Byggingarlistin - 01.01.1951, Page 24
B-ílokkur. 40—45 m~.
3. verSlaun kr. 350.00:
Skúli Norðdahl stud. arch.
Góður lítill sumarbústaður. Kostur er
hvað gólffleti er lítið skipt. Gluggar á
stofu mættu vera færri, en stærri.
11 Ed 1? II ö 1 B
rrrrrr
iS i u.
C-flokkur. 25—30 m2.
1. verSlaun kr. 700.00:
Gunnlaugur Halldórsson,
Skaphéðinn Jóhannsson
arkitektar.
Tillagan sýnir að það er hægt að fá
mikið út úr litlu.
65 ÁRA: SIGURÐUR GUÐMUNDSSON arkitekt
Framh. af 18. bls. .
Meðfædd listhneigð Sigurðar, dómgreind og gáfur, hafa mótað starf
hans, og eiga enn eftir að færa honum heim marga unna sigra.
*
Frá því 1935 hefir Sigurður Guðmundsson rekið teiknistofu í félagi
við Eirík Einarsson arkitekt. Hafa þeir félagar notið mikils trausts í
starfi og fengið til úrlausnar mörg og vandamikil verkefni.
Helztu byggingar Sigurðar, sem hann ýmist hefur unnið einn sem
húsameistari, eða í félagi við Eirík Einarsson síðar, eru þessar:
Barnaskóli Austurbæjar (fyrsta byggingin eftir heimkomu frá námi),
Landakotsspítalinn nýi, Elliheimilið, Stúdentagarðarnir, Sjómannaskól-
inn, I'jóðminjasafnið, Bálstofan, Rafstöðin við Sog, Stykkishólmssjúkra-
hús, turnbygging Hólakirkju, fjöldi íbúðarhúsa svo og verzlunarhús.
Sigurður hefir mjög látið sig skipta skipulagsmálin. Ritað um þau
fjölda greina og haldið erindi. Enn í dag eru þessi mál honum stöðugt
viðfangsefni, og hefir jafnan lagt þeim gott til af víðsýni og smekkvísi,
enda fjölmenntaður í flestum greinum er snerta byggingarlistina.
Hann hefir einnig látið sig skipta samtök listamanna ahnennt. For-
maður Bandalags ísl. listamanna var hann um skeið, og hefur átt sæti
í dómnefndum um val listaverka á erlendar og innlendar listsýningar.
*
Vonandi er þess langt að bíða að niðurlagsorð verði skráð um störf
Sigurðar Guðmundssonar. Hér hefir aðeins verið stiklað á stóru á
merkum tímamótum, því Sigurður er enn jafn ötull í starfi og hann er
frár á fæti. Hvítu hárin villa þar heimildir, og eiga ekkert skylt við
kerlingu Elli annað en litinn.
Við starfsbræður hans og félagar árnum honum allra heilla á þessum
tímamótum, og þökkum það sem af er. Hörður Bjarnason.
C-flokkur. 25—30 m2.
2. verSlaun kr. 350.00:
Gunnlaugur Halldórsson,
Skarpliéðinn Jóhannsson
arkitektar.
Verðlaunin eru veitt tillögu B,
er sýnir mjög skemmtilega
innréttingu á litlum sumarbú-
stað.
C-flokkur. 25—30 m2.
3. verSlaun kr. 200.00:
Skúli Norðdahl stud. arch.
Tillagan er mjög einföld og ódýr
í byggingu, en hreinleg og lát-
laus.
22
1951,1 BYGGINGARLISTIN