiljur, glugga, eldhúsinnréttingar.
Látið fagmenn teikna.
Vér gerum tilboð og smiðum samstundis.
Góðir fagmenn . Rétt verð . Vönduð vinna
BYGGIR H.F.
SAMBAND ÍSL. BYGGINGARFÉLAGA
Reykjavík . Sími 6069
Helgi Guðmundsson
piþulagningameistari
Snorrabraut 81 . Sími 5149
Hitalagnir
Vatnslagnir
Hreinlietistæki
FRAUÐSTEYPA
( Cellebeton )
er ólífrænt einangrunarefni.
Einangrunarhæfileikinn byggist
á ótal loftbólum, sem eru inni-
lokaðar í steypunni (3000—8000
pr. cm3).
Varmaleiðslu tala
kcal
Eðlisþyngd: 0,3 t/m3.
FrauBsteypa er seld i plötum,
blokkum og i lausu mdli.
7