Byggingarlistin - 01.01.1951, Side 10
GOSULL
einangrar
kulda
hita
hljóð
eld
Hitastreymistalan K — 0,0326
Laus GOSULL, 20 kg. pappirspokar, notað i tróð o. £1.
Hnökruð GOSULL, 20 kg. pappírspokar, blásið loftrúm.
Vírnetsmottur, 2"—4", lagðar á katla.
Pappírsmottur, 4 cm„ vafðar um rör og vatnsgeyma.
GOSULL hefur verið notuð mikið til alls konar einangrunar um allt land.
Spyrjið þá sem reynt hafa.
Eingöngu innlent hráefni.
EINAKGRUSí H.F.
Einholti 10 . Reykjavlk . Simi 2287
THERMOPANE er framleitt úr
tveim eða fleiri glerskifum með
loftþéttu rúmi milli skifanna.
THERMOPANE er mjög
heppilegt í hinni köldu og um-
hleypingasömu veðráttu hér-
lendis.
Þrir aðalkostir THERMCPANE
eru:
1. Útilokar móðu og frost af
gluggum.
2. Einangrar gegn hita, kulda
og hávaða.
3. Ávallt hreint og vel gegnsætt.
Ekkert vatn safnast í glugga-
kisturnar.
Allar frekari upplýsingar d skrifstofu okliar:
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
íbúa), að safna gögnum vegna hagskýrslu-
gerðar „bostadsstyrelsen“, að leiðbeina fyr-
irtækjum í byggingariðnaðinum varðandi
framkvæmdir þeirra. 2) Að taka við teikn-
ingum og byggingarlýsingum og koma þeim
áfram til réttra aðila. 3) Að taka við og
koma áfram umsóknum um lán og húsa-
leigustyrki, veita aðstoð við útborgun og
umsjá lána og styrkja, hafa eftirlit með að
byggingar séu framkvæmdar í samræmi við
sett skilyrði.
Til hægðarauka bæði fyrir umsækjendur
lána og stofnanirnar sjálfar er áherzla lögð
á að veita upplýsingar um þær tæknilegu
kröfur, sem gerðar eru, og rannsaka skissur
og lýsingar þegar á frumstigi undirbúnings.
Framkvæmdir má ekki hefja fyrr en um-
sókn hefur verið afgreidd. Lánaveiting fer
hinsvegar ekki endanlega fram fyrr en bygg-
ingu er lokið. Gert er ráð fyrir, að yfirleitt
séu bankalán, „byggnadskreditiv", veitt á
meðan á byggingu stendur, en bráðabirgða-
lán er þó liægt að veita í vissum tilfellum.
Þetta skipulag ber sterkan keim „central-
iseringar". Það liefur þó verið talið æski-
legt, að starfsemin verði, þegar fram líða
stundir, færð meira yfir á lénsnefndir og
sveitarstjórnir. Enn sem komið er, er þó tal-
ið, að þessa aðila skorti reynslu og hæfa
kunnáttumenn til að taka ábyrgðarmeiri
verkefni að sér.
4. Lánveitingar ríkisins
Lánveitingarnar eru mismunandi eftir því,
hvort lánin eru veitt til einbýlishúsa, sem
lántakinn sjálfur býr í, og tvíbýlishúsa, þar
sem lántakinn býr í annarri íbúðinni, eða
fjölbýlishúsa.
Lán til hinnar fyrrnefndu tegundar húsa
eru nefnd „egnahemslán" til hinnar síðari
„tertiárlan" og „tillaggslán".
a. „Egnahemslan“.
Skilyrðin fyrir veitingu „egnahemslán“
eru í aðalatriðum þau, sem nú skal greina.
1) Að íbúðin sé a. m. k. tvö herbergi og eld-
hús, og sé hún ekki stærri, sé jafnframt hægt
að innrétta herbergi í rishæð. Þessi regla
var sett á þessu ári. Áður var sú regla í
gildi, að íbúðin varð að vera a. m. k. þrjú
herbergi og eldhús, að flatarmáli 70 ferm.
eða þar yfir, ef húsið var í bæ eða kaup-
túni, en tvö herbergi og eldhús, a. m. k. 60
ferm., ef húsið var í sveit. Fyrir tveggja her-
bergja íbúðirnar gilti þá sama regla og nú,
að hægt varð að vera að innrétta rishæðina.
Sé um tvíbýlishús að ræða eru þessar kröf-
ur aðeins gerðar til annarar íbúðarinnar.
2) Að í húsinu sé miðstöð og bað, og það
sé tengt almennu vatnsleiðslu- og frárennsl-
iskerfi, eða séð sé fyrir slíkum leiðslum,
standi húsið ekki í þéttbýli, að nægar
geymslur séu í húsinu og viðunandi eldhús-
innrétting. 3) Að húsið sé byggt á þeim
Framli. á 30. bls.
J
8
1951,1 BYGGINGARLISTIN