Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Side 2
Stækkun Bláa lónsins var að stórum hluta greidd með opinberu fé úr ríkis- sjóði. Upphæðin kom í gegnum Eign- arhaldsfélag Suðurnesja og nýttist til byggingar lækningalindar fyrir húð- sjúklinga. Ríkið lagði fram nærri 200 milljónir í verkefnið, tæpan helming þeirrar fjárhæðar sem til þurfti. Krist- inn H. Gunnarsson, þingmaður Frjáls- lynda flokksins, segir Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa notað ríkisfé til að hjálpa vinum sínum. Lækningalind- in var formlega opnuð 10. júní 2005 og þar er náttúruleg meðferð við húð- sjúkdómnum psoriasis þar sem stein- efni, kísill og þörungar eru mikilvæg- asti þáttur meðferðarinnar. Glæsilega aðstöðu er að finna í Lækningalind- inni. Þar eru 15 vel út búin herbergi fyrir gesti, veitingasalur, setustofa, af- þreyingarherbergi, matstofa, tækja- salur, hvíldarherbergi, nuddherbergi, læknisaðstaða og garður til útivistar. Fyrr á þessu ári keypti Bláa lónið aft- ur hlut Eignarhaldsfélags Suðurnesja fyrir sömu upphæð og lögð var fram í upphafi, tæpar 200 milljónir sem rík- ið lánaði í raun vaxtalaust í nokkur ár. Lánið jafngildir þeirri upphæð sem rík- isstjórnin samþykkti nýverið að setja í atvinnuþróunarsjóð á næstu tveim- ur árum og á að nota til að aðstoða at- vinnulíf í sjávarbyggðum. Öllum til sóma Grímur Sæmundsen, fram- kvæmdastjóri Bláa lónsins, staðfestir að Lækningalindin hafi kostað rúmar 500 milljónir og að tæpar 200 milljónir hafi fengist frá Eignarhaldsfélagi Suð- urnesja. Hann bendir á að fyrirtækið hafi nýverið keypt til baka hlut Eign- arhaldsfélagsins fyrir sömu upphæð og lögð var fram í upphafi. „Eignar- haldsfélagið kom að uppbyggingunni sem hluthafi á móti okkur. Stofnað var sérstakt hlutafélag utan um sjálfa framkvæmdina og kom ríkið að því að styðja þennan þátt í starfsemi Bláa lónsins. Aðkoman á sínum tíma var einskorðuð við uppbyggingu lækn- ingaþjónustu okkar,“ segir Grímur. „Við höfum keypt aftur hlut fé- lagsins og því hefur það lokið sínu hlutverki í þessu sam- hengi. Það var hið besta mál að byggja upp Lækn- ingalindina og hún hefur verið gríðarleg lyftistöng fyrir okkar starfsemi. Nú höfum við þróað okkur út í alþjóðlega markaðsstarf- semi sem er nokkuð sem við gátum ekki áður sökum frumstæðrar aðstöðu. Framtakið var því alveg frábært og er öllum til sóma sem að því komu.“ Hjálpaði vinum sínum Kristinn H. Gunnarsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, sakar forsætisráðherra um að hafa lagt lín- urnar með lánveitingu ríkissjóðs til Bláa lónsins. Hann undrast þetta ein- staka framlag ríkisins í samanburði við framlag þess til atvinnuuppbygg- ingar í sjávarbyggðum. „Geir Haar- de beitti sér fyrir því sem fjármála- ráðherra að vinir hans í Bláa lóninu fengju tæpar 200 milljónir til að stækka hjá sér. Farið var með þessa peninga í gegnum sérstakt eign- arhaldsfélag til að fela slóðina. Þarna var fjármálaráðherr- ann að koma fjárveitingu inn á fjárlög og ákvað sjálfur í hvað upphæð- in átti að fara. Stjórn Eignarhaldsfélagsins hafði ekkert um það að segja og henni var bara sagt að kaupa í Bláa lóninu,“ segir Kristinn. „Það getur alveg þurft pólitík til þess að ná góðum árangri og ég er ekki að gagnrýna þetta ein- staka verkefni sem slíkt. Ég er ekki að segja að verkefnið sé slæmt en ég gagnrýni að ríkið hafi lagt fram stór- an hluta fjárins sem til þurfti í þessa einkaframkvæmd. Sú upphæð sem Geir setti í þetta eina fyrirtæki er sama og ríkisstjórnin hreykir sér af í atvinnuþróunarsjóði núna þar sem allt er að fara undir brot og slit. Það var bara af því fjármálaráðherrann tók málið upp á sína arma fyrir vini sína.“ Þegar leitað var eftir svörum frá Geir H. Haar- de forsætis- ráðherra fengust þau svör að hann veitti ekki viðtal. þriðjudagur 14. ágúst 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is „Það var á föstudagskvöldið fyrir rúmri viku sem hvítur bíll keyrði fram hjá húsinu. Eftir stutta stund kom hann til baka og út stukku nokkrir grímuklæddir menn sem úðuðu alla framhliðina. Að svo búnu flýttu þeir sér inn í bílinn og óku á brott.“ Þetta segir Jón Pétursson, eigandi Grill- hallarinnar, sem hefur undanfarin tvö föstudagskvöld orðið fyrir barð- inu á veggjakroturum. „Viku síðar gerðist nákvæmlega það sama aftur. Þetta var rétt eftir miðnætti í bæði skiptin en eftirlits- myndavélar staðfesta að um sömu menn var að ræða í báðum tilfellum,“ segir Jón. Það kostar töluverða vinnu og fjármuni að koma veggjum, hurð og rúðum í samt horf. Lögreglan vinnur að rannsókn málsins en talið er að þetta séu sömu drengir og unnu svipuð skemmdar- verk á Ingunnarskóla fyrr í sumar. Jón segist nokkuð viss um að svo sé: „Þeir skrifa alltaf sömu stafina og því er auðvelt að sjá að þetta eru sömu mennirnir sem stunda þessa iðju. Þetta er alveg ótrúleg skemmdar- fýsn,“ segir Jón en hann segist ekki vita til þess að hann hafi gert nokk- uð á hlut viðskiptavina sinna eða annarra í hverfinu. „Þetta virðist vera fullkomlega að ástæðulausu.“ Jón ætlar ekki að sitja auðum hönd- um. „Ég er að vinna í því að koma fyrir myndavélum utan á húsinu og á bílaplaninu svo þeir munu ekki komast upp með þetta lengi. Lög- reglan leggur auk þess mikla áherslu á að ná þessum drengjum því kostn- aðurinn við þetta athæfi þeirra er mikill.“ Grímuklæddir veggjakrotarar gera eiganda Grillhallarinnar lífið leitt: Skemmdarvargar í Grafarholti Grillhöllin í Grafarholti „Ótrúleg skemmdarfýsn,“ segir eigandinn, jón Pétursson. Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslyndra, undrast takmörkuð fjárframlög ríkis- ins til atvinnuppbyggingar sjávarbyggða í ljósi kvótaskerðingar. Hann bendir á að fram- lögin nú séu álíka há og ríkið lánaði til stækkunar Bláa lónsins og segir Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa beitt sér fyrir því að stýra fé úr ríkissjóði til framkvæmdarinnar. TrausTi HafsTeinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Geir H. Haarde Forsætisráðherra er sakaður um að hafa beitt sér, í fjármálaráðherratíð sinni, fyrir því að vinir hans fengju fé úr ríkissjóði til uppbyggingar Bláa lónsins. Vinir ráðherra fengu milljóna lán frá ríkinu Glæsileg aðstaða Lækningalind Bláa lónsins býður gestum upp á glæsilega aðstöðu og kostaði hálfan milljarð að reisa hana. stór hluti fjárins kom með framlagi ríkissjóðs en hlutur ríkisins hefur að fullu verið keyptur til baka. Kristinn H. Gunnarsson sakar forsætis- ráðherra um að hafa hjálpað vinum sínum með 200 milljóna króna framlagi. kveikt í bílskúr Lögreglu grunar að kveikt hafi verið í bílskúr á Selfossi í fyrri- nótt. Bílskúrinn er við fasteigna- söluna Bakka við Sigtún og kom eldurinn upp um klukkan tvö um nóttina. Bifhjól og tveir bílar voru í bílskúrnum en tókst að ná þeim út og forða frá skemmdum. Talið er að eldsupptök hafi verið við vesturgafl bílskúrsins þar sem eldurinn hafði teygt sig í þak- sperrur. Slökkvilið náði að koma í veg fyrir að eldurinn næði inn í skúrinn. Málið er í rannsókn og biður lögregla þá sem veitt geta upplýsingar um mannaferðir í og við Sigtún aðfaranótt mánudags að hafa samband í síma 480-1010. Mótmæla her- æfingum NATO Samtök hernaðarandstæð- inga standa fyrir mótmælum í dag vegna heræfinga NATO- ríkja hér á landi. Æfingarnar hefjast í dag og hið sama á við um mótmælastöðuna. Sam- tökin eru mótfallin heimboði íslensku ríkisstjórnarinnar og vilja sýna andstöðu sína gegn vopnabrölti Íslendinga í verki. Gengið verður að sendiráðum Bandaríkjanna og Danmerkur ásamt Stjórnarráði Íslands. Matur, ný rétt og margar vélar Landbúnaðarsýningin á Sauðárkróki hefst á laugar- dag og stendur alla helgina. Á sýningunni verða margvísleg- ar vélar til sýnis auk þess sem mikið fer fyrir alls konar mat frá framleiðendum í landbúnaði að ógleymdu sveitaballi. Auk þess verða kálfa- og hrútasýn- ingar og landnámshænur og smalahundar koma við sögu. Sýningunni er ætlað að vekja athygli á ýmsu því sem er að gerast í landbúnaði. Af- urðastöð KS verður með nýja rétt til sýnis og hátæknifjósið í Birkihlíð opnar dyr sínar fyrir gestum. Sýningin verður í og við Reiðhöllina Svaðastaði. atvinnuleysi með minnsta móti Atvinnuleysi hefur ekki mælst jafnlítið hér á landi í sjö ár. Atvinnuleysi minnkaði um þrjú prósent á milli mánaða og var skráð atvinnuleysi í júlí 0,9 prósent eða að meðaltali 1.578 manns. Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysi um 1,4 prósent eða 28 prósentum meira. 1,3 prósent kvenna mældust atvinnulaus og 0,7 prósent karla. Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu minnkaði um 4 prósent en um 2,6 prósent á landsbyggðinni frá síðasta mánuði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.